Ferill 880. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1969 — 880. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða).
(Eftir 2. umræðu, 20. júní.)
1. gr.
Á eftir 1. málsl. 3. mgr. 36. gr. b laganna koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þá er lífeyrissjóði heimilt að binda allt að 5% heildareigna í hlutabréfum og skuldabréfum, sem ekki eru skráð á skipulegum markaði, útgefnum af félögum þar sem meginstarfsemin er langtímaleiga íbúðarhúsnæðis til einstaklinga. Undir 2. málsl. falla jafnframt hlutir eða hlutdeildarskírteini sjóða um sameiginlega fjárfestingu, sem fjárfesta eingöngu í hlutabréfum og skuldabréfum útgefnum af slíkum félögum, og skuldabréf sem sjóðir um sameiginlega fjárfestingu gefa út til að fjármagna slík félög.
2. gr.
Við 8. mgr. 36. gr. c laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Einnig er lífeyrissjóði heimilt að eiga stærri hluta en 20% í félagi þar sem meginstarfsemin er langtímaleiga íbúðarhúsnæðis til einstaklinga eða í hlutum eða hlutdeildarskírteinum sjóða um sameiginlega fjárfestingu, sem fjárfesta eingöngu í hlutabréfum og skuldabréfum útgefnum af slíkum félögum. Hlutur lífeyrissjóðs skv. 2. málsl. má þó ekki vera stærri en 50% í slíku félagi eða sjóði um sameiginlega fjárfestingu.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.