Ferill 1048. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1917  —  1048. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um gagnkvæma réttaraðstoð.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu oft hefur íslenska ríkið óskað eftir framsali á ríkisborgara lands sem íslenska ríkið hefur gert samning við um gagnkvæma réttaraðstoð? Hversu oft hefur slíkri beiðni verið hafnað?
     2.      Hversu oft hefur þess verið óskað að íslenska ríkið framselji íslenskan ríkisborgara til lands sem íslenska ríkið hefur gert samning við um gagnkvæma réttaraðstoð? Hversu oft hefur slíkri beiðni verið hafnað?


    Við vinnslu svarsins óskaði dómsmálaráðuneytið eftir upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara og byggjast svörin á upplýsingum frá því embætti.
    Til að fá sakamann framseldan eða afhentan til og frá Íslandi eru þrjár meginleiðir í boði. Í fyrsta lagi er hægt að fara fram á framsal á grundvelli laga nr. 13/1984, um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum. Lögin byggjast að meginstefnu til á Evrópusamningnum um framsal sakamanna frá 1957 ásamt tveimur viðbótarbókunum hans. Í öðru lagi er hægt að gefa út evrópska handtökuskipun á grundvelli laga nr. 51/2016, um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar. Í þriðja lagi er hægt að gefa út norræna handtökuskipun á grundvelli sömu laga, þ.e. laga nr. 51/2016.
    Við gildistöku laga nr. 51/2016, að því er varðar norrænu handtökuskipunina, féllu úr gildi lög nr. 12/2010, um afhendingu manna milli Norðurlandanna vegna refsiverðra verknaða (norræn handtökuskipun). Síðarnefndu lögin, ásamt þeim hluta þeirra fyrrnefndu að því er varðar norrænu handtökuskipunina, byggjast á samningi um afhendingu vegna refsiverðrar háttsemi milli Norðurlandanna (norræn handtökuskipun) sem undirritaður var 15. desember 2005. Inntak þess samnings var að hverfa frá hinu valkvæða framsalskerfi á milli Norðurlandanna og taka upp fyrirkomulag um afhendingu manna sem byggist á gagnkvæmri viðurkenningu á ákvörðunum dómsyfirvalda viðkomandi ríkja. Til að leggja áherslu á kerfisbreytinguna var hugtakinu „framsal“ skipt út fyrir „afhendingu“.
    Samkvæmt 5. gr. laga nr. 51/2016 gilda ákvæði laganna einnig um afhendingu íslenskra ríkisborgara, þ.e. íslenskir ríkisborgarar eru afhentir til aðildarríkja Evrópusambandsins og Norðurlandanna. Við gildistöku laganna að því er varðar evrópsku handtökuskipunina, þann 1. nóvember 2019, sbr. auglýsingu í A-deild Stjórnartíðinda nr. 123/2019, bættust aðildarríki Evrópusambandsins í hóp þeirra ríkja sem heimilt er, að uppfylltum lagaskilyrðum, að afhenda íslenska ríkisborgara til.
    Samkvæmt lögum nr. 51/2016 er meginreglan sú að á íslenska ríkinu hvílir skylda til að handtaka og afhenda menn, ef lagaskilyrði eru uppfyllt, nema fyrir hendi séu synjunarástæður þær sem tilgreindar eru í lögunum og gildir það sama um íslenska og erlenda ríkisborgara að þessu leyti (sbr. þó sérskilyrði í 27. gr. laganna er varðar skilyrta afhendingu).
    Grundvöllur evrópskrar (EAW) og norrænnar handtökuskipunar (NAW) getur verið annars vegar vegna meðferðar á sakamáli eða til fullnustu á fangelsisrefsingu.
    Íslenska ríkið framselur hins vegar ekki íslenska ríkisborgara, sbr. 2. gr. laga nr. 13/1984. Ríkissaksóknari hefur ekki yfir að ráða áreiðanlegri tölfræði um fjölda einstaklinga sem hafa verið framseldir til og frá Íslandi á grundvelli framangreindra laga. Hið sama á við um höfnun framsals. Þá hefur dómsmálaráðuneyti heldur ekki þessa tölfræði á reiðum höndum og væri vinnan við að taka hana til of umfangsmikil, enda lögin verið í gildi frá árinu 1984. Þess ber þó að geta að framsalsmálum fækkaði gríðarlega eftir að evrópska og norræna handtökuskipunin tók gildi.
    Hér að neðan er að finna tölfræði yfir afhendingar til og frá Íslandi og hversu oft afhendingu hefur verið hafnað:

Afhending til Íslands – útgefnar NAW og EAW
    Frá gildistöku laga nr. 12/2010 og til og með gildistöku laga nr. 51/2016 hefur til dagsins í dag alls verið óskað eftir afhendingu eftirlýsts einstaklings til Íslands í 25 skipti á grundvelli handtökuskipunar (NAW og EAW), sem sundurliðast sem hér greinir:

Útgefnar beiðnir Mál þar sem afhendingu hefur verið hafnað Afturkallaðar beiðnir Óloknar beiðnir
NAW 7 0 2 0
EAW 18 1 2 10


Afhending frá Íslandi – mótteknar NAW og EAW – íslenskir ríkisborgarar
    Frá gildistöku laga nr. 12/2010 og til og með gildistöku laga nr. 51/2016 hefur til dagsins í dag alls verið óskað eftir afhendingu íslensks ríkisborgara frá Íslandi í 15 skipti á grundvelli handtökuskipunar (NAW og EAW), sem sundurliðast sem hér greinir:

Mótteknar beiðnir Mál þar sem afhendingu hefur verið hafnað Afturkallaðar beiðnir Óloknar beiðnir / hinn eftirlýsti finnst ekki
NAW 12 1 3 1
EAW 3 1 2 0