Ferill 910. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.
Þingskjal 2023 — 910. mál.
Leiðréttur texti.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi (stuðningur við kjarasamninga).
Frá minni hluta velferðarnefndar.
Breytingartillaga minni hlutans.
Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi verði strax verðlagsleiðréttar og fylgi framvegis launaþróun.
Samkvæmt 54. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, skulu fjárhæðir greiðslna til foreldris úr Fæðingarorlofssjóði skv. 1. og 3. mgr. 24. gr. og greiðslna fæðingarstyrks skv. 1. mgr. 38. gr. koma til endurskoðunar við afgreiðslu fjárlaga ár hvert með tilliti til þróunar launa, verðlags og efnahagsmála. Sams konar reglu var að finna í eldri lögum, lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000. Ráðamenn hafa umgengist þessar reglur af stórkostlegri léttúð. Til að mynda hefur hámark fæðingarorlofsgreiðslna staðið óhreyft síðan árið 2019 þrátt fyrir mikla verðbólgu og launahækkanir.
Árin 2005–2023 hækkaði launavísitala tífalt á við hámark fæðingarorlofsgreiðslna og verðlagsvísitala hækkaði sexfalt á við hámarkið. Bandalag háskólamanna bendir á þetta í umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof sem framsögumaður minni hlutans lagði fram á yfirstandandi löggjafarþingi. Nemur rýrnun hámarksins um 65% á við launavísitölu árin 2005–2023 og um 50% í kaupmætti. Í tíð ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur árin 2017–2023 lækkaði hámarkið um rúmlega 20% á við launavísitölu og dróst saman um rúmlega 10% í kaupmætti. Hámark fæðingarorlofsgreiðslna hefur aldrei verið lægra í hlutfalli við launavísitölu en árið 2023. Hefði hámark fæðingarorlofsgreiðslna haldið verðgildi sínu gagnvart verðlagi frá síðustu hækkun árið 2019 væri það hærra en 800.000 kr. á mánuði. Meðalheildarlaun fullvinnandi fólks á vinnumarkaði voru 935.000 kr. á mánuði árið 2023 og kostnaðarauki vegna hækkunar hámarksins úr 600.000 kr. í 700.000 kr. er aðeins metinn á 400 millj. kr. í tilfelli fæðingarorlofs og hverfandi í tilfelli sorgarleyfis.
Með hliðsjón af framangreindu leggur minni hlutinn til að hámark fæðingarorlofsgreiðslna hækki strax í 800.000 kr. í stað 700.000 kr. Þá leggur minni hlutinn til að eftir þriðju hækkun árið 2026 verði innleidd sú regla að ákvörðun hámarksgreiðslna í fæðingarorlofi og annarra fjárhæða í fæðingarorlofskerfinu taki mið af launaþróun, þó þannig að fjárhæðir hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.
Hækkun nái til allra foreldra sem eiga rétt á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi var lagt fram í kjölfar þess að ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga boðuðu sameiginlegar aðgerðir til að greiða fyrir gerð kjarasamninga á vinnumarkaði. Ein aðgerðanna er hækkun á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði í þremur áföngum, úr 600.000 kr. á mánuði samkvæmt gildandi lögum í 900.000. kr. til að treysta fjárhagslegt öryggi ungbarnafjölskyldna og stuðla að því að markmið fæðingarorlofskerfisins um samvistir barna við báða foreldra og samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs náist. Í kynningu á aðgerðunum kemur fram að hækkunin komi til framkvæmda í þremur áföngum næstu tvö ár; 1. apríl 2024 úr 600.000 kr. á mánuði í 700.000 kr., 1. janúar 2025 í 800.000 kr. og 1. janúar 2026 í 900.000 kr.
Í frumvarpinu er miðað við þessar dagsetningar en að hækkanir taki einvörðungu til foreldra sem eignast barn á umræddu tímabili eða verða fyrir barnsmissi, fósturláti eða andvanafæðingu í stað þess að hækkanir taki gildi fyrir alla foreldra sem rétt eiga til fæðingarorlofsgreiðslna á tímabilinu. Við meðferð málsins hefur meiri hluti velferðarnefndar lagt fram breytingartillögu sem miðar að því að fyrsta hækkun sem tekur gildi 1. apríl 2024 taki til allra foreldra sem rétt eiga á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði frá þeim degi. Þannig er komið til móts við þau sjónarmið að hækkanir eigi ekki að miða við fæðingardag barns heldur við það tímabil þegar foreldrar eru í fæðingarorlofi. Á hinn bóginn er í breytingartillögu meiri hlutans gert ráð fyrir því að næsta hækkun, úr 700.000 kr. í 800.000 kr. 1. janúar 2025, miðist við fæðingardag barns. Þannig verði foreldrar sem eignast barn seinna á þessu ári en eiga rétt á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði árið 2025 í lakari stöðu en foreldrar sem eignast barn eftir 1. janúar 2025. Þannig kemur breytingartillaga meiri hlutans aðeins til móts við þau sem eru í fæðingarorlofi nú en þeir foreldrar sem eiga rétt á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði eftir 1. janúar 2025 en hafa eignast barn fyrir þá dagsetningu munu ekki njóta frekari hækkana. Þetta þýðir að foreldrar sem eignast barn með eins dags millibili sitt hvorum megin við áramót munu ekki njóta sömu réttinda til hámarksgreiðslna úr fæðingarorlofssjóði þrátt fyrir að vera í fæðingarorlofi á sama tíma. Önnur fjölskyldan mun njóta hærri greiðslna upp á alls 1.200.000 kr. fyrir skatt en sú sem eignast barn degi fyrr. Í þessu samhengi vill minni hlutinn vekja athygli á sjónarmiðum sem koma fram í umsögn Höllu Kristjánsdóttur sem lögð var fram fyrir hönd hátt í fjögur þúsund foreldra og stuðningsaðila sem rituðu undir áskorun til Alþingis um að breyta gildistökuákvæði frumvarpsins: „Þegar notast er við fæðingardag getur það m.a. skapað streitu hjá barnshafandi konu sem vonast eftir því að falla „réttum megin“ við línuna. Keisaraskurðir og gangsetningar eru jafnvel frekar bókaðar eftir umrædda dagsetningu sem setur óþarfa álag á heilbrigðiskerfið á ákveðnum tíma. Slíkt gerðist til að mynda um áramótin 2020–2021 þegar fæðingarorlof var lengt úr 10 mánuðum í 12 mánuði. Þegar kona nálgast lokametra sinnar meðgöngu er mikilvægt að hún upplifi sig örugga, að hún sé ekki undir álagi, að hún hvílist og safni kröftum fyrir eitt stærsta verkefni sem hún mun takast á við á sinni lífsleið. Hún á ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að barnið fæðist á „réttri dagsetningu“.“
Minni hlutinn telur að skoða þurfi ákvæði frumvarpsins og breytingartillögu meiri hlutans um gildistöku hækkana með tilliti til reglunnar um bann við mismunun sem mælt er fyrir um í 65. gr. stjórnarskrárinnar. Almennt er viðurkennt að reglan feli ekki í sér fortakslaust og algilt bann við mismunun. Til að mismunun teljist lögmæt þarf einstaklingur í fyrsta lagi að hafa hlotið aðra meðferð en einstaklingur í sambærilegri stöðu. Í öðru lagi þarf hin mismunandi meðferð að stefna að lögmætu markmiði og skynsamlegt samræmi þarf að vera á milli hinnar ólögmætu meðferðar og þess markmiðs sem ná skal fram með meðferðinni. Minni hlutinn telur að ekki sé hægt að slá því föstu að lagasetning þar sem mælt er fyrir um stórkostlegan mun á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði til foreldra eftir því hvorum megin tiltekinnar dagsetningar barn fæðist uppfylli þau skilyrði sem fyrir hendi þurfa að vera til þess að mismunun teljist lögmæt.
Í framsöguræðu félags- og vinnumarkaðsráðherra komu fram þau sjónarmið að nauðsynlegt væri að miða hámarksgreiðslur við fæðingardag barns til að „gæta jafnræðis milli foreldra“ þar sem mikilvægt væri að sömu reglur giltu hvað varðar mánaðarlegar greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði fyrir alla foreldra sem eignast, frumættleiða eða taka börn í varanlegt fóstur eftir tiltekið tímamark óháð því hvenær þeir nýta rétt sinn til fæðingarorlofs. Þannig virðist ráðherra telja mikilvægara að algjört jafnræði til hámarksgreiðslna ríki innan parasambands óháð því hvenær foreldrar taka fæðingarorlof heldur en að sá möguleiki sé fyrir hendi að annað foreldri njóti á einhverjum tímapunkti hærri greiðslna en hitt foreldrið. Í þessu samhengi er rétt að hafa í huga að langflestir foreldrar sem taka fæðingarorlof eru í sambúð eða hjúskap og hafa því sameiginlegar heimilistekjur. Hækkun hámarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði kemur sér því í flestum tilvikum vel fyrir fjölskylduna og þar með báða foreldra óháð kyni. Þá er ljóst að kona sem tekur fæðingarorlof á fyrstu mánuðum eftir að hún eignast barn myndi sannarlega njóta hækkunar á hámarksgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði sé barn hennar fætt skömmu áður en þær hækkanir sem kveðið er á um í frumvarpinu taka gildi. Loks verður ekki séð að nokkurt kynjajafnrétti sé fólgið í því að kona sem eignast barn einum degi fyrir gildistöku umræddra hækkana njóti umtalsvert lakari kjara en faðir sem eignast barn þann dag sem hækkanir taka gildi.
Ekki verður hjá því komist að líta til þess hvernig gildistöku annarra hækkana í velferðarkerfinu er háttað. Þegar hækkanir verða á örorkulífeyri eða greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði ná þær hækkanir til allra sem eiga rétt á þeim greiðslum óháð því hvenær viðkomandi missti starfsgetu eða atvinnu. Ekki hefur verið útskýrt hvers vegna önnur lögmál ættu að gilda um stuðning við foreldra ungbarna en hætt er við því að sérreglur um hækkanir til þeirra komi á endanum verst niður á mæðrum sem að jafnaði verða fyrir mestu tekjutapi á lífsleiðinni vegna barneigna og nýta rétt sinn til fæðingarorlofs í meira mæli en karlar.
Hækkun hámarksgreiðslna í fæðingarorlofi hefur gjarnan verið rökstudd með því að þannig megi hvetja báða foreldra til að fullnýta rétt sinn til fæðingarorlofs. Aukin nýting feðra á fæðingarorlofi er mikilvægt jafnréttismál og ættu ráðamenn að róa að því öllum árum að fleiri feður fullnýti rétt sinn til fæðingarorlofs. Minni hlutinn bendir á að með því að miða við fæðingardag í því skyni að girða fyrir að feður fái í einhverjum tilvikum hærri greiðslur en mæður er ekki aðeins verið að útiloka feður frá hækkun heldur einnig þær mæður sem eignast barn fyrir gildistíma hækkunar. Allt að einu er niðurstaðan sú að hækkun miðað við fæðingardag barns útilokar fjölda foreldra óháð kyni frá þeirri kjarabót sem felst í frumvarpinu.
Eins og áður segir eiga þær breytingar sem mælt er fyrir um í frumvarpinu rætur sínar að rekja til kjarasamninga á vinnumarkaði. Hækkanir samkvæmt kjarasamningum taka eðli málsins samkvæmt til alls launafólks sem heyrir undir viðkomandi kjarasamninga. Á sama hátt telur minni hlutinn engin rök hníga til þess að eingöngu hluti foreldra sem eru í fæðingarorlofi njóti þeirra hækkana sem mælt er fyrir um í frumvarpinu. Tilgangur þeirrar aðgerðar að hækka hámarksgreiðslur í 900.000 kr. í þremur skrefum er að „treysta fjárhagslegt öryggi ungbarnafjölskyldna“, eins og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu. Þeim tilgangi verður síður náð ef aðeins sumir foreldrar njóta hækkunar en ekki allir sem rétt eiga á fæðingarorlofsgreiðslum. Fæðingardagur barns breytir engu um fjárhagsstöðu foreldra. Foreldrar sem eignast barn sitt hvorum megin við upphafsdag gildistíma hækkunar búa við sömu verðbólgu, launaþróun, verðlag og vexti. Það skýtur skökku við að einn dagur eða jafnvel örfáar mínútur geti ráðið úrslitum um það hvort foreldrar sem að öðru leyti eru á nákvæmlega sama tíma í orlofi njóti hækkunar um 1.200.000 kr. á ári.
Breyting á 18. gr. um veikindi foreldris í tengslum við meðgöngu.
Minni hlutinn leggur til breytingu á frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof til að tryggja betur rétt foreldra sem glíma við veikindi í tengslum við meðgöngu. Í núverandi lagaumhverfi fellur réttur til lengra fæðingarorlofs vegna veikinda á meðgöngu niður við fæðingu barns. Þetta verður að teljast óeðlilegt í ljósi þess að oftast vara veikindi áfram í nokkurn tíma eftir fæðingu. Því er lögð til sú breyting að réttur til lengra fæðingarorlofs vegna veikinda á meðgöngu sem vara fram yfir fæðingu barns verði tryggður á sama hátt og veikindi vegna fæðingar barns.
Að framangreindu virtu leggur minni hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Á undan 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á 24. gr. laganna:
a. Í stað fjárhæðarinnar „600.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 900.000 kr.
b. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Hækkanir á mánaðarlegum greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði taka til allra foreldra sem eru í fæðingarorlofi þegar hækkanir taka gildi. Ekki skal miða hækkanir við fæðingardag barns.
2. Efnisgr. 1. gr. orðist svo:
Þrátt fyrir 1. mgr. 24. gr. skal mánaðarleg greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði til foreldris í fæðingarorlofi aldrei nema hærri fjárhæð en 800.000 kr. frá og með 1. apríl 2024 til og með 31. desember 2024.
3. Á eftir 1. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:
a. (3. gr.)
Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:
a. Í stað orðanna „við fæðinguna“ í 1. mgr. kemur: við meðgöngu eða fæðinguna.
b. Í stað orðanna „rakin til fæðingarinnar“ í 1. mgr. kemur: rakin til meðgöngu eða fæðingarinnar.
c. Fyrirsögn greinarinnar verður: Veikindi foreldris í tengslum við meðgöngu eða fæðingu barns.
b. (4. gr.)
Í stað orðanna „með tilliti til þróunar launa, verðlags og efnahagsmála“ í 1. mgr. 54. gr. kemur: og skal ákvörðun þeirra taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.
4. Á undan 2. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. laganna:
a. Í stað fjárhæðarinnar „600.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 900.000 kr.
b. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Hækkanir á mánaðarlegum greiðslum til foreldris í sorgarleyfi skulu taka til allra foreldra sem rétt eiga á sorgarleyfi þegar hækkanir taka gildi. Ekki skal miða hækkanir við þann dag sem foreldri verður fyrir barnsmissi eða þegar fósturlát eða andvanafæðing skv. 8. gr. á sér stað.
5. Efnisgr. 2. gr. orðist svo:
Þrátt fyrir 1. mgr. 16. gr. skal mánaðarleg greiðsla til foreldris í sorgarleyfi aldrei nema hærri fjárhæð en 800.000 kr. frá og með 1. apríl 2024 til og með 31. desember 2024.
Alþingi, 20. júní 2024.
| Jóhann Páll Jóhannsson, frsm. |
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir. |