Ferill 459. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1975 — 459. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Berglindi Hörpu Svavarsdóttur um fráflæðisvanda á Landspítala.
1. Hversu margir einstaklingar sem eru inniliggjandi á Landspítala hafa þegar lokið meðferð en bíða eftir öðru úrræði?
Þann 2. apríl 2024 lágu alls 53 einstaklingar á Landspítala, sem tilbúnir eru til útskriftar og eru með samþykkt færni- og heilsumat. Af þeim liggja 15 einstaklingar á bráðadeildum spítalans, aðrir liggja á Landakoti. Fjöldinn er breytilegur milli daga, sem helgast af innskriftum og útskriftum.
2. Hvaða aðgerðir hefur markvisst verið farið í á síðustu tveimur árum til þess að mæta fráflæðisvanda á Landspítala?
Í samvinnu við stjórnendur heilbrigðisstofnana hefur verið gripið til ýmissa aðgerða til að auka getu heilbrigðiskerfisins til að mæta þeim áskorunum sem fylgja árstíðabundnum álagstoppum, þ.m.t. fráflæði Landspítala.
Meðal þeirra verkefna sem unnið hefur verið að eru eftirfarandi þættir sem tengjast bættu skipulagi flæðis innan Landspítala.
a. Ferli bráðveikra einstaklinga innan lyflækninga- og bráðaþjónustu hefur verið rýnt með tilliti til umbóta.
b. Fyrirkomulag innlagna sjúklinga frá bráðamóttökunni í Fossvogi hefur verið endurskilgreint.
c. Opnuð hefur verið bráðadagdeild lyflækninga með það að leiðarljósi að leysa minni háttar veikindi með dagdeildarþjónustu sem og að flýta fyrir útskriftum.
d. Fjarþjónusta lyflækninga var komið á fót en þar starfa hjúkrunarfræðingar og læknar sem taka við símtölum frá tilvísandi læknum á Læknavakt, heilsugæslum, öldrunarstofnunum og sjúkraflutningafólki. Markmiðið er að draga úr aðflæði á bráðamóttöku og meta hvaða farvegur henti einstaklingum best og veita ráðgjöf.
e. Verkefni er í gangi sem miðar að því að efla dag- og göngudeildarþjónustu Landspítala til að draga úr þörf fyrir innlagnir og fylgja eftir meðferð sjúklinga eftir útskrift. Jafnframt er því ætlað að bæta leiðir fyrir aðrar stofnanir til að vísa sjúklingum í viðeigandi úrræði fremur en að senda sjúklinga á bráðamóttöku.
f. Verkefni sem beinist að því að rýna ferli útskrifta á Landspítala stendur yfir með það að markmiði að bæta skilvirkni og minnka þannig tíma sem starfsfólk ver í útskriftir.
g. Þróað hefur verið mælaborð sýkinga til að auðvelda afléttingu og eftirlit með einangrun sjúklinga vegna sýkinga.
h. Stofnað hefur verið öldrunarteymi sem starfar við mat og meðferð aldraðra á bráðamóttöku með það að markmiði að efla þjónustu við aldraða og fyrirbyggja versnun veikinda þeirra.
i. Fjölbreyttum rýmum fyrir eldra fólk fjölgað í samvinnu heilbrigðisstofnana, þjónustuveitenda og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Í heilbrigðisráðuneytinu hefur verið lögð aukin áhersla á samvinnu milli Landspítala og sjúkrasviða heilbrigðisstofnana Suðurlands, Suðurnesja og Vesturlands í þeim tilgangi að létta undir með spítalanum þegar á þarf. Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja var opnuð ný og vel útbúin bráðamóttaka í október á síðasta ári sem hefur aukið getu stofnunarinnar til að sinna bráðaþjónustu á svæðinu og dregið þannig úr þörf fyrir flutning sjúklinga yfir á Landspítala. Í lok árs 2023 var svo opnuð ný 19 rýma hjúkrunardeild á stofnuninni sem m.a. hefur verið nýtt af einstaklingum sem lokið hafa meðferð á Landspítala og bíða annarra úrræða.
Í samvinnu með Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur Landspítali fengið forgang að 40 hjúkrunarrýmum á Móbergi, hinu nýja hjúkrunarheimili í Árborg.
Heilbrigðisráðuneytið hefur markvisst unnið að því að auka aðgengi og framboð að fjölbreyttum úrræðum og rýmum fyrir eldra fólk. Endurhæfingarrýmum á Eir var fjölgað um 20 rými (úr 24 í 44). Rýmin eru ætluð fyrir einstaklinga sem flytjast beint af Landspítala og þurfa á fjölþættri endurhæfingu að halda.
Í samvinnu með Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og öðrum rekstraraðilum hjúkrunarheimila hefur biðrýmum sem Landspítali hefur í forgangi verið fjölgað verulega en þau eru nú alls 92, auk biðdeildar á Landakoti. Þannig hafa hjúkrunarheimili allt frá Borgarnesi austur á Klaustur tekið þátt í því verkefni að létta á útskriftarvanda Landspítala.
Heilbrigðisráðuneytið hefur einnig lagt áherslu á aðgerðir sem ætlað er að draga úr aðflæði að Landspítala. Í september 2022 voru opnuð 39 endurhæfingarrými í Gamla Sólvangi. Þar geta einstaklingar sem fá heimahjúkrun fengið fjögurra til sex vikna endurhæfingu með það að markmiði að styðja þá til lengri búsetu í heimahúsi og draga úr líkum á innlögn á spítala. Til að styðja við markmið um rétta þjónustu á réttum stað í heilbrigðiskerfinu var þjónusta, vegvísun og ráðgjöf um heilsutengd málefni í síma 1700 og netspjalli stóraukin og samhliða farið í kynningarátak á þjónustunni. Þjónusta heimahjúkrunar var efld með 300 millj. kr. viðbótarfjárveitingu á árinu 2023.
3. Hvaða skref hafa verið tekin á vegum ráðuneytisins til að bregðast við niðurstöðu sem alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið McKinsey setti fram í skýrslu í mars 2022 um að ef ekkert yrði gert yrði þörfin fyrir legurými árið 2040 u.þ.b. helmingi meiri en spítalinn gæti annað?
Fjölmörg skref hafa verið tekin á undanförnum tveimur árum í samvinnu heilbrigðisráðuneytisins, Landspítala og annarra þjónustuveitenda til að auka skilvirkni og getu heilbrigðiskerfisins til að mæta vaxandi eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu.
Aukin áhersla hefur verið lögð á dag- og göngudeildarþjónustu spítalans en samkvæmt starfsemistölum spítalans fjölgaði heimsóknum á dag- og göngudeildir um 7,7% á árinu 2023 samanborið við árið 2022. Þá hafa stafræn samskipti aukist til muna, eða um 7%, á sama tímabili en stafvæðing í heilbrigðisþjónustu er einn lykilþátturinn í því að okkur takist að mæta sívaxandi eftirspurn eftir þjónustu.
Í skýrslu McKinsey er dregið fram að tækifæri séu í aukinni nýtingu á skurðstofum Landspítala og hefur sérstök áhersla verið lögð á að bæta þá nýtingu, m.a. með þeim hvötum sem felast í innleiðingu á þjónustutengdri fjármögnun í auknum mæli. Á síðasta ári voru stór skref stigin við þá innleiðingu og má sjá afar jákvæð þróun á skurðsviði Landspítala þar sem framkvæmdum skurðaðgerðum fjölgaði um tæplega 8% milli áranna 2022 og 2023 og þar af tvöfaldaðist hlutfall dagdeildaraðgerða milla áranna.
Markvisst hefur verið unnið að því að skilgreina betur lögbundið hlutverk Landspítala sem þriðja stigs háskólasjúkrahús fyrir allt landið og efla stofnunina til að sinna þeim verkefnum sem lúta að hlutverki hennar. Til að styrkja stöðu og hlutverk Landspítala ásamt því að styðja við stjórnendur Landspítala lagði heilbrigðisráðherra til breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og með lögum nr. 44/2022 var fært inn nýtt ákvæði um skipan stjórnar á Landspítala. Á grundvelli laganna skipaði ráðherra stjórn á Landspítala í júlí 2022. Þann fyrsta janúar 2023 tók í gildi nýtt skipurit á Landspítala sem byggist á ítarlegri greiningu stjórnenda sem unnin var í samstarfi við stjórn, fagráð og utanaðkomandi ráðgjafa. Megináherslan í nýju stjórnskipulagi er að styrkja klíníska starfsemi spítalans út frá lögbundnu hlutverki með því að færa aukið umboð og ákvörðunarvald nær framlínu þar sem þjónustan er veitt. Með nýju skipuriti var sett á stofn skrifstofa þróunar undir stjórn framkvæmdastjóra þróunar og fær það hlutverk, í takt við þær áherslur sem birtast í skýrslu McKinsey, að þróa starfsemi spítalans með áherslu á aukna stafvæðingu, nýtingu gagna og nýsköpun ásamt því að efla þjónustu dag- og göngudeilda.
Skipulag heilbrigðisþjónustunnar í landinu er í stöðugri þróun í takt við heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Þar er lögð sérstök áhersla á að þjónustan sé veitt á réttu þjónustustigi. Í samvinnu við stjórnendur Landspítala er stöðugt verið að meta þau verkefni sem spítalinn sinnir með hliðsjón af lögbundnu hlutverki hans sem eina þriðja stigs háskólasjúkrahús landsins. Í þeirri vinnu hafa ákveðin verkefni, sem Landspítalinn sinnti áður, verið færð á viðeigandi þjónustustig. Í því samhengi má nefna rekstur 40 biðrýma á Vífilsstöðum en nýr þjónustuveitandi tók við rekstri þeirra 1. janúar 2023 og gaf spítalanum færi til að efla öldrunarþjónustuna á Landakoti.
Í ráðuneytinu hefur verið unnið að því að hraða uppbyggingu hjúkrunarrýma í takt við þörf en starfshópur heilbrigðisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis fékk það verkefni að endurskoða núverandi fyrirkomulag fasteigna hjúkrunarheimila með það að leiðarljósi að auka skilvirkni, framkvæmdahraða og hagkvæmni við uppbyggingu hjúkrunarheimila ásamt því að draga úr fjárbindingu ríkisins. Starfshópurinn skilaði skýrslu og tillögum í upphafi árs sem verið er að vinna að í ráðuneytunum.
Þær áskoranir sem heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir í ljósi lýðfræðilegrar þróunar sem skýrsla McKinsey dregur fram kallar á fjölbreyttar aðgerðir og úrræði. Samhliða fjölgun hjúkrunarrýma þá hefur til að mynda heimahjúkrun verið efld með auknu fjármagni og endurhæfingar- og dagdvalarrýmum fjölgað í kerfinu. Þá er unnið að innleiðingu aðgerðaáætlunar um þjónustu við eldra fólk sem kallast Gott að eldast og var samþykkt á Alþingi 10. maí 2023. Þar eru settar fram 19 aðgerðir sem miða að því að samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu, auka aðgengi að dagdvölum og skammtímainnlögnum, og annarri þeirri þjónustu sem eykur líkur á því að eldra fólk geti búið sem lengst á eigin heimili með fjölbreyttri og samþættri þjónustu, í takt við áherslu stjórnvalda.
4. Hvaða skref hafa verið stigin á síðustu tveimur árum í þá átt að efla víðtækari heimaþjónustu og fleiri sveigjanleg og fjölbreytt úrræði svo að einstaklingar geti útskrifast heim í eigið húsnæði með viðeigandi þjónustu?
Undanfarið hefur verið unnið markvisst að því að fjölga dagdvalarrýmum. Á vormánuðum var 50 rýma dagdvöl opnuð að Höfðabakka 9 í Reykjavík. Þar er gert ráð fyrir að opnunartími verði frá átta að morgni til átta að kvöldi.
Haustið 2022 var gerður samningur við Heilsuvernd um 30 stuttinnlagnarrými á Vífilsstöðum. Þar geta þeir einstaklingar fengið þjónustu sem þurfa þjónustu allan sólarhringinn, þjónustu sem hægt er að sinna utan sjúkrahúsa.
Í upphafi árs 2023 var heimahjúkrun á landsvísu styrkt með 300 millj. kr. auknu fjármagni, auk þess kom inn varanleg 2 milljarða kr. viðbótarfjárveiting á fjárlögum 2023 til að styrkja heilsugæsluþjónustu á landsvísu. Þessi framlög hafa það að markmiði að styðja við sjálfstæða búsetu, sérstaklega meðal eldra fólks. Í því samhengi hefur verið lögð aukin áhersla á teymisvinnu innan heimahjúkrunar, þar sem þverfagleg teymi vinna m.a. að endurhæfingu í heimahúsum.
Enn fremur ákvað heilbrigðisráðherra í upphafi árs að ráðstafa 30 millj. kr. aukalega til Heimaþjónustu Reykjavíkur til að tryggja fólki sem er heimilislaust og með flóknar þjónustuþarfir betra aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.
Árin 2021 og 2022 var ákveðið að efla notkun velferðartækni í heimahjúkrun, með fjárframlagi sem nam 500 millj. kr. Þetta fjármagn var notað til að innleiða nýjar lausnir eins og lyfjaróbóta og fjarsamtöl sem stuðlar að aukinni skilvirkni og gæðum í heimahjúkrun.
Árið 2021 var öldrunarteymið SELMA stofnað hjá heimaþjónustu Reykjavíkurborgar með sérstökum samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Teymið sinnir sérhæfðri þjónustu við aldraða í heimahúsum og veitir ráðgjöf og stuðning til starfsfólks heimahjúkrunar. Árið 2022 fékk Heimahjúkrun höfuðborgarsvæðisins 120 millj. kr. til að sinna sérhæfðri heimahjúkrun.
Endurhæfing gegnir veigamiklu hlutverki til að styðja við sjálfstæða búsetu. Í september 2022 voru opnuð 39 endurhæfingarrými í Gamla Sólvangi þar sem skjólstæðingar heimahjúkrunar fá fjögurra til sex vikna endurhæfingu með það að markmiði að styðja þá til lengri búsetu í heimahúsi. Þá var endurhæfingarrýmum á Eir einnig fjölgað úr 24 í 44 en rýmin eru ætluð fyrir einstaklinga sem flytjast beint af Landspítala og þurfa á fjölþættri endurhæfingu að halda til að geta snúið aftur í sjálfstæða búsetu.
Þá er unnið að innleiðingu á aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk sem fengið hefur nafnið Gott að eldast og er samþættingarverkefni á ábyrgð heilbrigðisráðuneytisins og félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins sem unnið er í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Landssamband eldri borgara og aðra hagaðila. Þar er lögð áhersla á aðgerðir sem styðji við búsetu fólks á eigin heimili, svo sem heimaendurhæfingarteymi, eflingu dagdvala og þróun stuttinnlagna.
5. Hvaða áform eru til staðar til að fjölga hjúkrunarrýmum á næstu árum í því skyni að mæta stórum hluta fráflæðisvandans?
Árlega er lögð fram framkvæmdaáætlun til fimm ára um byggingu og endurnýjun hjúkrunarrýma. Ákvörðun um hvar skuli byggt eða endurbætt helgast af þörf svæðisins fyrir hjúkrunarrými. Þegar staðan í hverju heilbrigðisumdæmi er metin er tekið mið af reiknaðri þörf fyrir slík rými í hverju heilbrigðisumdæmi sem byggist á mannfjöldaspám, aldurssamsetningu, dvalartíma íbúa hjúkrunarheimila og lengd biðtíma eftir hjúkrunarrými. Framkvæmdaáætlun um byggingu hjúkrunarrýma til ársins 2026 liggur fyrir en því miður hefur borið á töfum á framkvæmdum við byggingu nýrra hjúkrunarheimila sem eru á framkvæmdaáætlun. Starfshópur fjármála- og efnahagsráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis fékk það verkefni að endurskoða fyrirkomulag fasteigna hjúkrunarheimila með það að leiðarljósi að auka skilvirkni, framkvæmdahraða og hagkvæmni við uppbyggingu hjúkrunarheimila. Starfshópurinn hefur skilað skýrslu og tillögum sem verið er að vinna að í ráðuneytunum í þeim tilgangi að hraða mikilvægri uppbyggingu hjúkrunarrýma í takt við þörf samfélagsins.
Að beiðni heilbrigðisráðherra hefur Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir gert markaðskönnun er lýtur að mögulegri leigu á húsnæði á höfuðborgarsvæðinu sem þegar er til og hentað gæti sem hjúkrunarheimili. Þrjú tilboð bárust sem nú eru til skoðunar, en þar er um að ræða möguleika á um 250 hjúkrunarrýmum.