Ferill 689. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1974 — 689. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (geymsla koldíoxíðs).
(Eftir 2. umræðu, 20. júní.)
1. gr.
Þessi kafli gildir um geymslu koldíoxíðs í jörðu á yfirráðasvæði Íslands, þ.e. á landi, innsævi, í landhelgi, efnahagslögsögu og á landgrunni.
2. gr.
3. gr.
a. 3. mgr. orðast svo:
Í þeim tilvikum þegar könnun þarf að fara fram hefur handhafi könnunarleyfis einkarétt til könnunar á hugsanlegum geymslugeymi, auk forgangsréttar til starfsleyfis til geymslu á sama svæði að því tilskildu að könnun á svæðinu sé lokið, að öll skilyrði könnunarleyfis séu uppfyllt og að sótt sé um starfsleyfi til geymslu á gildistíma könnunarleyfis. Sækja skal um könnunarleyfi hjá Umhverfisstofnun.
b. Í stað orðanna „á meðan könnun stendur yfir“ í 4. mgr. kemur: á gildistíma könnunarleyfis.
c. 5. mgr. fellur brott.
4. gr.
Koldíoxíðsstraumur skal vera að langmestu leyti úr koldíoxíði. Af þeim sökum má ekki bæta í hann úrgangi eða öðru efni í því skyni að farga úrganginum eða öðru efni. Koldíoxíðsstraumur getur þó innihaldið tilfallandi tengd efni úr uppsprettunni, fönguninni eða niðurdælingarferlinu og snefilefni sem bætt er í hann til að auðvelda vöktun og sannprófun á flæði koldíoxíðs. Styrkur allra tilfallandi og viðbættra efna skal ekki vera svo hár að hann:
a. hafi skaðleg áhrif á áreiðanleika geymslusvæðis eða tengdra innviða,
b. stofni umhverfinu eða heilbrigði fólks í hættu,
c. brjóti í bága við kröfur annarrar viðeigandi löggjafar.
Rekstraraðili skal sjá til þess að innihald koldíoxíðsstraums sé efnagreint og að fram fari áhættumat sem staðfesti að mengunarstig koldíoxíðsstraums sé í samræmi við kröfur 1. mgr.
5. gr.
6. gr.
a. 1. tölul. orðast svo: Öll tiltæk gögn benda til þess að koldíoxíð sé fullkomlega og varanlega aflokað.
b. Við bætist nýr töluliður sem verður 2. tölul., svohljóðandi: Lágmarkstími sem Umhverfisstofnun ákvarðar er liðinn. Sá lágmarkstími skal ekki vera styttri en 20 ár nema unnt sé að sýna fram á að koldíoxíð sé fullkomlega og varanlega aflokað áður en því tímabili lýkur.
c. Í stað „33. gr. j“ í 2. tölul. kemur: 2. mgr. 33. gr. k.
d. Orðin „og geymslu“ í 3. tölul. falla brott.
7. gr.
a. 2. mgr. orðast svo:
Aðgangur sem um getur í 1. mgr. skal veittur á gagnsæjan hátt og án mismununar. Aðgangur skal veittur með sanngjörnum hætti án hindrana og hliðsjón skal höfð af:
a. geymslugetu sem eðlilegt er að sé tiltæk á geymslusvæði,
b. markmiði íslenskra stjórnvalda samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum um samdrátt í losun koldíoxíðs og reglum um föngun og geymslu koldíoxíðs í jörðu,
c. nauðsyn þess að synja um aðgang í tilvikum þegar tækniforskriftir eru ósamrýmanlegar og erfitt er að bæta úr,
d. nauðsyn þess að virða tilhlýðilega rökstuddar og eðlilegar þarfir eiganda eða rekstraraðila geymslusvæðis eða flutningskerfis og hagsmuni allra annarra sem nota geymsluna eða netið eða viðkomandi vinnslu- eða meðhöndlunarbúnað og kunna að verða fyrir áhrifum.
b. 3. mgr. fellur brott.
8. gr.
9. gr.
Samstarf yfir landamæri.
10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. j laganna:
a. Í stað orðanna „tryggingu fyrir allri starfsemi á geymslusvæði“ í 1. mgr. kemur: fjárhagslega tryggingu fyrir allri starfsemi á geymslusvæði eða jafngildi tryggingar.
b. 2. mgr. orðast svo:
Rekstraraðili skal, áður en ábyrgð á geymslusvæði flyst til Umhverfisstofnunar, greiða fyrirsjáanlegan kostnað við vöktun þar til koldíoxíð er fullkomlega og varanlega aflokað. Miða skal við áætlaðan kostnað af vöktun í a.m.k. 30 ár.
11. gr.
12. gr.