Ferill 1161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1952  —  1161. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (Hafnabótasjóður).

Frá 1. minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Fyrsti minni hluti telur mikilvægt að halda því til haga að þessu frumvarpi er fyrst og fremst ætlað að mæta vangetu meiri hlutans til að ljúka vinnu við samgönguáætlun annað árið í röð.
    Þrátt fyrir að tillaga til endurskoðaðrar þingsályktunar um samgönguáætlun hafi verið á þingmálaskrá innviðaráðherra á 153. löggjafarþingi náði meiri hlutinn ekki að leggja hana fram þingveturinn 2022–2023. Það var því nokkur eftirvænting þegar tillagan leit dagsins ljós á yfirstandandi löggjafarþingi (315. mál) og mælt var fyrir henni í október 2023. Eftir umsagnarferli og gestakomur undir lok árs 2023 féll málið í þagnargildi hjá fulltrúum stjórnarflokkanna, þrátt fyrir ítarlegar áskoranir sveitarstjórna og hagsmunaaðila víðs vegar um land um að ljúka umfjölluninni. Það var ekki fyrr en stuttu fyrir þinglok að gestakomur hófust á ný og gaf það væntingar um að meiri hlutinn hygðist afgreiða málið. Allt kom fyrir ekki, eftir mikinn vandræðagang bókaði meiri hlutinn á fundi umhverfis- og samgöngunefndar föstudagskvöldið 14. júní að hann hygðist ekki ljúka afgreiðslu samgönguáætlunar á þessu þingi. Í stað þess að nýta þá átta mánuði sem nefndin hafði samgönguáætlun til umfjöllunar kaus meiri hlutinn að sigla henni í strand.
    Það frumvarp sem hér er til umfjöllunar er tilkomið vegna þessa vandræðagangs meiri hlutans. Tómarúmið sem myndast við það að fallið hefur verið frá afgreiðslu samgönguáætlunar er þvílíkt að það þarf sérstaka lagasetningu til að fylla upp í það. Telur 1. minni hluti það vera með ólíkindum að meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar þurfi að fá lög samþykkt til að breiða yfir eigið verkleysi í samgöngumálum.

Alþingi, 19. júní 2024.

Andrés Ingi Jónsson.