Ferill 830. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2009 — 830. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (gjaldtaka, rafræn vöktun o.fl.).
(Eftir 2. umræðu, 21. júní.)
1. gr.
9. Þjónustusvæði er í lögum þessum svæði hafnar þar sem veitt er þjónusta og gjald tekið fyrir.
10. Hafnarsvæði farþegaskipa er í lögum þessum það hafsvæði sem telst ekki til farsviða farþegaskipa. Það nær til ystu marka varanlegra hafnarmannvirkja, sem eru óaðskiljanlegur hluti hafnarinnar, eða til þeirra marka sem helgast af náttúrulegum landfræðilegum þáttum sem skýla vogum og víkum eða svipuðum skýldum svæðum.
11. Hafnsögumaður er í lögum þessum leiðsögumaður sem fengið hefur skírteini til leiðsögu skipa um tiltekið hafnarsvæði.
12. Hafnsöguskylda er í lögum þessum skylda til að hafa um borð hafnsögumann við siglingu skipa um tiltekið hafnarsvæði eða við tilteknar aðstæður.
2. gr.
a. Við 1. tölul. 1. mgr. bætist: þ.m.t.:
a. skipulagssvæði á sjó skv. 1. mgr. 5. gr., sem telst jafnframt vera mengunarlögsaga hafnarsvæðis,
b. hafnsögusvæði,
c. þjónustusvæði,
d. hafnarsvæði farþegaskipa.
b. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Stærð og takmörk hafnarsvæðis á sjó skulu afmörkuð með baughnitum.
3. gr.
4. gr.
Rafræn vöktun.
5. gr.
a. Í stað orðsins „Samgöngustofa“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: Vegagerðin.
b. Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þeir aðilar sem annast fermingu og affermingu búlkaskipa skulu tilkynna Samgöngustofu um þá starfsemi.
6. gr.
a. Við bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Eldisgjald af eldisfiski, þ.m.t. eldisseiðum, sem alinn hefur verið í sjókvíum eða ætlaður er til slíks eldis, sem umskipað er, lestaður er eða losaður í höfnum.
b. 3. málsl. orðast svo: Skipstjóra, útgerðarmanni, fiskeldisfyrirtæki og eiganda skips ber að greiða til hafnar gjöld skv. a-, c-, d-, e- og g-lið en móttakandi vöru sem kemur til hafnar og sendandi vöru sem flutt er úr höfn greiða gjöld skv. b-lið.
7. gr.
a. (21. gr. a.)
Aðgangsbann.
b. (21. gr. b.)
Hafnsaga skipa.
Öll skip sem flytja hættulegan eða mengandi varning í farmrými eða á þilfari í meira magni en tiltekið er í reglugerð skulu hafa um borð hafnsögumann við siglingu um hafnarsvæði.
Skip sem leita hafnar vegna bráðrar hættu eða til að setja á land alvarlega sjúka menn eða slasaða eru undanþegin hafnsöguskyldu.
Hafnarstjórn er heimilt að veita skipstjóra skips undanþágu frá hafnsöguskyldu.
Hafnsögumenn eru starfsmenn hafna og ráðnir á ábyrgð hafnarstjórna.
Heimilt er að mæla nánar fyrir um hafnsögu og hafnsöguskyldu, undanþágu frá hafnsögu og skilyrði fyrir henni, skyldur og réttindi hafnsögumanna o.fl. í hafnarreglugerð.
c. (21. gr. c.)
Skírteini fyrir hafnsögumenn.
Sá sem fullnægir eftirtöldum skilyrðum getur öðlast skírteini til að vera hafnsögumaður skipa:
1. Er 25–69 ára að aldri.
2. Hefur fullnægjandi heilbrigðisvottorð.
3. Hefur lokið 2. stigs skipstjórnarnámi eða samsvarandi námi og hefur siglt sem skipstjóri eða stýrimaður á skipi um svæði sem tilgreint er á skírteininu og þekkir til hlítar siglingaleiðir á svæðinu.
4. Hefur lokið námskeiði til að vera hafnsögumaður eftir því sem nánar segir í reglugerð.
Skilyrðum skv. 2. mgr. verður einnig að vera fullnægt eftir að skírteinið hefur verið gefið út.
Samgöngustofu er heimilt að veita tímabundna undanþágu frá skilyrðum skv. 3. mgr. þegar sérstaklega stendur á.
Ráðherra skal kveða nánar á um skírteinið í reglugerð.
8. gr.
9. gr.
Notendum hafna er heimilt að kæra ákvarðanir hafnarstjórna samkvæmt lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim, sem varða rekstur hafna og gjaldtöku er tengist honum, til Samgöngustofu. Úrskurðir Samgöngustofu eru ekki kæranlegir til ráðherra.
10. gr.
Eigendur hafna skulu senda ráðuneytinu endurskoðuð ákvæði í hafnarreglugerðum um stærð og takmörk hafnarsvæðis á sjó, með hliðsjón af viðmiðunum 1. mgr. 4. gr., eigi síðar en 1. janúar 2026.
11. gr.
12. gr.
a. 4. og 5. tölul. 3. gr. laganna falla brott.
b. 12. gr. laganna fellur brott, ásamt fyrirsögn.
c. Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:
1. Í stað orðanna „leiðsögu- og hafnsögumenn“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: leiðsögumenn.
2. Í stað orðsins „skírteinin“ í 3. málsl. 2. mgr. kemur: skírteinið.
3. Orðin „hafnsögu- og“ tvívegis í 3. mgr. falla brott.
d. Orðið „hafnsögu“ í 16. gr. laganna fellur brott.
e. Fyrirsögn III. kafla laganna verður: Leiðsaga.