Ferill 476. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2083  —  476. mál.




Skýrsla


dómsmálaráðherra um kosti og galla Schengen-samningsins, samkvæmt beiðni.



    Með beiðni frá Eyjólfi Ármannssyni og fleiri alþingismönnum á þskj. 525 á yfirstandandi löggjafarþingi er þess óskað að dómsmálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um kosti og galla Schengen-samstarfsins. Í skýrslunni skal varpað ljósi á:
     1.      Kosti og galla samstarfsins.
     2.      Helstu áskoranir Schengen-samstarfsins undanfarna tvo áratugi.
     3.      Áhrif Schengen-samstarfsins á framkvæmd landamæravörslu og löggæslu og samstarf við aðildarríki á þessum sviðum og hvort Schengen-samstarfið sé nauðsynleg forsenda fyrir slíku samstarfi.
     4.      Áhrif Schengen-samstarfsins á fólksflutninga og hvaða áhrif samstarfið hefur á skipulag móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd.
     5.      Hvort Ísland geti tekið þátt í ákveðnum þáttum Schengen-samstarfsins án fullrar aðildar og þá hvaða þáttum.
    Skýrsla dómsmálaráðherra er fylgiskjal. Jafnframt er vísað í fyrri skýrslu dómsmálaráðherra um Schengen-samstarfið frá árinu 2019 (þskj. 951, 566. mál á 149. löggjafarþingi) og skýrslu innanríkisráðherra frá árinu 2012 (þskj. 1698, 354. mál á 140. löggjafarþingi).


Fylgiskjal.


Skýrsla dómsmálaráðherra um kosti og galla Schengen-samstarfsins.

www.althingi.is/altext/pdf/154/fylgiskjol/s2083-f_I.pdf