Ferill 905. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1939  —  905. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, nr. 44/2014 (umfjöllun Persónuverndar).

Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.


    Við 2. gr. bætist: í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018.

Greinargerð.

    Lagt er til að við 2. gr. sé bætt skýrri tilvísun til laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, til þess að taka af öll tvímæli um að ábyrgðaraðili skuli taka afstöðu til þess hvort afhending gagna sé í samræmi við þau lög áður en gögn eru afhent.