Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 2071, 154. löggjafarþing 662. mál: Seðlabanki Íslands (rekstraröryggi greiðslumiðlunar).
Lög nr. 86 3. júlí 2024.

Lög um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019 (rekstraröryggi greiðslumiðlunar).


1. gr.

     17. gr. laganna fær fyrirsögn, svohljóðandi: Útgáfa seðla og myntar.

2. gr.

     Á eftir 17. gr. laganna kemur ný grein, 17. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Rekstraröryggi greiðslumiðlunar.
     Seðlabankanum er heimilt í þágu aukins viðnámsþróttar, öryggis og virkni greiðslumiðlunar og að fengnu samþykki fjármálastöðugleikanefndar að setja reglur um rekstraröryggi greiðslumiðlunar. Reglurnar geta tekið til innviða rafrænnar smágreiðslumiðlunar, innviða greiðslumiðlunar við útlönd og seðla og myntar. Í reglunum er heimilt að mæla fyrir um nauðsynlegar ráðstafanir eins og fyrirkomulag innviða greiðslumiðlunar, netöryggi, tilhögun greiðslufyrirmæla, sannvottun, ábyrgð og uppgjör greiðslna, aðgang að slíkum innviðum og skyldu lánastofnana hér á landi til þátttöku.

3. gr.

     Fyrirsögn VI. kafla laganna verður: Greiðslumiðlun.

4. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl. 1. mgr. 44. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „lánastofnanir og verðbréfasjóði“ kemur: lögaðila.
  2. Í stað orðanna „lán tengd erlendum gjaldmiðlum“ kemur: rekstraröryggi greiðslumiðlunar.


5. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 22. júní 2024.