Ferill 1076. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2069 — 1076. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993 (Uppbyggingarsjóður EES 2021–2028).
(Eftir 2. umræðu, 22. júní.)
1. gr.
Við 1. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: samning milli Evrópusambandsins, Íslands, Liechtensteins og Noregs um fjármagnskerfi EES fyrir tímabilið maí 2021 – apríl 2028.
2. gr.
Við 2. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
1. gr. samningsins, sem vísað er til í 12. tölul. 1. gr., skal hafa lagagildi hér á landi.
Þau ákvæði samningsins, sem vísað er til í 15. mgr., skulu prentuð sem fylgiskjal við tilkynningu utanríkisráðherra með auglýsingu í A-deild Stjórnartíðinda.
3. gr.
1. gr. samningsins milli Evrópusambandsins, Íslands, Liechtensteins og Noregs um fjármagnskerfi EES fyrir tímabilið maí 2021 – apríl 2028, sem vísað er til í 2. gr. laga þessara, skal prentuð sem fylgiskjal við tilkynningu utanríkisráðherra með auglýsingu í A-deild Stjórnartíðinda, sbr. 4. gr. þessara laga.
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi með birtingu auglýsingar í A-deild Stjórnartíðinda.