Ferill 953. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1963  —  953. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um afturköllun dvalarleyfis og brottvísun erlendra ríkisborgara.


     1.      Eru ákvæði í íslenskum lögum um niðurfellingu tímabundins og ótímabundins dvalarleyfis erlendra ríkisborgara sambærileg ákvæðum í löggjöf annarra norrænna ríkja?
    Löggjöf ríkja um útgáfu dvalarleyfa er fjölbreytt og ítarleg. Þannig geta ríki til dæmis verið með mismunandi tegundir dvalarleyfa og skilyrði þess að fá dvalarleyfi útgefið. Af þessu leiðir einnig að ólíkar reglur geta gilt á milli ríkja um afturköllun dvalarleyfa. Þá eru Finnland, Danmörk og Svíþjóð aðilar að Evrópusambandinu sem getur falið í sér sérstakar efnisreglur. Til að svara þessari fyrirspurn með óyggjandi hætti þyrfti að rýna umfangsmikla löggjöf allra hinna Norðurlandanna um dvalarleyfi og bera saman kerfi hvers ríkis. Að mati ráðuneytisins er þessi úrvinnsla það viðamikil að ekki er unnt að svara fyrirspurninni með einföldum hætti og í stuttu máli í samræmi við 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.
    Að þessu sögðu bendir ráðuneytið á að í 59. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, er kveðið á um afturköllun dvalarleyfis og ótímabundins dvalarleyfis hér á landi. Líkt og þar greinir er Útlendingastofnun heimilt að afturkalla dvalarleyfi og ótímabundið dvalarleyfi ef útlendingur hefur við umsókn, gegn betri vitund, veitt rangar upplýsingar eða leynt atvikum sem hefðu getað haft verulega þýðingu við leyfisveitinguna, ekki eru lengur uppfyllt skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis eða ótímabundins dvalarleyfis eða það leiðir að öðru leyti af almennum stjórnsýslureglum. Að meginstefnu til eru hin Norðurlöndin með sambærilegar almennar afturköllunarheimildir.

     2.      Eru ákvæði í íslenskum lögum um brottvísun erlendra ríkisborgara sambærileg ákvæðum í löggjöf annarra norrænna ríkja?
    Ákvæði í lögum um brottvísun erlendra ríkisborgara er sömuleiðis fjölbreytt og ítarleg. Þannig geta mismunandi reglur átt við eftir því hvort um þriðja ríkis borgara í löglegri dvöl er að ræða, þriðja ríkis borgara í ólögmætri dvöl eða EES/EFTA-borgara. Þá eru einnig til brottvísunarheimildir vegna útlendinga sem eru án dvalarleyfis, svo sem vegna afbrota, öryggis ríkisins eða almannahagsmuna. Enn fremur eru ítarleg ákvæði um vernd tiltekinna hópa gegn brottvísun, takmarkanir við ákvörðun um brottvísun, áhrif brottvísunar og endurkomubönn. Íslensk löggjöf hvað þetta varðar er flókin og nær til fjölmargra atriða. Að mati ráðuneytisins er þessi spurning sama marki brennd og spurning í 1. tölul. að því leyti að úrvinnsla hennar er það viðamikil að ekki er unnt að svara fyrirspurninni með einföldum hætti og í stuttu máli í samræmi við 57. gr. laga um þingsköp Alþingis. Að þessu sögðu verður þó með almennum hætti fjallað um brottvísun erlendra ríkisborgara.
    Löggjöf aðildarríkja Schengen-samstarfsins um skilyrði fyrir brottvísun þriðja ríkis borgara í ólögmætri dvöl er reist á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 115/2008 um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísunum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna. Hér á landi er tilskipunin þekkt sem brottvísunartilskipunin og var hún innleidd í íslensk lög árið 2014. Í skýrslu föstu eftirlitsnefndarinnar á vettvangi Schengen-samstarfsins frá árinu 2017 voru gerðar ýmsar athugasemdir við innleiðingu tilskipunarinnar hér á landi, m.a. um að löggjöf og framkvæmd hérlendis væri ekki í fullu samræmi við þær reglur sem Schengen-samstarfið gerir kröfu um. Þessar athugasemdir voru ítrekaðar í úttekt sömu nefndar sem fór fram árið 2022. Til að bregðast við þessum athugasemdum og tryggja að löggjöf og framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við brottvísunartilskipunina var lögum um útlendinga breytt með lögum nr. 136/2022, um landamæri. Með hliðsjón af þeim breytingum sem þar voru gerðar telur ráðuneytið að íslensk lög um brottvísanir þriðja ríkis borgara sem dveljast hér ólöglega séu að meginstefnu til sambærileg löggjöf annarra aðildarríkja Schengen-samstarfsins, þ.m.t. hinna Norðurlandanna. Ísland sker sig þó úr þegar kemur að lokuðum búsetuúrræðum en slík úrræði eru rekin á öllum hinum Norðurlöndunum.
    Hvað varðar brottvísun EES/EFTA-borgara eru aðildarríki Evrópusambandsins og EFTA-ríkin bundin af tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/38 um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsrar farar og dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna. Tilskipunin kveður m.a. á um brottvísunarheimildir EES/EFTA-borgara en þær reglur hafa verið útfærðar í 95.–97. gr. laga um útlendinga. Eðli málsins samkvæmt gilda sömu reglur hvað þetta varðar hjá hinum aðildarríkjunum.

     3.      Ef framangreind ákvæði eru ekki sambærileg ákvæðum í löggjöf annarra norrænna ríkja, hefur ráðherra hug á að leggja til breytingar sem eru til þess fallnar að færa íslenska löggjöf nær löggjöf annarra norrænna ríkja?
    Ráðuneytið er ávallt með til skoðunar löggjöf og þróun málaflokksins innan Evrópu, einkum hjá hinum Norðurlöndunum, til að meta hvort tilefni sé til að breyta löggjöf eða framkvæmd hér á landi. Í tengslum við framlagningu frumvarps til breytinga á lögum um útlendinga næsta þingvetur eru til skoðunar sambærileg álitaefni og fyrirspurnin lýtur að, svo sem heimildir gildandi laga til afturköllunar alþjóðlegrar verndar.