Ferill 830. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1918 — 830. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (gjaldtaka, rafræn vöktun o.fl.).
Frá minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar.
Minni hlutinn tekur undir þær athugasemdir sem fram koma í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hafnasambandsins um málið og við umfjöllun í nefndinni. Eðlilegt væri að hafnir gætu lagt aflagjald, sem er hlutfallsgjald af verðmæti afla, á eldisfisk rétt eins og annan sjávarafla sem um hafnirnar fer, enda er eldisfiski landað með sama hætti og uppsjávarfiski. Í frumvarpinu og greinargerð með því er ekki að finna fullnægjandi rökstuðning fyrir þörf á annarri tegund gjalds en þeirri sem felst í álagningu aflagjalds. Með álagningu aflagjalds væri komið í veg fyrir óvissu um stoð gjaldtökunnar og einnig þá þróun að hafnir fari í samkeppni um álagningu gjaldsins með ófyrirsjáanlegum afleiðingum, til dæmis fyrir hafnir á Vestfjörðum.
Í umsögn Samtaka atvinnulífsins kemur m.a. fram að samtökin taki undir það sjónarmið að skýra þurfi gjaldtökuheimildir hafna til að taka gjald fyrir þjónustu til fiskeldisfyrirtækja. Að gefnu tilefni árétta samtökin hins vegar mikilvægi þess að gjaldtaka verði fyrirsjáanleg og byggð á traustum grunni þannig að fyrirtæki á sviði fiskeldis geti tekið tillit til þess í áætlanagerð sinni. Nauðsynlegt sé að tryggja að hlutlæg viðmið liggi til grundvallar jöfnunar þjónustugjalda á gjaldendur og að gjaldendum verði ekki gert að bera þyngri byrðar en nauðsyn krefur. Minni hlutinn tekur undir framangreinda afstöðu Samtaka atvinnulífsins. Með því að leggja til grundvallar gjaldtökunni hin skýru viðmið aflagjalds er hvort tveggja fullnægt kröfum um fyrirsjáanleika og traustan grunn til áætlanagerðar og að auki tryggt að hafnirnar innheimti þjónustugjald af afurðum sjókvíaeldis eins og af öðrum sjávarafla.
Í umsögn sinni lýsa fulltrúar hinna nýsameinuðu sveitarfélaga Tálknafjarðar og Vesturbyggðar yfir áhyggjum af þeirri óvissu sem það skapar í rekstri hafna að það sé sett í hendur hverrar hafnar fyrir sig að ákvarða á hvaða grunni eldisgjaldið er ákveðið, eins og fram kemur í greinargerð með 6. gr. frumvarpsins. Undir þessar áhyggjur tekur minni hlutinn.
Með því að miða við hlutfallsgjald af verðmæti afurðar njóta hafnirnar með sjókvíaeldisfyrirtækjunum þegar vel gengur í útgerð og axla einnig tekjutap ef illa gengur. Fyrirmyndir að slíkri gjaldtöku má finna í öðrum atvinnugreinum, t.d. stóriðju. Að auki má nefna að nýsmíði hafnarmannvirkja getur varla byggst á gjaldtöku af hluta útgerðarfyrirtækja í landinu. Um slíka tilhögun getur að mati minni hlutans aldrei myndast sátt í samfélaginu.
Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hafnasambandsins kemur einnig fram að mikilvægt sé að hafa í huga að þegar aflagjald var tekið upp á sínum tíma þótti það mikill kostur að greiðslur atvinnulífsins til hafna væru beintengdar heildarverðmæti afla því það myndi búa til betri rekstraraðstæður þar sem aðstæður á markaði lækka aflagjald eða hækka eftir markaðsverði afla. Engin rök hafi komið fram er styðja að annars konar gjald eigi að vera fyrir eldisfisk og eldisseiði. Einnig veki það furðu að meðan skilgreindur er sá rammi sem hafnir hafa við innheimtu aflagjalds þá er engin slíkur rammi settur varðandi eldisgjald og það hefur ekki verið sérstaklega rökstutt hvers vegna eldisgjald eigi að fara eftir öðrum lögmálum en aflagjald. Minni hlutinn gerir þessi orð að sínum.
Með vísan til framangreinds leggur minni hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Við a-lið 6. gr. bætist þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Sé gjaldið innheimt skal það vera minnst 0,7% og mest 3,0% af heildaraflaverðmæti miðað við meðaltal alþjóðlegs markaðsverðs á atlantshafslaxi fyrir þann mánuð sem slátrun fer fram. Stofn til álagningar gjalds skal miða við þyngd afurða eftir slátrun, slægðan fisk. Gjöld samkvæmt þessum staflið skulu greidd af þeim sem rækta eldisfiskinn sem fer um höfn hverju sinni.
Alþingi, 12. júní 2024.
| Þórunn Sveinbjarnardóttir, frsm. | Andrés Ingi Jónsson. | Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir. |