Ferill 509. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1987 — 509. mál.
Síðari umræða.
Breytingartillaga
við tillögu til þingsályktunar um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Frá meiri hluta velferðarnefndar (LRS, LínS, ÓBK, SÞÁ, BHar, ÁsF).
1. 6. tölul. III. hluta, LYKILVIÐFANGSEFNI HÚSNÆÐISSTEFNU, orðist svo: Markvissum húsnæðisstuðningi til tekjulágra og eignalítilla heimila og heimila með þunga framfærslubyrði, óháð búsetuformi.
2. Við IV. hluta, MARKMIÐ, ÁHERSLUR OG MÆLIKVARÐAR HÚSNÆÐISSTEFNU.
a. F-liður undirkaflans Áherslur til að ná þessu markmiði í 1. kafla, Markmið um jafnvægi á húsnæðismarkaði, orðist svo: Hið opinbera noti húsnæðisstuðning til uppbyggingar húsnæðis sem hagstjórnartæki til að jafna út sveiflur í byggingariðnaði og um leið sveiflur í hagkerfinu til að stuðla að stöðugri verðþróun húsnæðis.
b. Í stað orðsins „landshluta“ í b- og c-lið undirkaflans Mælikvarðar sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðsins í 1. kafla, Markmið um jafnvægi á húsnæðismarkaði, komi: landsvæði, sveitarfélög og einstaka byggðarkjarna þar sem við á.
c. Við undirkaflann Mælikvarðar sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðsins í 2. kafla, Markmið um skilvirkari stjórnsýslu og gæði íbúða í jafnvægi við umhverfið, bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Hlutfall umsýslukostnaðar af byggingarkostnaði.
d. B-liður undirkaflans Áherslur til að ná þessu markmiði í 3. kafla, Markmið um húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum, orðist svo: Húsnæðisstuðningur beinist fyrst og fremst að tekju- og eignaminni einstaklingum og fjölskyldum, fyrstu kaupendum, heimilum með þunga framfærslubyrði og þeim sem búa á svæðum þar sem markaðsbrestur er.
e. Á eftir orðinu „jöfnuði“ í g-lið undirkaflans Áherslur til að ná þessu markmiði í 3. kafla, Markmið um húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum, komi: og samheldni.
f. Á undan orðinu „Upplýsingar“ í h-lið undirkaflans Áherslur til að ná þessu markmiði í 3. kafla, Markmið um húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum, komi: Tímanlegar.
g. Við undirkaflann Áherslur til að ná þessu markmiði í 3. kafla, Markmið um húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum, bætist nýr liður, svohljóðandi: Áhersla verði lögð á að leigjendur sem hafa verið á leigumarkaði til lengri tíma hafi tækifæri til að eignast eigið húsnæði.
h. Í stað orðsins „landshluta“ í b-lið undirkaflans Mælikvarðar sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðsins í 3. kafla, Markmið um húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum, komi: landsvæði, sveitarfélög og einstaka byggðarkjarna þar sem við á.
i. Við undirkaflann Mælikvarðar sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðsins í 4. kafla, Markmið um að framboð íbúða stuðli að virkum vinnumarkaði um land allt, bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Fjölgun fyrstu kaupenda og meðalaldur þeirra.
3. Við V. kafla, AÐGERÐAÁÆTLUN HÚSNÆÐISSTEFNU FYRIR ÁRIN 2024–2028.
a. Við 2. málsl. í liðnum Framkvæmd í aðgerð 1.5 bætist: eða sem sannarlega heldur tvö heimili vegna vinnu eða náms.
b. Í stað 1. málsl. í liðnum Framkvæmd í aðgerð 2.8 komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Gæði í mannvirkjagerð verði bætt með þátttöku hagaðila innan mannvirkjageirans við gerð tæknilegra leiðbeininga og með aukinni fræðslu. Samráð verði haft við hagaðila við einföldun byggingarregluverksins án þess að einföldun komi niður á aðgengi, gæðum og öryggi.
c. Við liðinn Framkvæmd í aðgerð 2.12 bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Slík úttekt skal framkvæmd eins fljótt og auðið er.
d. Á eftir aðgerð 2.14 komi tvær nýjar aðgerðir, svohljóðandi:
2.15. Aukinn sveigjanleiki varðandi breytingar á deiliskipulagi og stjórnsýslu byggingarmála.
Markmið: Uppbygging húsnæðis verði gerð skilvirkari og einfaldari með auknum sveigjanleika við breytingar á deiliskipulagi.
Framkvæmd: Ferli við breytingar á deiliskipulagi verði einfaldað. Sveigjanleiki í deiliskipulagi og skipulagsskilmálum þess verði aukinn. Það hvetur til nýrra og hagkvæmari lausna í mannvirkjagerð sem skila sér í lægri byggingarkostnaði án þess að gerðar séu minni kröfur um umhverfisgæði bygginga, vistspor framkvæmda og að aðgengi sé áfram tryggt.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið.
Dæmi um samstarfsaðila: Stafrænt Ísland, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Skipulagsstofnun, Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðilar vinnumarkaðarins.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.16. Ný og skilvirkari flokkun í leyfisveitingakerfum opinberra aðila.
Markmið: Innleidd verði ný flokkun í leyfisveitingakerfum opinberra aðila til að hraða framgangi umsókna um byggingarleyfi.
Framkvæmd: Kerfi þar sem athugasemdir opinberra aðila við einstök atriði í umsóknum um byggingarleyfi verði flokkaðar eftir mikilvægi og flækjustigi og greint hvaða úrbóta sé þörf og hvernig megi bregðast við þeim á sem skjótastan hátt. Þannig þurfi ekki að hafna eða fresta útgáfu framkvæmdaleyfa eða afgreiðslu byggingarleyfisumsókna vegna smávægilegra athugasemda fram úr hófi heldur geti byggingarfulltrúi gefið út byggingarleyfi með fyrirvara ef tekið er tillit til athugasemda innan ákveðins frests.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið.
Dæmi um samstarfsaðila: Stafrænt Ísland, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Skipulagsstofnun, Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðilar vinnumarkaðarins.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
e. Í stað orðanna „þau sem höllum fæti standa á húsnæðismarkaði“ í 2. málsl. í liðnum Framkvæmd í aðgerð 3.1 komi: tekjulág og eignalítil heimili og heimili með þunga framfærslubyrði óháð búsetuformi.
f. Í stað orðanna „þeim sem búa við markaðsbrest á húsnæðismarkaði“ í 3. málsl. í liðnum Framkvæmd í aðgerð 3.1 komi: þeim sem búa á svæðum þar sem markaðsbrestur er.
g. Á eftir orðinu „byggð“ í liðnum Markmið í aðgerð 3.4 komi: tryggð.
h. Liðurinn Framkvæmd í aðgerð 3.5 orðist svo: Lagt verði fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með hliðsjón af tillögum starfshóps innviðaráðherra um endurskoðun húsaleigulaga og aðgerðum ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga í mars 2024.
i. Í stað orðanna „og byggingaraðilar“ í liðnum Dæmi um samstarfsaðila í aðgerð 3.7 komi: byggingaraðilar og aðilar vinnumarkaðarins.
j. Í stað orðanna „til handa einstaklingum“ í liðnum Framkvæmd í aðgerð 3.14 komi: fyrir einstaklinga.
k. Á eftir aðgerð 3.14 komi ný aðgerð, svohljóðandi:
3.15. Stuðlað verði að hækkun hlutfalls þeirra sem búa í eigin húsnæði.
Markmið: Að áhersla sé lögð á að fólk geti eignast eigið húsnæði með eða án stuðnings hins opinbera.
Framkvæmd: Kortlagt verði hve margir komist af leigumarkaði í eigið húsnæði og hve stór hluti ungs fólks komist inn á húsnæðismarkað á ársgrundvelli í samanburði við fyrri ár með það fyrir augum að greina aðstæður á húsnæðismarkaði og hindranir. Stuðlað verði að uppbyggingu á minni og hagkvæmari húsakosti fyrir hóp fyrstu kaupenda.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Dæmi um samstarfsaðila: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 9, 10, 11, 13, 16 og 17.
l. Við liðinn Markmið í aðgerð 4.3 bætist: þar sem á því er þörf.