Ferill 931. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.

Þingskjal 1929  —  931. mál.
Framsögumaður.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um skák.

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá mennta- og barnamálaráðuneyti og Skáksambandi Íslands og Hjörvar Stein Grétarsson, stórmeistara í skák.
    Nefndinni bárust þrjár umsagnir sem eru aðgengilegar á síðu málsins á vef Alþingis ásamt minnisblaði frá mennta- og barnamálaráðuneyti.
    Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um skák og styrki til stórmeistara í stað laga um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58/1990, og laga um Skákskóla Íslands, nr. 76/1990, sem tóku gildi árið 1991.

Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
    Eins og fram kemur í umsögn Skáksambands Íslands þá tekur sambandið undir þau sjónarmið sem lágu fyrir við gerð frumvarpsins. Þörf var á endurskoðun og uppfærslu á umgjörð og styrkjakerfi vegna stórmeistara. Með frumvarpi þessu er lagt til breytt fyrirkomulag hvað varðar styrki til þeirra sem hafa náð miklum árangri í skák og þeirra sem stefna á frekari velgengni á alþjóðavísu. Í frumvarpi þessu er fjallað um réttindi og skyldur stórmeistara og efnilegs skákfólks, vinnuframlag þeirra og launagreiðslur úr ríkissjóði. Í umsögn Skáksambands Íslands mælir sambandið með því að frumvarp þetta verði samþykkt óbreytt eða lítið breytt og tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið.

Hugaríþróttin bridds.
    Meiri hlutinn bendir á blómlegt starf í kringum fleiri hugaríþróttir sem Íslendingar hafa einnig náð frábærum árangri í. Dæmi um slíka íþrótt er bridds en Ísland á marga afreksmenn í þeirri íþrótt og hefur briddshreyfingin hér á landi viðhaldið kröftugu starfi sem fjölmargir Íslendingar sækja. Í umsögn Bridgesambands Íslands kemur fram að talið sé að virkir iðkendur bridds hér á landi séu um 20 þúsund. Íslendingar hafa náð mikilli velgengni í bridds á alþjóðavísu, sem dæmi um það má nefna sigur Íslands í heimsmeistarakeppni í bridds árið 1991, Bermúdaskálinni. Ásamt þessu hefur briddshreyfingin lagt aukna áherslu á tómstundastarf í þágu barna- og ungmenna á sviði bridds.
    Í umsögn Bridgesambands Íslands er óskað eftir því að komið verði á laggirnar afrekssjóði fyrir bridds á Íslandi, þ.e. fyrir afreksfólk og efnilega spilara hér á landi sem gætu sótt um stuðning sambærilegan þeim sem fjallað er um í frumvarpi þessu. Meiri hlutinn tekur undir umsögn Bridgesambands Íslands og beinir því til mennta- og barnamálaráðherra að setja á fót starfshóp sem vinni tillögur að kerfi til að styðja við briddsspilara. Menningarlegt hlutverk beggja þessara hugaríþrótta, bridds og skákar, er mikið enda eiga þær sér báðar langa sögu, einkum skáklistin. Hér má þó benda á að um eðlisólíkar íþróttir er að ræða. Bridds er hópíþrótt, þar sem keppendur halda spilum að sér þannig að mótspilarar sjái ekki á spil andstæðinga sinna en áætla út frá upplýsingum frá þeim (sögnum) hvaða spil andstæðingar eru með á hendi og byggja leik sinn á því. Skák er hins vegar einstaklingsíþrótt sem grundvallast á gagnsæi og stöðu taflmanna á skákborðinu, sem er öllum ljós, og byggist á leikjum sem báðir keppendur sjá. Með hliðsjón af framangreindu er æskilegt að skoða stuðning við bridds og briddsspilara sjálfstætt og óháð stuðningi við skáklistina.

Skákkennsla.
    Í umsögn Hjörvars Steins Grétarssonar um frumvarpið er ítrekað mikilvægi skákkennslu fyrir bæði nýliða og þá sem stefna á að ná árangri í íþróttinni. Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi skákkennslu. Skákfærni, eins og hver önnur íþrótt, er að mestu leyti lærður hæfileiki og nauðsynlegt er að í boði sé þjálfun og kennsla frá reynslumeira fólki sem miðlar reynslu sinni og þekkingu til næstu kynslóða. Meiri hlutinn fagnar því að áherslur á rannsóknir og kennslu verði teknar til skoðunar í mennta- og barnamálaráðuneyti í tengslum við vinnu ráðuneytisins við reglugerð um afrekssjóð í skák, verði frumvarpið að lögum.

Efnilegt skákfólk.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið frumvarpsins sem fram koma í greinargerð með því um mikilvægi þess að styrkja efnilegt skákfólk og stuðla á þann hátt að því að það nái frekari árangri í íþróttinni. Núverandi fyrirkomulag einskorðar styrkveitingu við þá sem orðnir eru stórmeistarar en þeir sem eru langt komnir á þeirri vegferð geta ekki hlotið styrk. Með stuðningi við ungt og efnilegt skákfólk samhliða stuðningi við skákfólk sem hefur náð árangri á alþjóðavísu er hægt að stuðla að frekari nýliðun og framþróun starfsins hér á landi.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 14. júní 2024.

Bryndís Haraldsdóttir,
form.
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir,
frsm.
Dagbjört Hákonardóttir.
Bergþór Ólason. Berglind Ósk Guðmundsdóttir. Jódís Skúladóttir.
Líneik Anna Sævarsdóttir. Eyjólfur Ármannsson.