Ferill 509. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1985  —  509. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.

Frá meiri hluta velferðarnefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá innviðaráðuneyti, Arkitektafélagi Íslands, Alþýðusambandi Íslands, BSRB, Hagsmunasamtökum heimilanna, Byggðastofnun, Hagstofu Íslands, ÖBÍ réttindasamtökum, Landssamtökunum Þroskahjálp, Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins.
    Nefndinni bárust 13 umsagnir auk minnisblaðs frá innviðaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg á síðu málsins á vef Alþingis.
    Með þingsályktunartillögunni er lögð fram heildstæð stefnumótun í húsnæðismálum fyrir árin 2024–2038 ásamt aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028 sem ætlað er að ná fram markmiðum húsnæðisstefnunnar.

Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
    Meiri hlutinn telur tillögu þessa fela í sér jákvæð og mikilvæg skref í átt að því að tryggja húsnæðisöryggi í víðum skilningi. Ekki hefur áður verið lögð fram langtímastefnumótun í málaflokknum og að því leyti markar tillaga þessi tímamót. Með tillögunni verður til skýr stefna um hvernig bregðast eigi við stórauknum íbúafjölda á sama tíma og skortur er á íbúðum. Samhliða því er nauðsynlegt að húsnæðisstefna stuðli að félagslegum og efnahagslegum stöðugleika. Í þeim umsögnum sem bárust við umfjöllun nefndarinnar var lýst almennri ánægju með þær aðgerðir sem lagðar eru til, þótt hagaðilar hafi gert athugasemdir við einstaka þætti tillögunnar.

Gagnasöfn.
    Nefndin fjallaði um húsnæðisgrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem heldur utan um gögn og upplýsingar um húsnæðismál.
    Við umfjöllun nefndarinnar og í umsögn Hagstofu Íslands var bent á nauðsynlega aðkomu stofnunarinnar við uppbyggingu húsnæðisgrunnsins og annarra skráa sem snúa að húsnæðismálum. Í umsögninni vísar stofnunin til 6. gr. laga um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð, nr. 163/2007, þar sem kveðið er á um skyldu stjórnvalda sem afla eða hyggjast afla gagna til meiri háttar tölfræðilegrar vinnslu, til að upplýsa Hagstofuna um störf sín og áform á þessum vettvangi til að tryggja samræmi í verkefnum, aðferðum og vinnubrögðum og að gögnin nýtist sem best til hagskýrslugerðar. Þá skal stjórnvald sem heldur skrár vegna starfsemi sinnar eða hyggst halda slíkar skrár hafa samráð við Hagstofuna um gerð nýrra skráa og endurnýjun eða breytingar eldri skráa til að þær nýtist sem best til hagskýrslugerðar.
    Svo að hægt sé að undirbúa og viðhalda gagnagrunni til að byggja á við gerð mælikvarða og birtingu hagtalna telur meiri hlutinn mikilvægt að tryggja að viðeigandi aðilar hafi þar aðkomu. Hagstofu Íslands er ætlað að nýta stjórnsýslugögn til hagskýrslugerðar sé þess nokkur kostur og er öflun slíkra gagna grundvallaratriði hagskýrslugerðar. Meiri hlutinn telur nauðsynlegt að aðgangur stofnunarinnar að umræddum gögnum sé tryggður, ásamt því að gögnin séu samræmd og fylgi þekktum skilgreiningum.

Skammtímaleiga.
    Nefndin fjallaði um flókna stöðu á húsnæðismarkaði og þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til í því skyni að mæta henni. Fyrir nefndinni kom fram að færst hafi í aukana að einstaklingar festi kaup á íbúðarhúsnæði í þeim eina tilgangi að leigja það út í skammtímaleigu, t.d. til ferðamanna í gegnum millilið. Slíkum íbúðum fjölgi sem hafi áhrif á framboð, með tilheyrandi áhrifum á markaðsverð íbúðarhúsnæðis og húsnæðismarkaðinn í heild.
    Meiri hlutinn leggur áherslu á mikilvægi þess að koma böndum á fjölda slíkra íbúða á markaði og telur brýnt að leitast sé við að draga úr þeim skorti á íbúðarhúsnæði sem hefur verið viðvarandi á þéttbýlissvæðum undanfarin misseri. Meiri hlutinn tekur undir þau markmið sem koma fram í aðgerð 1.7 aðgerðaáætlunar tillögunnar um að íbúðir sem ekki eru nýttar til fastrar búsetu verði frekar nýttar sem slíkar. Í því samhengi bendir meiri hlutinn á að lög nr. 43/2024, sem samþykkt voru á Alþingi hinn 30. apríl sl., um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, eru liður í því að mæta framangreindum vanda.

Aðgerðir til lækkunar byggingarkostnaðar.
    Nefndin fjallaði um framboðsskort á lóðum og ójafnvægi á húsnæðismarkaði, auk þeirra hækkana sem hafa orðið á húsnæðisverði á síðustu árum. Fram kom fyrir nefndinni að ástæður sem liggja þar að baki séu m.a. hækkanir á byggingarkostnaði, efnahagsástæður og óþarfa reglubyrði.
    Meiri hlutinn leggur áherslu á mikilvægi þess að stjórnvöld gæti hófs í kröfum, til að mynda í byggingarreglugerð, og að stjórnsýsluferlar séu skilvirkir, sem næst m.a. með frekari innleiðingu stafrænnar stjórnsýslu. Með því sé hægt að stuðla frekar að lækkun byggingarkostnaðar og hraða byggingarferlinu. Þau sjónarmið endurspeglast í tillögunni, en markmið hennar kveður m.a. á um skilvirkari stjórnsýslu og mannvirkjagerð með bættum rekstrarskilyrðum byggingaraðila. Þá kemur fram í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að unnið verði að því að lækka byggingarkostnað, án þess þó að það sé á kostnað gæða eða algildrar hönnunar. Þar segir einnig að unnið verði að stöðugri uppbyggingu húsnæðis um land allt með einföldun regluverks, félagslegum aðgerðum í gegnum almenna íbúðakerfið, bættri réttarstöðu leigjenda, samvinnu við sveitarfélög og áherslu á að nauðsynlegar upplýsingar um húsnæðismarkað séu aðgengilegar hverju sinni.
    Aðgerðir tillögu þessarar eiga að mati nefndarinnar að miða að lækkun byggingarkostnaðar og telur meiri hlutinn mikilvægt að framkvæmt verði kostnaðarmat á þeim aðgerðum sem hafa það að markmiði. Í því samhengi bendir meiri hlutinn á að á vettvangi innviðaráðuneytis er unnið að samræmdu verklagi varðandi eftirfylgd með stefnum og áætlunum þar sem gert er ráð fyrir reglubundnu stöðumati á framkvæmd áætlana. Meiri hlutinn telur mikilvægt að framangreind sjónarmið verði hluti af þeirri vinnu.

Kolefnislosun.
    Í markmiðum tillögunnar um skilvirkari stjórnsýslu og auknum gæðum íbúða í jafnvægi við umhverfið er lögð áhersla á að kolefnislosun frá íbúðarhúsnæði verði reiknuð út með samræmdum hætti og takmörkuð í samræmi við loftslagsmarkmið stjórnvalda.
    Meiri hlutinn tekur undir það sem fram kemur í greinargerð með tillögunni um vistvæna mannvirkjagerð. Áætlað er að mannvirkjageirinn sé ábyrgur fyrir um 30–40% af heildarkolefnislosun á heimsvísu og mikilvægt er að unnið verði í þágu vistvænni mannvirkjagerðar eins og kostur er. Meiri hlutinn telur þó mikilvægt að slíkar aðgerðir hafi ekki áhrif á gæði mannvirkja eða auki kostnað við byggingu þeirra.

Hlutdeildarlán og almenna íbúðakerfið.
    Markmið aðgerðar 3.7 í aðgerðaáætluninni er að stuðla að fjölgun íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði með því að húsnæðisstuðningur í formi stofnframlaga til almennra íbúða og hlutdeildarlána til íbúðarkaupa nái betur markmiðum sínum og stuðli að sjálfbærni með vistvænni mannvirkjagerð. Meiri hlutinn fjallaði um fyrirkomulag hlutdeildarlána og þau tækifæri sem fólgin eru í nýtingu þeirra til að bæta aðgengi tekjulágra og eignalítilla heimila og heimila með þunga framfærslubyrði að húsnæðismarkaði.
    Hlutdeildarlán tryggja aukin tækifæri fyrir kaupendur sem hefðu annars átt í erfiðleikum við að festa kaup á eigin húsnæði. Fyrir nefndinni var m.a. fjallað um þann hóp sem hefur nýtt sér úrræðið og tekið verðtryggt lán. Fyrir þann hóp hefur skapast umhverfi þar sem höfuðstóll lánsins hefur hækkað sökum hárrar verðbólgu. Það hefur valdið því að eigið fé í eigninni rýrnar, sem kann að orsaka það að sá hópur eigi erfitt með kaup á stærri eignum í framhaldinu.
    Mikilvægt er að árangur af úrræðinu verði kortlagður svo að hægt sé að gera á því nauðsynlegar breytingar til að það skili tilætluðum árangri og að fjármunum sé ráðstafað á ábyrgan hátt. Telur meiri hlutinn tilefni til þess að skoðaður verði mögulegur ávinningur þess að rýmka umfang úrræðisins á þann veg að fleiri samfélagshópar geti notið góðs af því.
    Meiri hlutinn telur að skoða þurfi fýsileika þess að bjóða upp á fleiri lánamöguleika til ólíkra hópa, svo sem eldra fólks og fatlaðs fólks. Meiri hlutinn bendir auk þess á að margt fatlað fólk þarf á húsnæði að halda sem stenst ákveðnar kröfur, t.d. hvað varðar aðgengi og aðstöðu innan íbúðarhúsnæðisins sjálfs. Því geti valmöguleikar þess á markaði reynst talsvert færri en fyrir aðra hópa samfélagsins. Meiri hlutinn telur því rétt að við framkvæmd aðgerðar 3.7 þurfi sérstaklega að skoða möguleika þess að jafna aðgengi fatlaðs fólks að húsnæðismarkaði, m.a. með nýtingu hlutdeildarlána eða annarra lánaflokka þar sem tekið er tillit til þeirra sem fá greiddar örorkubætur. Þá tekur meiri hlutinn undir þá athugasemd sem kemur fram í umsögn Arkitektafélags Íslands, að tryggja þurfi að íbúðir sem byggðar eru með húsnæðisstuðningi séu byggðar þannig að þær skeri sig ekki úr umhverfi sínu. Meiri hlutinn leggur til að ráðuneytið skoði þessi atriði sérstaklega sem og önnur atriði sem lúta að gæðum, þar á meðal birtugæðum, við framkvæmd stefnunnar.

Breytingartillögur.
Aðgerðir vegna íbúða sem ekki eru nýttar til búsetu.
    Í aðgerð 1.5 er lagt til að sveitarfélög fái heimild til að leggja hærri fasteignagjöld á íbúðir sem ekki eru nýttar til búsetu. Með því sé hvatt til þess að íbúðir í þéttbýli sem ekki eru nýttar til búsetu verði nýttar sem slíkar.
    Meiri hlutinn telur slíka aðgerð vera húsnæðismarkaði á þéttbýlum svæðum til bóta. Það liggur fyrir að víða standa íbúðir auðar eða eru notaðar í öðru skyni en til búsetu, á sama tíma og bregðast þarf við íbúðaskorti á húsnæðismarkaði. Í því sambandi telur meiri hlutinn rétt að benda á að fjöldi íslenskra fjölskyldna rekur heimili á tveimur stöðum og er algengt að heimilisfólk eigi lögheimili á öðrum staðnum. Í slíkum tilfellum gefa skráningar til kynna að ekki sé búið í íbúðarhúsnæðinu sem er annað heimili fjölskyldunnar. Leiða má líkur að því að algengt sé að fólk reki heimili á tveimur stöðum vegna náms, aðgangs að heilbrigðisþjónustu eða starfa, ef einn heimilismaður dvelur fjarri heimili sínu hluta úr ári vegna sinna starfa. Fólk sem sækir vinnu um langan veg kemur sér upp íbúð þar sem það dvelur virka daga eða í vinnulotum. Á síðustu árum hefur einnig færst í vöxt að fólk sem hefur tækifæri til að vinna hluta sinna starfa í fjarvinnu komi sér upp öðru heimili í dreifbýli eða minni byggðarkjörnum og getur slík búseta styrkt viðkomandi byggð. Meiri hlutinn áréttar í því sambandi það sem fram kemur í greinargerð með tillögunni, að lagt verði nánara mat á fjölda þeirra íbúða sem nýttar eru til annars en búsetu, m.a. íbúða sem nýttar eru sem orlofsíbúðir, undir gististarfsemi eða sem annað heimili, og metin áhrif breyttrar álagningar fasteignagjalda á slíkar íbúðir. Þá bendir meiri hlutinn á að full ástæða er til að kanna hvort útvíkka ætti heimildina til íbúðarhúsnæðis í dreifbýli þar sem við á.
    Meiri hlutinn leggur til breytingu á orðalagi framkvæmdar aðgerðarinnar þannig að ljóst sé að heimildin nái ekki til íbúða fólks sem heldur heimili á tveimur stöðum vegna heilbrigðisþjónustu, náms eða starfa.

Kjarasamningar.
    Eftir að tillaga þessi var lögð fram á Alþingi voru undirritaðir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði. Hinn 7. mars. sl. lögðu ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga fram aðgerðir til að greiða fyrir þeim samningum og styðja við sameiginlegt markmið stjórnvalda og samningsaðila um að leggja grundvöll að vaxandi velsæld, með auknum kaupmætti og lækkun verðbólgu og vaxta. Meðal þeirra aðgerða sem lagðar voru fram voru réttarbætur fyrir leigjendur með breytingum á húsaleigulögum sem stuðli að auknu húsnæðisöryggi með skýrari ramma um ákvörðun leigufjárhæðar og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð.
    Aðgerð 3.5 í aðgerðaáætluninni snýr að því að bæta réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda. Í því skyni er lagt til að lagt verði fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, á grundvelli tillagna starfshóps innviðaráðherra um endurskoðun húsaleigulaga. Það frumvarp hefur þegar verið lagt fram á Alþingi (þskj. 1134, 754. mál).
    Meiri hlutinn leggur til að aðgerðin verði umorðuð og stytt í tillögunni og að vísað verði til framangreindra kjarasamninga og sameiginlegra aðgerða ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nefndin telur rétt að árétta að sú aðgerð er í samræmi við efni nýundirritaðra kjarasamninga.

Einföldun byggingarregluverks.
    Meiri hlutinn telur ljóst að tækifæri séu til að lækka byggingarkostnað með einföldun á byggingarregluverki. Á það sérstaklega við um íbúðarhúsnæði, sem skortur er á. Því leggur meiri hlutinn til breytingu á aðgerð 2.8 á þá leið að í stað þess að einungis sé mælt fyrir um að gæði í mannvirkjagerð skuli bætt með aukinni fræðslu um byggingarregluverkið verði einnig mælt fyrir um að gæði verði bætt með einföldun byggingarregluverksins. Slík einföldun skuli þó ekki koma niður á aðgengi, gæðum og öryggi.

Sveigjanleiki deiliskipulags og einfaldari stjórnsýsla byggingarmála.
    Við byggingu mannvirkja kunna breytingar á deiliskipulagi eða skipulagsskilmálum að valda töfum á framkvæmdum. Slíkar breytingar eru að jafnaði nokkuð þungar í vöfum og tímafrekar. Meiri hlutinn telur að tækifæri séu til staðar til einföldunar og meiri sveigjanleika á núverandi fyrirkomulagi við stjórnsýslu byggingarmála hvað þetta varðar. Meiri hlutinn leggur því til að bætt verði við aðgerð sem kveði á um að ferli við breytingar á deiliskipulagi verði einfaldað og sveigjanleiki aukinn, sem hvetur til nýrra og hagkvæmari lausna í mannvirkjagerð. Það verði þó gert án þess að gerðar verði minni kröfur um umhverfisgæði bygginga, vistspor framkvæmda og tryggt aðgengi.

Skilvirkari flokkun í leyfisveitingakerfum opinberra aðila.
    Meiri hlutinn telur að tækifæri séu til staðar til að hraða framgangi umsókna um byggingarleyfi og framkvæmdaleyfi og greiða leið framkvæmdaraðila að framkvæmdum þegar um smávægilegar athugasemdir opinberra aðila er um að ræða í leyfisveitingaferli, þ.e. þegar umsóknir um framangreind leyfi eru til umfjöllunar og afgreiðslu hjá leyfisveitendum. Til að koma í veg fyrir óþarfatafir á framkvæmdum leggur meiri hlutinn til að innleidd verði ný flokkun í leyfisveitingakerfum opinberra aðila þar sem umsóknir verði flokkaðar eftir mikilvægi og umfangi athugasemda, þ.e. flækjustigi athugasemda og þeirra úrbóta sem gera þarf til að bregðast við þeim á sem skjótastan hátt. Að auki leggur meiri hlutinn til að byggingarfulltrúa verði gert heimilt að gefa út framangreind leyfi með fyrirvörum, sem framkvæmdaraðili skal koma til móts við innan ákveðins frests. Það veitir framkvæmdaraðila heimild til að hefja framkvæmdir fyrr í slíkum tilfellum án þess þó að hann geti virt athugasemdir leyfisveitanda að vettugi á framkvæmdatíma. Leggur meiri hlutinn til að við bætist ný aðgerð í samræmi við framangreint.

Fyrstu kaupendur og einstaklingar sem hafa verið á leigumarkaði til lengri tíma.
    Nefndin fjallaði um stöðu fyrstu kaupenda og þeirra sem lengi hafa verið á leigumarkaði. Telur meiri hlutinn mikilvægt að staða þess hóps verði kortlögð og að leitað verði leiða til að greiða aðgengi hans til kaupa á eigin húsnæði. Meiri hlutinn leggur til að við markmið stefnunnar um húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum bætist nýr liður og að áhersla verði lögð á að þeir einstaklingar sem hafa verið til lengri tíma á leigumarkaði hafi tækifæri til að eignast sitt eigið húsnæði. Þá er lagt til að við bætist mælikvarði um fjölgun fyrstu kaupenda og meðalaldur þeirra, sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðsins.
    Þá leggur meiri hlutinn til nýja aðgerð, með það að markmiði að hærra hlutfall landsmanna búi í eigin húsnæði, hvort sem er vegna stuðnings frá hinu opinbera eður ei. Meiri hlutinn leggur til að kortlagt verði hve margir komist af leigumarkaði á séreignamarkað og hve stór hluti ungs fólks komist inn á húsnæðismarkað á ársgrundvelli í samanburði við fyrri ár með það fyrir augum að greina aðstæður á húsnæðismarkaði og hindranir. Ásamt þessu er lagt til, sem dæmi um leið til að ná markmiðum aðgerðarinnar, að stuðlað verði að uppbyggingu á minna og hagkvæmara húsnæði fyrir hóp fyrstu kaupenda.

Hlutfall umsýslukostnaðar miðað við byggingarkostnað.
    Í stefnunni er m.a. fjallað um skilvirkni í opinberri stjórnsýslu, bætt starfsumhverfi í mannvirkjagerð og rekjanleika íbúðauppbyggingar í jafnvægi við umhverfið. Svo að hægt sé að mæla árangur með þau markmið til hliðsjónar leggur meiri hlutinn til að einnig verði notast við mælikvarða um hlutfall umsýslukostnaðar miðað við byggingarkostnað.

Aðrar breytingar.
    Í sameiginlegri umsögn BSRB og Alþýðusambands Íslands eru gerðar athugasemdir við orðavalið „þá sem standi höllum fæti“ sem fram kemur í 6. lykilviðfangsefni húsnæðisstefnu og víðar. Í umsögninni kemur fram að vissulega séu hópar í viðkvæmri stöðu á húsnæðismarkaði en einnig séu aðrir hópar á húsnæðismarkaði sem þurfa einnig á húsnæðisstuðningi að halda. Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í umsögninni og leggur til orðalagsbreytingu þar að lútandi til að ná utan um þann hóp sem þarf á stuðningi að halda á húsnæðismarkaði.
    Þá gerðu BSRB og Alþýðusamband Íslands athugasemd í umsögn sinni við markmið, áherslur og mælikvarða húsnæðisstefnu. Meiri hlutinn tekur undir tillögu samtakanna og leggur til breytingar þar að lútandi sem miða að því að skýra nánar orðalag. Auk þess er lögð til orðalagsbreyting á g-lið í markmiði stefnunnar um húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum í samræmi við umsögn félaganna.
    Í umsögn Byggðastofnunar er gerð athugasemd við að mælikvarðar sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðs um jafnvægi á húsnæðismarkaði eigi samkvæmt tillögunni að greinast niður á landshluta en ekki sveitarfélög eða staði. Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið stofnunarinnar og leggur til orðalagsbreytingu þar að lútandi.
    Þá leggur meiri hlutinn til breytingu á samstarfsaðilum við aðgerð 3.7 og leggur til að við bætist aðilar vinnumarkaðarins, auk orðalagsbreytinga sem stuðla að frekari skýrleika og eftirfylgni með aðgerðum.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til á sérstöku þingskjali.

    Óli Björn Kárason gerir fyrirvara þrátt fyrir margar góðar breytingar sem lagðar eru til af meiri hlutanum. Við mótun húsnæðisstefnu verði að leggja grunn að því að sveitarfélög tryggi nægjanlegt framboð lóða undir fjölbreyttar tegundir íbúðarhúsnæðis. Orsök vandans á húsnæðismarkaði sé fyrst og síðast skortur á lóðum fyrir íbúðir, sem aftur hefur leitt til verulegrar hækkunar íbúða- og leiguverðs. Á meðan grunnvandinn, þ.e. framboðsskortur, er ekki leystur verður vandinn á húsnæðismarkaði langvarandi og stöðugur. Ungt fólk á erfiðara með að komast inn á húsnæðismarkaðinn og eignast sitt eigið húsnæði, líkt og langflesta dreymir um. Staða leigjenda er verri en ella. Húsnæðisstefnan markar ekki leið að lausn vandans.

Alþingi, 19. júní 2024.

Steinunn Þóra Árnadóttir,
form.
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, frsm. Líneik Anna Sævarsdóttir.
Ásmundur Friðriksson. Bryndís Haraldsdóttir. Óli Björn Kárason, með fyrirvara.