Ferill 923. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2056  —  923. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (smáfarartæki o.fl.).

Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá innviðaráðuneyti, ríkissaksóknara, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Hopp Reykjavík ehf., ÖBÍ – réttindasamtökum, Landssamtökum hjólreiðamanna og umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.
    Nefndinni bárust átta umsagnir ásamt minnisblaði frá innviðaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á umferðarlögum, nr. 77/2019, sem byggjast á tillögum starfshóps innviðaráðherra um smáfarartæki. Með frumvarpinu er meðal annars lagt til að mælt verði fyrir um smáfarartæki í umferðarlögum ásamt því að kveðið verði á um vissar takmarkanir um notkun þeirra sem ætlað er að stuðla að auknu öryggi við notkun, án þess þó að standa í vegi fyrir frekari þróun fjölbreyttari ferðamáta.
    Um efni frumvarpsins, að öðru leyti en fjallað er um í áliti þessu, vísast til greinargerðar með því.

Umfjöllun nefndarinnar.
Akstur smáfarartækja á vegum.
    Með frumvarpinu er meðal annars lagt til að óheimilt verði að aka smáfarartækjum á vegum þar sem hámarkshraði er meiri en 30 km á klst. Fyrir nefndinni var því sjónarmiði velt upp hvort heimila ætti notkun smáfarartækja á vissum vegum þó að hámarkshraði væri meiri en 30 km á klst., t.d. í minni bæjarfélögum eða annars staðar þar sem gera má ráð fyrir minni umferð. Að mati meiri hlutans er varhugavert að heimila slíka notkun.
    Í umsögn umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar var á það bent að gangstéttir séu ekki hannaðar fyrir hraða mikið yfir gönguhraða, þær séu mjóar, sjónskilyrði við innkeyrslur slök, og víða séu krappar beygjur við gatnamót sem eykur líkur á árekstrum við óvarða vegfarendur.
    Meiri hlutinn telur að framangreind breyting muni hafa jákvæð áhrif á öryggi ökumanna smáfarartækja enda eru gangstéttir aðallega ætlaðar gangandi vegfarendum og ekki hannaðar til aksturs smáfarartækja.

Sveitarfélög.
    Nefndin fjallaði um heimildir sveitarfélaga til að takmarka notkun á smáfarartækjum innan sinna staðarmarka. Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um að við tilteknar aðstæður kynni að teljast eðlilegt að sveitarfélög hefðu slíkar heimildir til takmörkunar, svo sem þegar stórir viðburðir eru haldnir, um helgar eða á nóttunni, með það fyrir augum að tryggja öryggi bæði gangandi vegfarenda og annarra. Sveitarfélög hafa á um nokkurt skeið gert samninga við þjónustuaðila rafhlaupahjólaleigna (smáfarartækja), þar sem m.a. kveðið er á um skyldur þjónustuaðila til að viðhalda og reka farartækin, t.d. hvernig bregðast eigi við þegar ábendingar berast um bilanir, flutning hjóla sem hindra almenna umferð í almannarými o.fl. Ef útfæra á takmarkanir á notkun smáfarartækja í almannarými á vissum tímum sólarhrings eða við tiltekið tilefni eða tilteknar aðstæður, t.d. til þess að tryggja öryggi annarra vegfarenda, þarfnast það að mati meiri hluta nefndarinnar nánari skoðunar ráðuneytisins, enda vegast þar á mörg sjónarmið og krefst jafnframt samtals milli ríkis og sveitarfélaga. Meiri hlutinn beinir því til ráðherra að skoða þetta atriði sérstaklega og taka upp samtal þjónustuaðila smáfarartækja (rafhlaupahjólaleigna) um hvernig tryggja megi skýrari ramma um notkun smáfarartækja meðal ungmenna.

Breytingartillögur.
Skilgreining smáfarartækja (1. og 2. gr.).
    Með b-lið 1. gr. frumvarpsins er lagt til að smáfarartæki verði sérstaklega skilgreind í umferðarlögum sem lítið vélknúið ökutæki sem er án sætis, telst hvorki létt bifhjól né reiðhjól og er hannað til aksturs á hraða frá 6 km á klst. upp í 25 km á klst. Undir þá skilgreiningu falli t.d. vélknúið hlaupahjól og tvíhjóla ökutæki á einum öxli.
    Við umfjöllun um málið komu fram sjónarmið um að framangreind skilgreining kynni að skapa vafa um hvort smáfarartæki teljist til vélknúinna ökutækja samkvæmt ákvæðum umferðarlaga og hafi þá meðal annars þau áhrif að við brotum lægi svipting ökuréttinda.
    Til þess að taka af allan vafa leggur meiri hlutinn til tvær breytingar á frumvarpinu hvað varðar skilgreiningu á smáfarartækjum. Annars vegar á b-lið 1. gr. þar sem smáfarartæki er skilgreint sem lítið ökutæki sem er vélknúið í stað þess að nota orðalagið vélknúið ökutæki og þá er orðalagi í b-lið 2. gr. breytt og verður á þann veg að ákvæði laganna um reiðhjól og hjólreiðamann eiga einnig við um smáfarartæki, og fer um þau sem slík, og ökumann þess nema annað sé tekið fram.

Heimild til álagningar sekta á grundvelli öndunarprófs (6. gr.).
    Fyrir nefndinni var fjallað um ákvæði 6. gr. frumvarpsins og komu fram sjónarmið um að ef frumvarpið yrði samþykkt óbreytt væri óhjákvæmilegt að þeir sem gerast sekir um ölvunarakstursbrot á smáfarartækjum skyldu gangast undir blóðpróf.
    Samkvæmt 1. mgr. 52. gr. umferðarlaga er ökumanni vélknúins ökutækis skylt að kröfu lögreglu að gangast undir öndunarpróf og láta í té svita- og munnvatnssýni með þeim hætti sem lögregla ákveður, m.a. ef ástæða er til að ætla að viðkomandi hafi brotið gegn ákvæðum 2. eða 4. mgr. 48. gr., sbr. 49. og 50. gr. laganna.
    Meiri hlutinn leggur því til breytingu á efnismálsgrein b-liðar 6. gr. frumvarpsins sem ætlað er að tryggja að unnt verði að ljúka málum á vettvangi. Með breytingunni orðast ákvæðið með þeim hætti að enginn má stjórna eða reyna að stjórna smáfarartæki ef hann er undir áhrifum áfengis og ef vínandamagn í blóði ökumanns smáfarartækis nemur meira en 0,50‰, magn vínanda í lofti sem hann andar frá sér er umfram 0,25 milligrömm í lítra lofts eða niðurstaða öndunarprófs er að vínandamagn í blóði sé umfram 0,50‰ telst hann ekki geta stjórnað ökutækinu örugglega.

Bann við akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja (ný grein).
    Í 50. gr. umferðarlaga er kveðið á um bann við akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja. Í 3. mgr. segir að enginn megi hjóla eða reyna að hjóla eða stjórna eða reyna að stjórna hesti ef hann er undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja skv. 1. mgr., þ.e. ef viðkomandi er undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði samkvæmt lögum um ávana- og fíkniefni og reglugerðum settum samkvæmt þeim eða ef hann telst óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja, sbr. 6. mgr. 48. gr.
    Með frumvarpinu eru ekki lagðar til breytingar á 50. gr. Samkvæmt því sem segir í minnisblaði ráðuneytisins hafi í stað þess verið tekið fram í frumvarpinu að ákvæði laganna um reiðhjól og hjólreiðamann eigi einnig við um smáfarartæki og ökumann þess nema annað sé tekið fram, sbr. b-lið 2. gr. frumvarpsins. Þannig hafi verið gert ráð fyrir því að akstur smáfarartækis undir áhrifum ávana- og fíkniefna verði refsiverður, eins og verið hefur.
    Í ljósi ábendinga sem borist hafa við umfjöllun um málið og þeirra krafna sem gerðar eru til skýrleika refsiheimilda leggur meiri hlutinn til breytingar á 50. gr. laganna og að þar verði með skýrum hætti tekið fram að smáfarartæki eigi þar undir og að akstur undir áhrifum ávana- fíkniefna og lyfja fari samkvæmt viðeigandi viðurlagaákvæðum umferðarlaga. Háttsemin eigi því undir 95. gr. laganna og viðurlög ákveðin í sektarreglugerð sem ráðherra setur að fengnum tillögum ríkissaksóknara, sbr. 97. gr.
    Í minnisblaði innviðaráðuneytis til nefndarinnar var m.a. fjallað um ákvæði frumvarpsins og frekar skýrð þau viðurlög sem lagt er til að eigi við um ölvunarakstur annars vegar og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna hins vegar. Er þar fjallað um mögulegar breytingar á frumvarpinu með það fyrir augum að skýra betur þau ákvæði þess er varðar brot á ákvæðum umferðarlaga um akstur undir áhrifum áfengis, sem og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja. Um ölvunarakstursbrot segir þar meðal annars að slík brot eigi undir 95. gr. umferðarlaga, óháð því hvort um sé að ræða bifreið, reiðhjól eða hest. Sé með frumvarpinu lagt til að smáfarartæki eigi þar undir, sbr. 16. gr. frumvarpsins. Viðurlög séu ákveðin innan þeirra marka sem greinir í 95. gr., í sektarreglugerð ráðherra, sbr. 97. gr. laganna, og gert ráð fyrir að málum þar sem einstaklingur hefur gerst sekur um ölvunarakstursbrot á smáfarartæki ljúki með greiðslu sektar.
    Í 50. gr. laganna er ákvæði um bann við akstri undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja. Meiri hlutinn leggur til þá breytingu á 6. gr. frumvarpsins að á eftir 2. mgr. 50. gr. laganna komi ný málsgrein sem tekur af tvímæli um að enginn megi stjórna eða reyna að stjórna smáfarartæki ef hann er undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja skv. 1. mgr.

    Þá leggur meiri hlutinn til tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Í stað orðanna „Lítið vélknúið ökutæki sem er“ í b-lið 1. gr. komi: Lítið ökutæki sem er vélknúið og.
     2.      Á eftir orðunum „ökumann þess“ í b-lið 2. gr. komi: og fer um þau sem slík.
     3.      Í stað tilvísunarinnar „5. mgr. 42. gr.“ í a-lið 4. gr. komi: 80. gr.
     4.      Efnismálsgrein b-liðar 6. gr. orðist svo:
                      Enginn má stjórna eða reyna að stjórna smáfarartæki ef hann er undir áhrifum áfengis og ef vínandamagn í blóði ökumanns smáfarartækis nemur meira en 0,50‰, magn vínanda í lofti sem hann andar frá sér er umfram 0,25 milligrömm í lítra lofts eða niðurstaða öndunarprófs er að vínandamagn í blóði sé umfram 0,50‰ telst hann ekki geta stjórnað ökutækinu örugglega.
     5.      Á eftir 6. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
                      Á eftir 2. mgr. 50. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Enginn má stjórna eða reyna að stjórna smáfarartæki ef hann er undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja skv. 1. mgr.

    Jakob Frímann Magnússon, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 21. júní 2024.

Bjarni Jónsson,
form.
Ingibjörg Isaksen,
frsm.
Vilhjálmur Árnason.
Halla Signý Kristjánsdóttir. Njáll Trausti Friðbertsson. Oddný G. Harðardóttir.
Orri Páll Jóhannsson.