Ferill 828. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2028  —  828. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Brynju Dan Gunnarsdóttur um fræðslu um hatursorðræðu og kynþáttahatur.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hafa ráðuneytið og stofnanir þess boðið upp á fræðslu fyrir starfsfólk um hatursorðræðu og kynþáttahatur og ef svo er, hvernig hefur henni verið háttað? Ef svo er ekki, hyggst ráðherra sjá til þess að starfsmenn ráðuneytisins og stofnana þess fái slíka fræðslu?

    Ráðuneytið hefur ekki boðið upp á sérstaka fræðslu fyrir starfsfólk um hatursorðræðu og kynþáttahatur. Reglulega eru haldnir upplýsinga- og fræðslufundir fyrir starfsfólk ráðuneytisins og kemur það vel til greina að bjóða upp á slíka fræðslu á þeim vettvangi.
    Ráðuneytið kallaði eftir upplýsingum frá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar um fræðslu fyrir starfsfólk lögreglu. Þá var einnig kallað eftir upplýsingum frá sýslumannaráði, dómstólasýslunni, Landhelgisgæslu Íslands, Útlendingastofnun, ríkissaksóknara, Persónuvernd og Fangelsismálastofnun.
    Starfsmönnum lögreglunnar hefur verið boðið upp á fræðslu síðastliðin sjö ár er tengjast hatursglæpum og fjölmenningu, en fjöldi námskeiða hefur verið haldinn á árunum 2017– 2024. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hafa 400 lögreglumenn sótt fræðsluna undanfarin ár. Í maí síðastliðnum komu sérfræðingar frá mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ODIHR) til að fjalla um hatursglæpi. Markmiðið var að þjálfa lögreglumenn sem leiðbeinendur innan lögregluembættanna til að sinna fræðslu í málaflokknum.
    Samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara stóð embættið fyrir þjálfun fyrir ákærendur á vegum ODIHR hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu um hatursglæpi. Um var að ræða þriggja daga námskeið, dagana 21.–23. maí sl., og þjálfun sem þrír erlendir sérfræðingar í hatursglæpum kenndu, þar sem ákærendur lærðu um hatursglæpi, m.a. um skilgreiningu hugtaksins, einkenni hatursglæpa og afleiðingar þeirra, löggjöf, rannsókn, saksókn og fleira. Þjálfunin fólst einnig í því að ákærendum var kennt að miðla námsefninu til annarra ákærenda. Námskeiðið sóttu ákærendur frá flestum lögreglustjórum og ríkissaksóknara og var um að ræða hátt í fimmtung ákærenda á landsvísu. Hjá embætti ríkissaksóknara er í bígerð að standa fyrir námskeiði fyrir ákærendur með námsefni þjálfunarinnar. Er stefnt að því að námskeiðið verði á haustmánuðum en dagsetning hefur ekki verið ákveðin.
    Dómstólasýslan upplýsti ráðuneytið um að embættið hefði verið í sambandi við mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar varðandi fræðslu um hatursorðræðu og um hatursglæpi. Viðræður standi yfir um hvernig megi þróa gagnvirkt netnámskeið á grundvelli þeirrar aðgerðar sem sett var fram í aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu. Þá standi einnig til hjá dómstólasýslunni að þróa fræðslu þar sem fjallað verður um tjáningarfrelsið og þar á meðal yrði umfjöllun um hatursorðræðu og hatursglæpi. Sú fræðsla er á áætlun fyrir vorið 2025.
    Á vettvangi sýslumanna hefur verið ákveðið að haustið 2024 verði menningarfræðsla en samkvæmt upplýsingum frá sýslumannaráði felur hún í sér fræðslu um hatursorðræðu og kynþáttahatur, auk þess sem reynt verði að kynna hvernig bera skuli sig að þegar ólíkir menningarheimar mætast. Sýslumannaráð hefur áður boðið upp á Hinsegin 101 á vegum Samtakanna '78.
    Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslu Íslands starfar stofnunin eftir siðareglum mannauðsstefnu og jafnréttisáætlun auk þess sem til staðar er stefna og viðbragðsáætlun Landhelgisgæslu Íslands gegn einelti, ofbeldi og áreitni á vinnustað. Þegar nýr aðili kemur til starfa hjá Landhelgisgæslunni eru honum kynntar þessar stefnur og þar er meðal annars komið inn á hatursorðræðu og kynþáttahatur. Almennt er miðað við að reglulega og eigi sjaldnar en fjórða hvert ár fari fram upprifjun þessara reglna á endurmenntunarnámskeiðum en auk þess er minnt á þær ef ástæða þykir til. Berist stjórnendum upplýsingar um að starfsmaður hafi mögulega sýnt af sér hegðun sem ekki samræmist stefnum Landhelgisgæslunnar, meðal annars í formi hatursorðræðu eða kynþáttahaturs, er brugðist við eftir því sem unnt er og reglur heimila. Stefnt er að því að auka þennan þátt í almennri fræðslu til starfsmanna.
    Persónuvernd hefur ekki veitt starfsfólki sínu sérstaka fræðslu um hatursorðræðu og kynþáttahatur. Þá hefur ekki verið tekin ákvörðun um að veita slíka fræðslu.
    Útlendingastofnun hefur ekki haft fræðslu um hatursorðræðu og kynþáttahatur fyrir starfsfólk. Það hefur komið til skoðunar en ekki fundist fræðsla sem þótt hefur henta starfseminni. Stofnunin hefur boðið starfsfólki upp á fræðslu um árangursrík samskipti og fengið fræðslu frá Samtökunum '78 auk annarra fræðsluerinda.
    Fangelsismálastofnun býður starfsfólki upp á reglulega fræðslu yfir árið. Í ár var m.a. boðið upp á fræðslu í menningarnæmi, þar sem fjallað var um fjölbreytni, kynbundna þætti, fordóma og samskipti við einstaklinga af margbreytilegum uppruna. Þá var einnig boðið upp á hinseginfræðslu frá Samtökunum '78, þar sem m.a. var fjallað um hatursorðræðu. Stofnunin er að skipuleggja fræðslu fyrir næsta árið og það er til skoðunar að bjóða upp á fræðslu sem snertir þessi atriði.