Ferill 919. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2058 — 919. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinber innkaup, nr. 120/2016 (markviss innkaup, stofnanaumgjörð).
Frá 1. minni hluta fjárlaganefndar.
Fyrsti minni hluti telur mikilvægt að fyrirkomulag opinberra innkaupa á Íslandi hamli ekki íslensku atvinnu- og efnahagslífi og atvinnufrelsi í landinu. Fyrirkomulagið verður að hafa í för með sér skilvirkni og hagkvæmni. Mikilvægt er að einkaaðilar geti boðið stoðstarfsemi við innkaup ríkisins á markaði sem veitendur innkaupaþjónustu, líkt og heimildir tilskipunar ESB 2014/24 gera ráð fyrir, og ná þannig að auka hagkvæmni og skilvirkni við opinber innkaup.
Í lögum um opinber innkaup og samkvæmt frumvarpinu eru það einungis opinberir aðilar sem geta veitt þá þjónustu sem þar er skilgreind sem útboðsþjónusta. Í framangreindri tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins er notast við hugtökin „centralised purchasing activities“ og „ancillary purchasing activities“ sem þýdd voru sem „miðstýrð innkaupastarfsemi“ og „stoðstarfsemi við innkaup“. Að mati 1. minni hluta eru þessi tvö hugtök augljóslega ekki það sama og innkaupaþjónusta. Á það einnig við um það sem nefnt er útboðsþjónusta enda er skýrt tekið fram í 17. tölul. 1. mgr. 2. gr. tilskipunarinnar að veitandi innkaupaþjónustu sé opinber aðili eða einkaaðili sem býður stoðstarfsemi við innkaup á markaði. Er hér augljóslega gert ráð fyrir því að einkaaðili geti boðið stoðstarfsemi við innkaup á markaði. Ekki er gert ráð fyrir því í lögum núna. Er þetta tiltekið í ensku útgáfunni á eftirfarandi hátt: „„procurement service provider“ means a public or private body which offers ancillary purchasing activities on the market.“
Í Noregi starfa Direktoratet for forvaltning og økonomistyring og í Danmörku Staten og Kommunernes Indkøbsservice sem miðlægar innkaupastofnanir, þær eiga það sammerkt við aðrar sambærilegar innkaupastofnanir að þjónusta þeirra afmarkast við gerð rammasamninga og gagnvirkra innkaupakerfa en veita ekki útboðsþjónustu eða innkauparáðgjöf í samkeppni við aðila á markaði, ólíkt því sem háttar til hér á landi. Ríkiskaup, stofnun sem er á fjárlögum, veitir alhliða útboðsþjónustu og innkauparáðgjöf í ójafnri samkeppni við einkaaðila. 1. minni hluti telur mikilvægt að einkaaðilar komist inn á markað útboðsþjónustu og innkauparáðgjafar og það mundi leiða til aukinnar hagkvæmni og skilvirkni á þessu sviði.
Markmið laga um opinber innkaup er að tryggja jafnræði fyrirtækja, stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni og efla nýsköpun og þróun við innkaup hins opinbera á vörum, verkum og þjónustu. Rammasamningar eru eitt af skilgreindum innkaupaferlum samkvæmt lögum um opinber innkaup. Þegar innkaup eru boðin út í rammasamningsútboði eru öll innkaup opinberra aðila á tiltekinni vöru/þjónustu takmörkuð við ákveðna aðila yfir fjögurra ára tímabil. Að mati 1. minni hluta þarf framkvæmd innkaupa með gerð rammasamninga að vera vel ígrunduð og mikilvægt er að beita þessu innkaupaferli hófsamlega enda takmarka rammasamningar samkeppni og nýsköpun á markaði. Á Íslandi eru í gildi 55 rammasamningar sem öllum ríkisstofnunum er gert skylt að vera aðili að. Í Danmörku eru í gildi 52 rammasamningar, en samkvæmt dönskum reglum ber ríkisstofnunum einungis skylda til að vera aðilar að 27 þeirra.
Fyrsti minni hluti bendir einnig á að kærugjald er lágt og þröskuldur óánægðra bjóðenda einnig mjög lágur. Þá kom fram fyrir nefndinni að töluvert væri um tilhæfulausar kærur til nefndarinnar sem gætu valdið töfum á gerð samnings með tilheyrandi tjóni fyrir samningsaðila. 1. minni hluti telur ljóst að það fyrirkomulag sem lagt er til í frumvarpinu sé ekki til þess fallið að auðvelda framkvæmd útboða eða til að auka skilvirkni í innkaupum opinberra aðila.
Alþingi, 21. júní 2024.
Eyjólfur Ármannsson.