Ferill 935. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.

Þingskjal 1943  —  935. mál.
Leiðréttur texti.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020 (ábyrgðarmenn og námsstyrkir).

Frá 3. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Ný heildarlög um Menntasjóð námsmanna voru lögfest árið 2020 og í meðförum Alþingis var sett inn bráðabirgðaákvæði um að lögin skyldu endurskoðuð að þremur árum liðnum. Nú er sá tími liðinn og Ríkisendurskoðun hefur lagt mat á þörf fyrir heildarendurskoðun laganna í skýrslu sem gefin var út í desember 2023. Niðurstöður skýrslunnar sýna að mun færri námsmenn nýta sér námsstyrki en gert var ráð fyrir og eftirspurn eftir námslánum hefur sömuleiðis dregist saman. Þá hafa stúdentar bent á annmarka styrkjafyrirkomulagsins og ítrekað að núverandi fyrirkomulag, þar sem námsframvinda er skilyrði þess að hægt sé að ávinna sér námsstyrk, leiði til þess að ójafnræði og ójöfnuður aukist á milli kynslóða og skili sér ekki í hraðari námsframvindu eins og vonir stóðu til. Endurgreiðslufyrirkomulag sem ákveðið var í lágvaxtaumhverfi hefur sætt gagnrýni þar sem efnahagsumhverfi hafi tekið miklum breytingum frá gildistöku laganna. Breyttar aðstæður í efnahagsumhverfi skapi óvissu fyrir námsmenn þar sem vaxtastig er óljóst allan námstímann eða þar til þau útskrifast. Þriðji minni hluti vill einnig vekja athygli á því að endurgreiðslufyrirkomulagið felur í sér talsverða fjárhagslega áhættu fyrir námsmenn sem ekki er á færi allra að undirgangast, eins og fram kemur í skýrslu ríkisendurskoðanda.

Umfjöllun.
Núverandi staða stúdenta gagnvart námslána- og styrkjakerfi.
    Markmið laga um Menntasjóð námsmanna, að tryggja stúdentum jöfn tækifæri til náms með fjárhagsstuðningi, hefur ekki náðst. Grunnframfærsla sem námsmönnum er boðið upp á með námslána- og styrkjakerfi er einfaldlega of lág til að hægt sé að ná endum saman. Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) og Bandalag háskólamanna (BHM) lýsa verulegum áhyggjum af stöðu íslenskra stúdenta í umsögn sinni um málið 2. maí 2024: „Í ljósi yfirgripsmikilla athugasemda frá hagaðilum og þeirra vankanta sem reifaðir eru í skýrslu ráðherra um endurskoðun á Menntasjóði námsmanna er ljóst að tilefni er til viðameiri breytinga og furða samtökin sig á takmörkuðu umfangi þeirra aðgerða sem boðaðar eru í frumvarpinu. Þær breytingar sem eru lagðar til duga hvergi nærri til við að skapa heilbrigt stuðningskerfi fyrir stúdenta og endurspeglar frumvarpið sem liggur hér til umsagnar stefnuleysi í málaflokknum.“
    Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu felast í niðurfellingu ábyrgðarmannakerfis námslána og rýmkun skilyrða til námsstyrks. Þriðji minni hluti tekur heils hugar undir þessar áhyggjur BHM og LÍS en telur að ekki sé einungis um stefnuleysi í málaflokknum að ræða heldur líka skeytingarleysi í garð stúdenta að grípa ekki tafarlaust til aðgerða til að tryggja aðgengi allra að menntun. Það er mat 3. minni hluta að gengið sé of skammt í aðgerðum sem kynntar eru í frumvarpinu.

Niðurfelling ábyrgðarmannakerfis námslána.
    Samkvæmt lánareglum Menntasjóðs námsmanna fyrir skólaárið 2023–2024 kemur fram að ábyrgðar sé krafist ef lánþegi er ekki talinn tryggur lántakandi. Þriðji minni hluti fagnar þeim áformum að afnema eigi ábyrgðarmannakerfi. Það er þó mikið áhyggjuefni að mati 3. minni hluta að þær breytingar er varða ábyrgðarmannakerfi sem lagðar eru til í frumvarpinu leiði til þess að „ótryggir lánþegar“ eigi þess ekki lengur kost að taka lán hjá sjóðnum. Með þessu fyrirkomulagi er skilinn eftir hópur fólks sem er á vanskilaskrá og komið í veg fyrir möguleika þeirra til að taka námslán. Þriðji minni hluti telur ekki nægjanlegt að undanþágur frá þessu séu útfærðar í úthlutunarreglum eins og segir í breytingartillögu meiri hlutans. Nauðsynlegt er að festa undanþágur í lög til að tryggja aðgengi ótryggra lánþega að námslánum. Í ljósi þess að tilgangur Menntasjóðs námsmanna er að gera öllum kleift að stunda háskólanám, óháð fjárhagslegri stöðu, þykir 3. minni hluta eðlilegra að falla frá þeirri kröfu að fjárhagsstaða viðkomandi lánþega þurfi að vera traust þegar námslán er tekið. Þannig er hægt að styrkja félagslega stöðu þessa hóps og tryggja betur stöðu þeirra gagnvart námslánakerfinu. Bandalag háskólamanna og Landssamtök íslenskra stúdenta telja að „afnema ætti öll skilyrði um ábyrgðir“ og tekur 3. minni hluti undir það enda er sjóðurinn hugsaður sem félagslegt jöfnunartæki.

Rýmkun á skilyrðum fyrir námsstyrki.
    Eins og áður hefur komið fram hafa færri nýtt sér námsstyrkjakerfið en vonir stóðu til. Öllum má vera ljóst að úrræði sem ekki er sótt í virkar ekki sem skyldi. Námsstyrkjakerfi virkar ekki ef námsmenn sjálfir geta ekki nýtt það. Þær úrbætur sem lagðar eru til í frumvarpinu, að námsmanni sé heimilt að skipta um námsleið einu sinni á námstíma án þess að það hafi áhrif á rétt hans til námsstyrks, eru jákvæðar í grunninn. Það er mjög jákvætt að stúdentum sé gefið meira svigrúm til að skipta um skoðun. Þriðji minni hluti telur þó að kerfið hafi ekki verið mótað samkvæmt þörfum námsmanna heldur séu þeim settar þröngar skorður sem gætu leitt til þess að þau veigri sér við að fylgja eigin sannfæringu og ástríðu. Það er mikilvægt að námsmenn hafi ráðrúm til að skipta um skoðun oftar en einu sinni og að sú ákvörðun bitni ekki á möguleikum þeirra til að nýta sér námsstyrkjakerfi. Þrátt fyrir að háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, sem ber ábyrgð á málaflokknum, sýni með þessu frumvarpi ákveðna viðleitni til að veita stúdentum meira svigrúm við ákvörðunartöku sína er krafa um námsframvindu of rík. Að mati 3. minni hluta ætti frekar að leggja áherslu á brautskráningu stúdenta heldur en námsframvindu innan ákveðinna tímamarka. Ofuráhersla ráðherra á sjálfbærni Menntasjóðs námsmanna og hagræðingu innan kerfis með því að leggja stein í götu stúdenta er skýrt merki um að ráðherra sjái ekki þá fjárfestingu sem felst í því að styrkja fólk raunverulega til náms og tryggja aðgengi allra að menntun óháð efnahagslegri og félagslegri stöðu. Sú skammsýni verður samfélaginu dýrkeypt til lengri tíma.

Aðgerðir núna, ekki seinna.
    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti hefur gengist við því að núverandi fyrirkomulag námslána- og styrkjakerfis hafi hvorki staðið undir væntingum ráðuneytisins né stúdenta og að heildarendurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna sé nauðsynleg. Þrátt fyrir það virðist ráðuneytinu ekki liggja á að gera þær nauðsynlegu breytingar sem þörf er á og stúdentar hafa ítrekað kallað eftir. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur í ofanálag lofað stúdentum að breytinga sé að vænta en hvenær það verður liggur ekki fyrir. Í viðbótarumsögn Landssamtaka íslenskra stúdenta 2. maí 2024 reifa samtökin tillögur að breytingum sem raunsætt væri að hrinda strax í framkvæmd. Þær breytingar snerta fyrirmynd námsstyrkjakerfisins, hækkun framfærslulána og bætt vaxtakjör. Ekki er eftir neinu að bíða og vel gerlegt að verða við þessum grunnóskum stúdenta samhliða því að endurskoða lögin í heild sinni. Þriðji minni hluti styður stúdenta í baráttu þeirra fyrir bættum kjörum og hvetur ráðuneytið til að flýta aðgerðum í takt við þarfir og ábendingar stúdenta. Stúdentar geta ekki setið lengur á hakanum.

Breytingartillaga 3. minni hluta.
    Að mati 3. minni hluta er í ljósi framangreindrar umfjöllunar gríðarlega mikilvægt að allir lánþegar, ekki aðeins þeir sem teljast tryggir, hafi aðgang að námslánum og að lítill hópur þeirra sem kunna að teljast ótryggir lánþegar verði ekki skilinn eftir. 3. minni hluti leggur fram breytingartillögu þess efnis að skilyrði um að teljast tryggur lánþegi í 2. mgr. 11. gr. laganna verði fellt brott.
    Með hliðsjón af framangreindu leggur 3. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Við 1. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: Orðin „teljist þeir tryggir lánþegar samkvæmt úthlutunarreglum“ í 2. mgr. 11. gr. laganna falla brott.

Alþingi, 18. júní 2024.

Halldóra Mogensen.