Ferill 509. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Nr. 21/154.
Þingskjal 2101 — 509. mál.
Þingsályktun
um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Alþingi ályktar að fram til ársins 2038 skuli unnið að húsnæðismálum í samræmi við eftirfarandi húsnæðisstefnu og að árin 2024–2028 verði unnið í samræmi við meðfylgjandi aðgerðaáætlun til að tryggja framgang markmiða stefnunnar, sbr. lög um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023.
Gert verði ráð fyrir framkvæmdinni við gerð fjárlaga hvers árs og í fimm ára fjármálaáætlun.
| Niðurbrot á ramma fjármálaáætlunar 2024–2028 | 2024 | 2025 | 2026 | 2027 | 2028 | Samtals 2024–2028 |
| Húsnæðis- og mannvirkjastofnun | 3.923 | 3.876 | 3.835 | 3.794 | 3.757 | 19.187 |
| Húsnæðisbætur | 9.053 | 9.053 | 9.053 | 9.053 | 9.053 | 45.266 |
| Stofnframlög vegna félagslegra leiguíbúða | 7.436 | 3.736 | 3.736 | 3.736 | 3.736 | 22.382 |
| Samtals húsnæðismál | 20.413 | 16.666 | 16.625 | 16.584 | 16.547 | 86.835 |
|
|
||||||
| Lánsfjárheimild vegna hlutdeildarlána | 3.000 | |||||
| Lánsfjárheimild vegna annarra lána Húsnæðissjóðs | 17.000 | |||||
| Samtals lánsfjárheimildir vegna Húsnæðissjóðs | 20.000 | |||||
| Miðað við verðlag í fjárlögum fyrir árið 2024. Fjárhæðir í millj. kr. | ||||||
| Lán Húsnæðissjóðs miðast við heimildir sem Alþingi veitir fjármála- og efnahagsráðherra í 5. gr. fjárlaga. Lánsheimilda er aflað í fjárlögum hvers árs og standa þær utan ramma fjármálaáætlunar. Undanfarin ár hefur lánsfjárheimild numið 20.000 millj. kr. á ári. | ||||||
Húsnæðisstefna taki mið af og verði hluti af heildstæðri samþættri stefnu í húsnæðismálum, skipulagsmálum, samgöngumálum, byggðamálum og málefnum sveitarfélaga og taki mið af samþykktum stefnum stjórnvalda á öðrum málefnasviðum.
I. SAMEIGINLEG FRAMTÍÐARSÝN OG MEGINMARKMIÐ STEFNA INNVIÐARÁÐUNEYTISINS
Ísland verði í fremstu röð með trausta og örugga innviði, öflug sveitarfélög, verðmætasköpun og framsækna þjónustu. Tenging byggða og Íslands við umheiminn verði í jafnvægi við umhverfið.
Meginmarkmið stefna innviðaráðuneytisins á sviði húsnæðismála, skipulagsmála, samgöngumála, byggðamála og málefna sveitarfélaga verði:
1. Innviðir mæti þörfum samfélagsins.
2. Byggðir og sveitarfélög um land allt verði sjálfbær.
II. FRAMTÍÐARSÝN HÚSNÆÐISSTEFNU
Stöðugleiki ríki á húsnæðismarkaði þar sem fjölbreytt framboð íbúða mæti þörf í jafnvægi við umhverfið. Öllum sé tryggt öruggt og gott húsnæði í blandaðri byggð og húsnæðiskostnaður þeirra sé viðráðanlegur.
III. LYKILVIÐFANGSEFNI HÚSNÆÐISSTEFNU
Til að takast á við áskoranir á sviði húsnæðismála verði unnið að eftirfarandi átta lykilviðfangsefnum:
1. Stöðugleika á húsnæðismarkaði þar sem fjölbreytt framboð íbúða mæti þörf.
2. Skilvirkri stjórnsýslu á sviði húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmála.
3. Greinargóðum upplýsingum um húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmál byggðum á áreiðanlegum tæknilegum innviðum.
4. Húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum með félagslegum jöfnuði og blöndun byggðar.
5. Sérhæfðum lausnum til að mæta áskorunum á landsbyggðinni.
6. Markvissum húsnæðisstuðningi til tekjulágra og eignalítilla heimila og heimila með þunga framfærslubyrði, óháð búsetuformi.
7. Bættri réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda og bættum rauntímaupplýsingum um leigumarkaðinn.
8. Sjálfbærri þróun, gæðum og rekjanleika í mannvirkjagerð.
Áherslur og aðgerðir húsnæðisstefnu miði að því að takast á við þessi viðfangsefni og stuðli þannig að framförum í húsnæðismálum á Íslandi og að markmiðum húsnæðisstefnu verði náð.
IV. MARKMIÐ, ÁHERSLUR OG MÆLIKVARÐAR HÚSNÆÐISSTEFNU
Markmið stjórnvalda í húsnæðismálum verði eftirfarandi:
1. Jafnvægi verði á húsnæðismarkaði þar sem fjölbreytt framboð íbúða mæti þörf og þróun húsnæðis- og leiguverðs sé stöðug.
2. Skilvirk stjórnsýsla og bætt starfsumhverfi mannvirkjagerðar stuðli að auknum gæðum, öryggi, rekjanleika og hagkvæmni íbúðauppbyggingar í jafnvægi við umhverfið.
3. Landsmenn búi við húsnæðisöryggi og jafnrétti í húsnæðismálum með því að sköpuð verði skilyrði með markvissum húsnæðisstuðningi til að öll hafi aðgengi að öruggu og góðu húsnæði með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.
4. Framboð íbúða stuðli að virkum vinnumarkaði og styðji við öflug vinnusóknarsvæði um allt land.
1. Markmið um jafnvægi á húsnæðismarkaði.
Jafnvægi verði á húsnæðismarkaði þar sem fjölbreytt framboð íbúða mæti þörf og þróun húsnæðis- og leiguverðs sé stöðug.
Áherslur til að ná þessu markmiði:
a. Ríki og sveitarfélög hafi sameiginlega sýn og stefnu í húsnæðismálum og vinni saman að íbúðauppbyggingu.
b. Áreiðanlegar upplýsingar um framboð og eftirspurn eftir íbúðum liggi fyrir með bættri mannfjöldaspá og skilvirkri skráningu á stöðu og framvindu byggingarframkvæmda sem næst rauntíma.
c. Framboð byggingarhæfra lóða mæti þörf tímanlega.
d. Lífeyrissjóðum verði gert kleift að koma að uppbyggingu leiguíbúða með fjármögnun og aðkomu að eignarhaldi húsnæðisfélaga, svo sem leigufélaga, þróunarfélaga, húsnæðissamvinnufélaga o.fl.
e. Stuðlað verði að því að íbúðir sem ekki eru nýttar til fastrar búsetu verði nýttar sem slíkar.
f. Hið opinbera noti húsnæðisstuðning til uppbyggingar húsnæðis sem hagstjórnartæki til að jafna út sveiflur í byggingariðnaði og um leið sveiflur í hagkerfinu til að stuðla að stöðugri verðþróun húsnæðis.
g. Skilvirkni verði í mannvirkjagerð með bættum rekstrarskilyrðum byggingaraðila, m.a. hvað varðar fjármögnun íbúðauppbyggingar.
h. Íbúðauppbygging verði vistvæn.
i. Málaflokkar húsnæðis- og mannvirkjamála, skipulagsmála, samgöngumála, byggðamála og málefna sveitarfélaga verði samhæfðir.
Mælikvarðar sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðsins:
a. Áætluð uppbygging næstu fimm ára samkvæmt húsnæðisáætlunum í samræmi við metna íbúðaþörf á landsvísu.
b. Fjölgun íbúða í samræmi við áætlaða uppbyggingu samkvæmt húsnæðisáætlunum, á landsvísu og greint niður á landsvæði, sveitarfélög og einstaka byggðarkjarna þar sem við á.
c. Þróun fasteignaverðs og leiguverðs, á landsvísu og greint niður á landsvæði, sveitarfélög og einstaka byggðarkjarna þar sem við á.
2. Markmið um skilvirkari stjórnsýslu og gæði íbúða í jafnvægi við umhverfið.
Skilvirk stjórnsýsla og bætt starfsumhverfi mannvirkjagerðar stuðli að auknum gæðum, öryggi, rekjanleika og hagkvæmni íbúðauppbyggingar í jafnvægi við umhverfið.
Áherslur til að ná þessu markmiði:
a. Einn ferill verði um húsnæðisuppbyggingu með samhæfingu ferla í skipulags- og byggingarmálum.
b. Byggingareftirlit verði gert skilvirkara með bættum rekjanleika, aukinni áherslu á hönnunareftirlit og markvissara eftirliti á framkvæmda- og notkunartíma mannvirkja.
c. Réttarvernd neytenda vegna byggingargalla verði bætt með skýrari ábyrgðarkeðju, lögbundnum tryggingum og notkun sérhæfðra skoðunarstofa.
d. Kolefnislosun frá íbúðarhúsnæði verði reiknuð út með samræmdum hætti og takmörkuð í samræmi við loftslagsmarkmið stjórnvalda.
e. Orkunýting mannvirkja verði bætt á grundvelli samræmdra orkuútreikninga og orkuflokkunar bygginga.
f. Áhersla verði lögð á aukna endurnýtingu og endurnotkun byggingarvara og núverandi byggingarmassa sem og bætta nýtingu fermetra í nýbyggingum.
g. Áhersla verði lögð á gæði, nýsköpun, rannsóknir og þróun, m.a. við hönnun, til þess að draga úr kolefnislosun.
h. Grunngæði íbúðarhúsnæðis verði höfð að leiðarljósi í allri hönnun, til að mynda öryggi, dagsbirta, hreint loft, góð hljóðvist, aðgengi, gott skipulag og skilvirkni og að húsnæði uppfylli rýmisþörf daglegra athafna.
i. Hið byggða umhverfi tryggi aðgengi að grænum svæðum og göngu- og hjólastígum og byggist á samþættri stefnu sveitarfélaga um byggð og samgöngur.
Mælikvarðar sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðsins:
a. Kolefnislosun vegna mannvirkja.
b. Orkunýting mannvirkja.
c. Hlutfall byggingarleyfa með skráðar áfangaúttektir og stöðuskoðanir í mannvirkjaskrá.
d. Hlutfall byggingarleyfa sem sótt er um stafrænt í gegnum nýtt viðmót mannvirkjaskrár.
e. Hlutfall umsýslukostnaðar af byggingarkostnaði.
3. Markmið um húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum.
Landsmenn búi við húsnæðisöryggi og jafnrétti í húsnæðismálum með því að sköpuð verði skilyrði með markvissum húsnæðisstuðningi til að öll hafi aðgengi að öruggu og góðu húsnæði með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.
Áherslur til að ná þessu markmiði:
a. Sérstök áhersla verði lögð á að auka framboð á góðum og öruggum íbúðum með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði fyrir fólk undir tilteknum tekju- og eignamörkum.
b. Húsnæðisstuðningur beinist fyrst og fremst að tekju- og eignaminni einstaklingum og fjölskyldum, fyrstu kaupendum, heimilum með þunga framfærslubyrði og þeim sem búa á svæðum þar sem markaðsbrestur er.
c. Húsnæðisstuðningur verði endurskoðaður og einfaldaður þannig að hann nái betur markmiðum sínum.
d. Réttarstaða og húsnæðisöryggi leigjenda samkvæmt húsaleigulögum verði bætt.
e. Unnið verði að áframhaldandi uppbyggingu og þróun almenna íbúðakerfisins og hlutdeildarlánakerfisins.
f. Unnið verði að aukinni hlutdeild óhagnaðardrifinna leigufélaga á leigumarkaðnum.
g. Stuðlað verði að félagslegum jöfnuði og samheldni með blöndun byggðar.
h. Tímanlegar upplýsingar til að meta byrði húsnæðiskostnaðar og árangur húsnæðisstuðningskerfa liggi fyrir hjá viðeigandi stjórnvöldum.
i. Málaflokkar húsnæðis- og mannvirkjamála, skipulagsmála, samgöngumála, byggðamála og málefna sveitarfélaga verði samhæfðir.
j. Áhersla verði lögð á að leigjendur sem hafa verið á leigumarkaði til lengri tíma hafi tækifæri til að eignast eigið húsnæði.
Mælikvarðar sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðsins:
a. Hlutfall leigjenda og íbúðareigenda sem búa við íþyngjandi húsnæðiskostnað eftir tekjufimmtungum.
b. Hlutfall íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði (almennra íbúða og íbúða sem keyptar eru með hlutdeildarláni) af íbúðastofninum á landsvísu og greint niður á landsvæði, sveitarfélög og einstaka byggðarkjarna þar sem við á sem og eftir tegund húsnæðisstuðnings.
4. Markmið um að framboð íbúða stuðli að virkum vinnumarkaði um land allt.
Framboð íbúða stuðli að virkum vinnumarkaði og styðji við öflug vinnusóknarsvæði um allt land.
Áherslur til að ná þessu markmiði:
a. Áframhaldandi áhersla verði lögð á samstarfsvettvang um íbúðauppbyggingu á landsbyggðinni ( Tryggð byggð).
b. Áhersla verði á öflugan almennan leigumarkað til þess að laða sérhæft vinnuafl til Íslands.
c. Sérstökum stuðningi verði beint til húsnæðisuppbyggingar á landsbyggðinni og rekstur leigufélaga, m.a. Brákar og Bríetar, verði efldur til að styrkja samkeppnishæfni landsbyggðarinnar.
d. Fjölbreyttar lausnir verði fyrir hendi til að mæta ólíkum áskorunum sveitarfélaga í húsnæðismálum.
Mælikvarðar sem stuðst verði við til að meta framgang markmiðsins:
a. Fjölgun íbúða á köldum markaðssvæðum í samræmi við fyrirhugaða uppbyggingu samkvæmt húsnæðisáætlunum sveitarfélaga.
b. Fjölgun íbúða á almennum leigumarkaði.
c. Fjölgun fyrstu kaupenda og meðalaldur þeirra.
V. AÐGERÐAÁÆTLUN HÚSNÆÐISSTEFNU FYRIR ÁRIN 2024–2028
Unnið verði í samræmi við eftirfarandi fimm ára aðgerðaáætlun til að tryggja framgang markmiða húsnæðisstefnu. Fjármálaáætlun 2024–2028 liggi til grundvallar aðgerðaáætluninni auk lánsfjárheimilda Húsnæðissjóðs. Við árlega endurskoðun fjármálaáætlunar verði spá um uppbyggingu íbúða uppfærð með það að markmiði að tryggja stuðning stjórnvalda við allt að 1.400 íbúðir á ári í samræmi við markmið þar um og rammasamning ríkis og sveitarfélaga, sbr. aðgerð 1.2. Eins verði lánsfjárheimildar til Húsnæðissjóðs aflað í fjárlögum hvers árs svo hann geti rækt lögbundið hlutverk sitt um að fjármagna lánveitingar á samfélagslegum forsendum samkvæmt lögum um húsnæðismál.
1. Jafnvægi verði á húsnæðismarkaði þar sem fjölbreytt framboð íbúða mæti þörf og þróun húsnæðis- og leiguverðs sé stöðug.
1.1. Vönduð áætlanagerð um íbúðauppbyggingu með húsnæðisáætlunum og eftirfylgni með framkvæmd þeirra.
Markmið: Greind verði þörf fyrir uppbyggingu í einstökum sveitarfélögum og nauðsynlegar aðgerðir til að sú uppbygging verði að veruleika.
Framkvæmd: Haldið verði áfram að þróa og innleiða stafrænar húsnæðisáætlanir með upplýsingum um þörf mismunandi hópa fyrir íbúðarhúsnæði innan hvers sveitarfélags. Til að tryggja uppbyggingu verði þar að finna yfirlit yfir lóðir og stöðu þeirra eftir því hvenær þær verði byggingarhæfar, hvort þær séu í skipulagsferli, um sé að ræða þróunarsvæði o.fl. Unnið verði að tengingu við skipulagsáætlanir til þess að ná enn betri yfirsýn yfir stöðu mála. Húsnæðisáætlanir byggist á samræmdum skilgreiningum hugtaka og sameiginlegri aðferðafræði til mats á íbúðaþörf einstakra félagshópa. Íbúðaþarfagreining og mannfjöldaspá verði nákvæmari til lengri tíma litið sem og upplýsingar um byggingu íbúða í rauntíma. Einnig verði haldið utan um fjölda íbúða í skipulagi sveitarfélaga.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og einstök sveitarfélög.
Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Landsskipulagsstefna og byggðaáætlun.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
1.2. Samningar við sveitarfélög um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á grundvelli rammasamnings ríkis og sveitarfélaga.
Markmið: Uppbygging íbúða í samræmi við þörf um allt land verði tryggð. Stuðlað verði að fjölgun íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði sem njóti opinbers húsnæðisstuðnings.
Framkvæmd: Lokið verði við samninga ríkisins við einstök sveitarfélög á grundvelli rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um íbúðauppbyggingu árin 2023–2032. Ríkið leggi samkvæmt þeim samningum fram fjármuni í formi húsnæðisstuðnings til íbúðauppbyggingar. Sveitarfélög tryggi að nægar lóðir séu tiltækar til uppbyggingar á hverju ári og skapi nauðsynleg skilyrði til að uppbygging raungerist.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og einstök sveitarfélög.
Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga.
Tímabil: 2024.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Landsskipulagsstefna og byggðaáætlun.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
1.3. Samráðsvettvangur stjórnvalda um íbúðaþörf vegna stóraukins íbúafjölda á Íslandi.
Markmið: Framboð íbúða mæti fyrirsjáanlegri aukningu á íbúðaþörf vegna stóraukins íbúafjölda á Íslandi.
Framkvæmd: Komið verði á samráðsvettvangi stjórnvalda sem vinni sviðsmyndagreiningar um íbúðaþörf út frá þróun mannfjölda til næstu fimm og tíu ára, m.a. með hliðsjón af hraðri fjölgun innflytjenda sem hingað koma til að starfa við ferðaþjónustu og aðrar atvinnugreinar, flóttafólks og annarra sem hingað flytja.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið og forsætisráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, menningar- og viðskiptaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Seðlabanki Íslands, Hagstofa Íslands, Vinnumálastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir, Skipulagsstofnun, Byggðastofnun, Samtök iðnaðarins og heildarsamtök á vinnumarkaði.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Stefna um málefni innflytjenda og flóttafólks, ferðamálastefna, byggðaáætlun, landsskipulagsstefna og borgarstefna.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
1.4. Fjölgun íbúða með minna vistspori með kortlagningu á húsnæði sem mætti endurnýta til búsetu.
Markmið: Íbúðum sem nýttar eru til búsetu verði fjölgað og vistspor minnkað með endurnýtingu bygginga sem þegar hafa risið en ætlaðar hafa verið til annarrar starfsemi.
Framkvæmd: Leitað verði leiða til að nýta atvinnuhúsnæði sem ekki hentar lengur sem slíkt en er nálægt innviðum íbúðarbyggðar, svo sem skólum, og komi að öðru leyti til greina að nýta til búsetu, m.a. með hliðsjón af áformum viðkomandi sveitarfélags. Greindar verði nauðsynlegar breytingar á skipulagi og löggjöf til þess að slík umbreyting geti átt sér stað. Leyfisveitingar vegna breyttrar notkunar til búsetu verði auðveldaðar í þessu skyni. Samhliða verði horft til þess að stuðla að umbreytingu húsnæðis með hagrænum hvötum. Utanumhald með aðgerðinni verði í húsnæðisáætlunum sveitarfélaga.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og einstök sveitarfélög.
Dæmi um samstarfsaðila: Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Skipulagsstofnun og Byggðastofnun.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Landsskipulagsstefna og loftslagsstefna.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
1.5. Hærri fasteignagjöld á íbúðir sem ekki eru nýttar til búsetu.
Markmið: Stuðlað verði að því að íbúðir í þéttbýli sem ekki eru nýttar til búsetu verði nýttar sem slíkar.
Framkvæmd: Horft sé til þess að breyting verði á álagningarreglum þannig að sveitarfélög fái heimild til að flokka íbúðir sem ekki eru nýttar til búsetu sem húsnæði sem fellur undir c-lið 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, þannig að þær beri hærri fasteignagjöld. Heimildin nái þó ekki til íbúða fólks sem býr annars staðar vegna heilbrigðisþjónustu sem það þarf að sækja eða sem sannarlega heldur tvö heimili vegna vinnu eða náms. Mat verði lagt á fjölda íbúða sem nýttar eru til annars en búsetu, svo sem orlofsíbúðir og íbúðir sem nýttar eru undir gististarfsemi og annað heimili, og metin áhrif breyttrar álagningar fasteignagjalda á slíkar íbúðir. Jafnframt verði skoðað að leggja á fasteignagjöld samhliða veitingu uppbyggingarheimildar til þess að koma í veg fyrir frestun uppbyggingar.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Einstök sveitarfélög.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Loftslagsstefna.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
1.6. Land í eigu ríkisins verði nýtt til að hraða uppbyggingu íbúða.
Markmið: Hvatt verði til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis á óbrotnu landi til að flýta fyrir hagkvæmri uppbyggingu og auknu framboði til að mæta þörf.
Framkvæmd: Land í eigu ríkis verði nýtt undir fjölbreytta íbúðarbyggð til að flýta fyrir hagkvæmri uppbyggingu og auknu framboði íbúða í samræmi við þörf samkvæmt fyrirliggjandi greiningum hverju sinni. Haldin verði útboð reglubundið í samræmi við forsendur skipulags um aukna íbúðarbyggð þar sem boðnar verði út lóðir fyrir mismunandi verkefni til þess að tryggja sem breiðasta þátttöku verktaka og að stuðla að minni sveiflum í uppbyggingu. Skýrar kvaðir verði um að uppbygging hefjist strax til að koma í veg fyrir tafir vegna m.a. endursölu lóða/byggingarheimilda. Hafið verði samtal við sveitarfélögin um hliðstæða aðkomu þeirra til að hraða íbúðauppbyggingu.
Ábyrgðarráðuneyti: Fjármála- og efnahagsráðuneytið og innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Skipulagsstofnun.
Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, einstök sveitarfélög og Samtök iðnaðarins
Tímabil: 2024–2028.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Landsskipulagsstefna, loftslagsstefna, samgönguáætlun.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
1.7. Skýrt regluverk um gististarfsemi í fjölbýlishúsum.
Markmið: Íbúðir sem ekki eru nýttar til fastrar búsetu verði frekar nýttar sem slíkar.
Framkvæmd: Lagt verði fram frumvarp til laga á Alþingi þar sem sett verði skýrara regluverk um gististarfsemi í fjöleignarhúsum með tilliti til þess að hvaða marki aðrir eigendur þurfi að veita samþykki fyrir slíkri starfsemi. Horft verði til þess að mismunandi reglur gildi um áskilið samþykki eftir annars vegar umfangi gististarfseminnar (heimagisting eða rekstrarleyfisskyld gististarfsemi) og hins vegar eðlis fjöleignarhússins (íbúðarhúsnæði eingöngu, blandað húsnæði eða eingöngu atvinnuhúsnæði).
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið.
Dæmi um samstarfsaðila: Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og Húseigendafélagið.
Tímabil: 2024.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Ferðamálastefna.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
1.8. Tímabundnar uppbyggingarheimildir til að tryggja að uppbyggingaráform gangi eftir.
Markmið: Sveitarfélög hafi nauðsynlegar heimildir til að þrýsta á um uppbyggingu íbúða í samræmi við uppbyggingarheimildir í deiliskipulagi.
Framkvæmd: Lagt verði fram frumvarp til laga á Alþingi um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010, sem veiti sveitarfélögum heimild til að tímabinda uppbyggingarheimildir á grundvelli samþykkts deiliskipulags í því skyni að þeim verði kleift að endurskoða deiliskipulag þar sem framkvæmdaleysi kemur í veg fyrir að uppbyggingaráform sveitarfélagsins gangi eftir.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið.
Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Skipulagsstofnun.
Tímabil: 2024.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
1.9. Greining og útgáfa upplýsinga á sviði húsnæðismála verði efld með sterkum tæknilegum grunninnviðum.
Markmið: Skilvirkni fasteigna- og byggingarmarkaðar verði aukin með greiðum aðgangi að greiningum og rauntímaupplýsingum um húsnæðismál á grundvelli öflugra tæknilegra grunninnviða.
Framkvæmd: Húsnæðisgrunnur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verði styrktur og aðgangur að gögnum úr honum opinn fyrir almenning og hagaðila. Könnun verði gerð meðal hagaðila og almennings um þörf fyrir upplýsingar. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun útbúi útgáfuáætlun um miðlun upplýsinga á sviði húsnæðismála sem verði ávallt aðgengileg á vef stofnunarinnar. Tæknilegir grunninnviðir verði styrktir í þessu skyni, m.a. með þróun á fasteignaskráningarkerfi svo hægt verði að aðskilja ólíkar aðgerðir (skráningu mannvirkja, fasteigna, réttindaskráningu, gerð fasteigna- og brunabótamats) og gera þær óháðar hver annarri.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Dæmi um samstarfsaðila: Seðlabanki Íslands, Hagstofa Íslands, Stafrænt Ísland, Skipulagsstofnun, einstök sveitarfélög, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök iðnaðarins, heildarsamtök á vinnumarkaði, lánveitendur, byggingaraðilar og húsnæðisfélög.
Tímabil: 2024–2028.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Stefna um stafræna þjónustu hins opinbera.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2. Skilvirk stjórnsýsla og bætt starfsumhverfi mannvirkjagerðar stuðli að auknum gæðum, öryggi, rekjanleika og hagkvæmni íbúðauppbyggingar í jafnvægi við umhverfið.
2.1. Einn ferill húsnæðisuppbyggingar.
Markmið: Stjórnvöld þjónusti fagaðila og framkvæmdaraðila með samræmdum og skilvirkum hætti á sviði skipulags- og byggingarmála við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.
Framkvæmd: Lögbundnir ferlar og verklag í skipulags- og byggingarmálum er varða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis verði endurskilgreindir og samþættir sem liður í samþættingu landsskipulagsstefnu og húsnæðisstefnu. Annars vegar verði samþættir ferlar við gerð deiliskipulags og byggingarleyfis og hins vegar ferlar við gerð aðalskipulags og húsnæðisáætlana. Ráðist verði í fræðsluátak og gefnar út leiðbeiningar til sveitarfélaga með áherslu á einföldun ferla og aukna skilvirkni við skipulag og mannvirkjagerð.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Skipulagsstofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Einstök sveitarfélög, hönnuðir og aðrir sem koma að mannvirkjagerð.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Landsskipulagsstefna.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.2. Eitt viðmót fyrir umsókn um byggingarleyfi í mannvirkjaskrá.
Markmið: Að samræma umsóknir og afgreiðslu byggingarleyfa, einfalda og flýta skráningu mannvirkja og auka gæði rauntímaupplýsinga um mannvirkjagerð.
Framkvæmd: Í mannvirkjaskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verði þróað og innleitt eitt miðlægt viðmót þar sem umsóknum um byggingarleyfi verði skilað til sveitarfélaga ásamt stafrænum hönnunargögnum (BIM) með rafrænum undirritunum hönnuða. Fyrir hvert leyfi eða mannvirki verði horft til þess að kerfið afli með sjálfvirkum hætti ýmissa gagna, svo sem frá opinberum aðilum og tryggingafélögum, t.d. um tryggingar og starfsréttindi. Hönnuðir annist skráningu og viðhald gagna um mannvirki en sveitarfélög og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun rýni þau og staðfesti. Betri yfirsýn fáist þannig um samskipti og stöðu mála. Um leið verði opinberir ferlar við skráningu/skilgreiningu fasteigna styttir.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og Stafrænt Ísland.
Dæmi um samstarfsaðila: Einstök sveitarfélög, hönnuðir og aðrir sem koma að mannvirkjagerð.
Tímabil: 2024.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.3. Endurskoðun á byggingarreglugerð.
Markmið: Að auka gæði, sjálfbærni og nýsköpun, bæta starfsumhverfi byggingariðnaðarins og tryggja betur réttarvernd neytenda.
Framkvæmd: Stýrihópur vinni að heildarendurskoðun á byggingarreglugerð, m.a. með hliðsjón af tillögum OECD til úrbóta á lögum og reglum í byggingariðnaði, þ.m.t. að auka sjálfbærni og stuðla að stafrænni þróun í mannvirkjagerð. Bætt orkunýting og grunngæði íbúðarhúsnæðis verði höfð að leiðarljósi í allri hönnun, til að mynda öryggi, dagsbirta, hreint loft, góð hljóðvist, aðgengi og gott skipulag/skilvirkni og að húsnæði uppfylli rýmisþörf daglegra athafna.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samtök iðnaðarins og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Fag- og hagsmunaaðilar innan mannvirkjageirans.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Aðgerðaáætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023–2026.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.4. Aukin réttarvernd neytenda vegna byggingargalla.
Markmið: Réttarvernd neytenda verði aukin með skilvirkara byggingareftirliti þar sem sérstök áhersla verði lögð á hönnunareftirlit og markvisst eftirlit á framkvæmda- og notkunartíma mannvirkja.
Framkvæmd: Í tengslum við endurskoðun á byggingarreglugerð verði eftirlit með hönnun mannvirkja gert skilvirkara, m.a. með nýtingu stafrænna lausna, og stuðlað að betri réttarvernd neytenda með skýrari ábyrgðarkeðju og lögbundnum tryggingum. Jafnframt verði endurskoðað eftirlit sem fer fram vegna framkvæmda við byggingu mannvirkja, með það að markmiði að auka eftirlit með byggingafræðilegum þáttum sem hafa bein áhrif á gæði mannvirkis. Skoðað verði hvort hægt sé að ná þessu markmiði með aðkomu óháðra og sérhæfðra skoðunarstofa. Þá verði endurskoðað eftirlit með breytingum og notkun á þegar byggðum mannvirkjum. Hafðar verði til hliðsjónar þær leiðir sem farnar hafa verið annars staðar á Norðurlöndum varðandi eftirlit í mannvirkjagerð.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samtök iðnaðarins og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Einstök sveitarfélög, tryggingafélög og fag- og hagsmunaaðilar innan mannvirkjageirans.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Aðgerðaáætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023–2026.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.5. Kolefnislosun bygginga verði reiknuð út, upplýsingunum skilað inn og kolefnislosun takmörkuð.
Markmið: Lífsferilsgreiningar bygginga verði nýttar til að reikna út kolefnislosun frá þeim og draga úr henni.
Framkvæmd: Í framhaldi af útgáfu samræmdrar aðferðafræði við gerð lífsferilsgreininga fyrir íslenskar byggingar verði gert skylt að reikna út kolefnislosun bygginga með gerð svokallaðra lífsferilsgreininga (LCA). Lagt verði til grundvallar að skila þurfi inn lífsferilsgreiningu byggingar bæði þegar sótt er um byggingarleyfi (samkvæmt grófhönnun) og þegar óskað er eftir öryggis- og lokaúttekt (þegar bygging er komin að lokum framkvæmdastigs). Þegar fram líður verði kolefnislosun mannvirkja takmörkuð þannig að sett verði þak á kolefnislosun á hvern fermetra, í takti við samræmingu á norrænni mannvirkjalöggjöf. Hafðar verði til hliðsjónar þær leiðir sem farnar hafa verið annars staðar á Norðurlöndum til að minnka losun frá mannvirkjagerð.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samtök iðnaðarins og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Fag- og hagsmunaaðilar innan mannvirkjageirans og Grænni byggð.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Loftslagsstefna.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.6. Uppbygging og útfærsla íbúðarbyggðar hafi lífsgæði íbúa að leiðarljósi og styðji við vistvænan lífsstíl.
Markmið: Útfærsla uppbyggingar íbúðarbyggðar stuðli að lífsgæðum íbúa þar sem gæði íbúða og nærumhverfis verði tryggð öllum óháð efnahag. Enn fremur styðji uppbygging við grænan lífsstíl íbúa og félagslegan jöfnuð.
Framkvæmd: Öll uppbygging íbúðarbyggðar stuðli að loftslagsvænni landnotkun þar sem tryggð verði samþætting vistvænnar mannvirkjagerðar og vistvænnar skipulagsgerðar. Möguleikar til græns lífsstíls íbúa verði efldir með aðgengi að fjölbreyttum ferðamátum, aðgengi að grænum svæðum og útivist, orkusparnaði, flokkun úrgangs og sjálfbærri notkun auðlinda og innviða. Einnig má nefna aðgerðir til að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga með aðlögun, svo sem með grænum innviðum og útfærslu byggðar með tilliti til hækkunar sjávarborðs.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Skipulagsstofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélög.
Dæmi um samstarfsaðila: Fag- og hagsmunaaðilar innan mannvirkjageirans.
Tímabil: 2024–2028.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Landsskipulagsstefna, byggðaáætlun, loftslagsstefna, samgönguáætlun og borgarstefna.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.7. Íbúðir sem byggðar eru með opinberum húsnæðisstuðningi verði vistvænar og styðji við hugmyndafræði Nýju norrænu kolefnishlutlausu Bauhaus-hreyfingarinnar.
Markmið: Íbúðir sem byggðar eru fyrir tilstuðlan opinbers húsnæðisstuðnings verði vistvænar, til þess fallnar að draga úr kolefnislosun og stuðli að félagslegum jöfnuði og félagslegri blöndun.
Framkvæmd: Útfærðar verði kröfur um vistvæna mannvirkjagerð þegar kemur að húsnæðisuppbyggingu á vegum hins opinbera. Ríkið hafi forgöngu í vistvænni íbúðauppbyggingu og tryggi nauðsynlegan viðbótarstuðning ef með þarf til að mæta auknum kostnaði á framkvæmdatíma. Samhliða þessu verði unnið að útfærslu á hugmyndafræði Nýju norrænu kolefnishlutlausu Bauhaus-hreyfingarinnar á norrænum samstarfsvettvangi ráðherra húsnæðis- og byggingarmála. Með arkitektúr, hönnun og listum verði þannig fundnar leiðir til að byggja og búa á kolefnislausan hátt þannig að nýtt íbúðarhúsnæði og skipulag íbúðarbyggðar verði allt í senn sjálfbært, gæðamikið og fagurt og stuðli að félagslegum jöfnuði og félagslegri blöndun. Sú hugmyndafræði verði innleidd við frekari útfærslu á opinberum húsnæðisstuðningi.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og einstök sveitarfélög.
Dæmi um samstarfsaðila: Grænni byggð og fag- og hagsmunaaðilar innan mannvirkjageirans.
Tímabil: 2024–2028.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Landsskipulagsstefna, byggðaáætlun, loftslagsstefna, samgönguáætlun og borgarstefna.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.8. Betri innleiðing regluverks með eflingu þekkingarnets innan mannvirkjageirans.
Markmið: Gæði í mannvirkjagerð verði bætt.
Framkvæmd: Gæði í mannvirkjagerð verði bætt með þátttöku hagaðila innan mannvirkjageirans við gerð tæknilegra leiðbeininga og með aukinni fræðslu. Samráð verði haft við hagaðila við einföldun byggingarregluverksins án þess að einföldun komi niður á aðgengi, gæðum og öryggi. Fræðsluáætlanir í mannvirkjagerð verði unnar og innleiddar í samstarfi við menntastofnanir á mismunandi skólastigum og í takti við þarfir og stöðu mismunandi fagaðila. Breytt vinnulag verði tekið upp við útgáfu svokallaðra RB-blaða og leiðbeininga við byggingarreglugerð sem geri ráð fyrir aukinni aðkomu viðeigandi sérfræðinga í mannvirkjageiranum.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Dæmi um samstarfsaðila: Menntastofnanir, fag- og hagsmunaaðilar innan mannvirkjageirans.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Aðgerðaáætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023–2026.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.9. Mótun rannsóknarumhverfis mannvirkjagerðar.
Markmið: Öflugt og skilvirkt rannsóknarumhverfi mannvirkjagerðar, með þverfaglegu og breiðu samstarfi sem byggist á miðlægum grunni.
Framkvæmd: Komið verði til framkvæmda þeim aðgerðum sem skilgreindar eru í Vegvísi að mótun rannsóknarumhverfis mannvirkjagerðar í því skyni að styrkja rannsóknir. Þannig verði í fyrsta lagi yfirsýn náð yfir helstu byggingargalla í íslenskum byggingum og þeir greindir ásamt orsökum þeirra, umfangi og fjárhagslegu tjóni fyrir samfélagið allt. Farið verði í markvisst forvarnastarf samhliða þeirri vinnu og í framhaldi af henni. Í öðru lagi verði mótaður miðlægur vettvangur til miðlunar á rannsóknaniðurstöðum. Í þriðja lagi verði fjármögnun Asks – mannvirkjarannsóknasjóðs tryggð til lengri tíma og þar með stuðlað að nýsköpun og samfelldum grunnrannsóknum í mannvirkjagerð. Um leið verði Askur – mannvirkjarannsóknasjóður nýttur sem fjárhagslegur hvati fyrir vistvænni mannvirkjagerð, í samræmi við tillögur starfshóps um skatta og skattaívilnanir á sviði umhverfismála. Með tryggu fjármagni verði unnt að mæta umfangsmiklum samfélagslegum áskorunum sem tengjast mannvirkjagerð, á borð við raka- og mygluskemmdir, byggingargalla, minni losun, aukna endurnýtingu byggingarefna, styttri byggingartíma, meiri hagkvæmni o.fl.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Dæmi um samstarfsaðila: Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, menningar- og viðskiptaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Tæknisetur, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, tækniskólar, Miðstöð hönnunar og arkitektúrs o.fl.
Tímabil: 2024.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Aðgerðaáætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023–2026.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.10. Gerð stafrænna brunavarnaáætlana.
Markmið: Aukin yfirsýn yfir þörf fyrir viðbúnað vegna brunavarna og bætt viðbrögð einstakra sveitarfélaga við eldsvoðum.
Framkvæmd: Þróað verði og innleitt miðlægt kerfi til að halda utan um brunavarnaáætlanir sveitarfélaga sem byggt verði á reynslu af gerð stafrænna húsnæðisáætlana. Slökkvilið og sveitarfélög verði aðstoðuð við að útfæra brunavarnaáætlanir og því fylgt eftir að viðbragðsgeta sé viðunandi.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og slökkvilið um allt land.
Dæmi um samstarfsaðila: Einstök sveitarfélög og Stafrænt Ísland.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Byggðaáætlun.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.11. Tímabundin aðsetursskráning í annars konar húsnæði en íbúðarhúsnæði og eftirlit með brunavörnum.
Markmið: Stuðlað sé að því að fyrir liggi á hverjum tíma réttar upplýsingar um búsetu í öllu húsnæði sem nýtt er til íbúðar og jafnframt að tryggja slökkviliði fullnægjandi heimildir til eftirlits og viðbragða til að tryggja öryggi í slíku húsnæði.
Framkvæmd: Lagt verði fram á Alþingi frumvarp til laga til að tryggja nauðsynlegar lagaheimildir til að takmarka fjölda lögheimilisskráninga í íbúð og heimila tímabundna aðsetursskráningu í annars konar húsnæði en íbúðarhúsnæði. Jafnframt verði tryggðar fullnægjandi lagaheimildir til aðgangs að húsnæði og beitingu viðurlaga ef um brot er að ræða.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, Þjóðskrá Íslands, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, slökkvilið um allt land.
Dæmi um samstarfsaðila: Einstök sveitarfélög.
Tímabil: 2024.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.12. Öryggisúttekt á íbúðarhúsnæði.
Markmið: Tryggt verði að íbúðarhúsnæði sé ekki tekið í notkun án þess að fram hafi farið öryggisúttekt fyrir eða samhliða lokaúttekt.
Framkvæmd: Gerðar verði breytingar á byggingarlöggjöf til að tryggja eftirfylgni með ákvæðum laga um að íbúðarhúsnæði sé ekki tekið í notkun án þess að öryggisúttekt liggi fyrir. Slík úttekt skal framkvæmd eins fljótt og auðið er.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Einstök sveitarfélög og byggingarstjórar.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.13. Algild hönnun og aðgengi fyrir öll.
Markmið: Aukin verði vitund um þarfir fatlaðs fólks og eldra fólks í manngerðu rými og þróaðar hugvitsamlegar lausnir sem bæti aðgengi og auki lífsgæði.
Framkvæmd: Við endurskoðun byggingarreglugerðar verði horft til þess að auka vitund um þarfir fatlaðs fólks og eldra fólks í manngerðu rými og þróa hugvitsamlegar lausnir sem bæti aðgengi og auki lífsgæði. Endurskoðuð verði forskriftarákvæði byggingarreglugerðar sem geta takmarkað nýsköpun í hönnun og aðgengi hönnuða að leiðbeiningum bætt. Safnað verði og miðlað þekkingu til að tryggja að öll, hvort sem það eru fagaðilar, almenningur, eigendur eða notendur, hafi aðgang að upplýsingum og fræðslu um málefni tengd mismunandi þörfum fólks og heildstæðum leiðbeiningum um hvernig hægt sé að uppfylla kröfur um algilda hönnun og aðgengi fyrir öll í manngerðu umhverfi.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Dæmi um samstarfsaðila: ÖBÍ réttindasamtök, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök iðnaðarins, Arkitektafélag Íslands, Félag íslenskra landslagsarkitekta, Félag húsgagna- og innanhússarkitekta og Byggingafræðingafélag Íslands.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Aðgerðaáætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023–2026.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.14. Mannvirkjastefna.
Markmið: Unnin verði heildstæð stefnumótun á sviði mannvirkjamála með það að leiðarljósi að auka gæði, öryggi, nýsköpun og sjálfbærni, ásamt því að tryggja betur réttarvernd neytenda og bæta starfsumhverfi byggingariðnaðarins.
Framkvæmd: Heildstæð mannvirkjastefna verði unnin í samræmi við skilgreint stefnumótunarferli Stjórnarráðsins, svokallaðan sporbaug stefnumótunar, á grundvelli þeirrar vinnu sem hefur farið fram á þessu sviði á vettvangi starfshópa á undanförnum árum, m.a. um endurskoðun byggingarreglugerðar, aukna samræmingu byggingarreglugerða Norðurlandanna og norrænu samstarfsverkefnin Norræn vistvæn mannvirkjagerð og Nýja norræna kolefnishlutlausa Bauhaus-hreyfingin.
Unnin verði grænbók um mannvirkjamál á grundvelli nauðsynlegrar greiningarvinnu og samráðs við hagaðila þar sem fram komi stöðumat í málaflokknum. Í framhaldinu verði sett fram hvítbók um mannvirkjamál með drög að stefnu í málaflokknum til fimmtán ára og aðgerðaáætlun til fimm ára í málaflokknum. Að opnu samráði loknu verði lögð fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um mannvirkjastefnu til fimmtán ára ásamt aðgerðaáætlun til fimm ára. Mannvirkjastefna hafi það að markmiði að auka gæði, öryggi, nýsköpun og sjálfbærni, ásamt því að tryggja betur réttarvernd neytenda og bæta starfsumhverfi byggingariðnaðarins. Áfram verði unnið að því að innleiða stafræna stjórnsýslu og einfalda umgjörð um byggingariðnað í því skyni að lækka byggingarkostnað án þess að það sé á kostnað gæða og algildrar hönnunar.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Dæmi um samstarfsaðila: Skipulagsstofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, einstök sveitarfélög og fag- og hagsmunaaðilar innan mannvirkjageirans.
Tímabil: 2025–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Húsnæðisstefna og stefna hönnunar og arkitektúrs til 2030.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.15. Aukinn sveigjanleiki varðandi breytingar á deiliskipulagi og stjórnsýslu byggingarmála.
Markmið: Uppbygging húsnæðis verði gerð skilvirkari og einfaldari með auknum sveigjanleika við breytingar á deiliskipulagi.
Framkvæmd: Ferli við breytingar á deiliskipulagi verði einfaldað. Sveigjanleiki í deiliskipulagi og skipulagsskilmálum þess verði aukinn. Það hvetur til nýrra og hagkvæmari lausna í mannvirkjagerð sem skila sér í lægri byggingarkostnaði án þess að gerðar séu minni kröfur um umhverfisgæði bygginga, vistspor framkvæmda og að aðgengi sé áfram tryggt.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið.
Dæmi um samstarfsaðila: Stafrænt Ísland, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Skipulagsstofnun, Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðilar vinnumarkaðarins.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
2.16. Ný og skilvirkari flokkun í leyfisveitingakerfum opinberra aðila.
Markmið: Innleidd verði ný flokkun í leyfisveitingakerfum opinberra aðila til að hraða framgangi umsókna um byggingarleyfi.
Framkvæmd: Kerfi þar sem athugasemdir opinberra aðila við einstök atriði í umsóknum um byggingarleyfi verði flokkaðar eftir mikilvægi og flækjustigi og greint hvaða úrbóta sé þörf og hvernig megi bregðast við þeim á sem skjótastan hátt. Þannig þurfi ekki að hafna eða fresta útgáfu framkvæmdaleyfa eða afgreiðslu byggingarleyfisumsókna vegna smávægilegra athugasemda fram úr hófi heldur geti byggingarfulltrúi gefið út byggingarleyfi með fyrirvara ef tekið er tillit til athugasemda innan ákveðins frests.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið.
Dæmi um samstarfsaðila: Stafrænt Ísland, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Skipulagsstofnun, Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðilar vinnumarkaðarins.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3. Landsmenn búi við húsnæðisöryggi og jafnrétti í húsnæðismálum með því að sköpuð verði skilyrði með markvissum húsnæðisstuðningi til að öll hafi aðgengi að öruggu og góðu húsnæði með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.
3.1. Endurskoðun lánaheimilda með tilliti til almannaþjónustuhlutverks Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á húsnæðismarkaði.
Markmið: Lánaheimildir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar styðji við markmið húsnæðisstefnu í samræmi við almannaþjónustuhlutverk stofnunarinnar.
Framkvæmd: Húsnæðisstuðningur í formi mismunandi lánaheimilda Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verði endurskoðaður með hliðsjón af almannaþjónustuhlutverki stofnunarinnar á húsnæðismarkaði og hann gerður markvissari í því skyni að hann styðji við markmið húsnæðisstefnu. Lánaheimildir stofnunarinnar verði á samfélagslegum forsendum og þannig afmarkaðar með skýrum hætti við tekjulág og eignalítil heimili og heimili með þunga framfærslubyrði óháð búsetuformi. Markmiðið er að tryggja tekju- og eignaminni einstaklingum og fjölskyldum, fyrstu kaupendum, heimilum með þunga framfærslubyrði og þeim sem búa á svæðum þar sem markaðsbrestur er aðgengi að húsnæðislánum. Lán verði enn fremur veitt til lögaðila og sveitarfélaga vegna húsnæðis fyrir þá hópa.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Dæmi um samstarfsaðila: Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.2. Húsnæðisstuðningur nýtist í auknum mæli til að auka framboð öruggra og góðra íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.
Markmið: Opinber húsnæðisstuðningur nýtist í auknum mæli til þess að stuðla að auknu framboði öruggra og góðra íbúða þar sem húsnæðiskostnaður verði viðráðanlegur og samhliða minnki þörf á stuðningi á eftirspurnarhlið markaðarins, svo sem húsnæðisbótum, sérstökum húsnæðisstuðningi og vaxtabótum.
Framkvæmd: Greint verði hvernig auka megi húsnæðisstuðning hins opinbera til að fjölga íbúðum með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði á sama tíma og beinn húsnæðisstuðningur verði betur afmarkaður við tekju- og eignaminni hópa á húsnæðismarkaði.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Skatturinn og heildarsamtök á vinnumarkaði.
Tímabil: 2025–2028.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.3. Aukin aðkoma sveitarfélaga að uppbyggingu innan almenna íbúðakerfisins.
Markmið: Aukið aðgengi tekju- og eignaminni hópa að öruggum og góðum leiguíbúðum með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði alls staðar á landinu.
Framkvæmd: Skoðaður verði fýsileiki þess að stofna húsnæðissjálfseignarstofnun sem byggi og reki almennar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu eða nýta Brák íbúðafélag hses. Með aukinni aðkomu sveitarfélaga að uppbyggingu innan almenna íbúðakerfisins verði stutt við markmið húsnæðisstefnu, fjármálaáætlunar og rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um fjölda íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði. Með því verði einnig stuðlað að aðgengi tekju- og eignaminna fólks að almenna íbúðakerfinu sem að öðrum kosti hafi ekki aðgang að því, svo sem innflytjenda, þ.m.t. flóttafólks. Tekið verði til skoðunar að slíkt félag ráðist í átak í uppbyggingu almennra íbúða sem fyrst um sinn verði ætlaðar sérstaklega flóttafólki gegn sérstöku viðbótarframlagi ríkis.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög sem eiga aðild að Brák íbúðafélagi hses.
Tímabil: 2024.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.4. Sveitarfélögum tryggð heimild til að skilyrða notkun lands til uppbyggingar íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.
Markmið: Tryggt verði framboð öruggra og góðra íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði og blönduð byggð tryggð með því að sveitarfélög hafi heimild til að skilyrða notkun lands til uppbyggingar slíkra íbúða, óháð eignarhaldi lóða.
Framkvæmd: Lagt verði fram frumvarp á Alþingi til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010, þar sem sveitarfélögum verði veitt heimild til að gera kröfu um að við gerð deiliskipulags verði allt að 25% af heildarfermetrafjölda íbúða innan skipulagssvæðis fyrir almennar íbúðir og íbúðir sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána og lána til leiguíbúða samkvæmt lögum um húsnæðismál.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið og Skipulagsstofnun.
Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Tímabil: 2024.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Landsskipulagsstefna.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.5. Bætt réttarstaða og húsnæðisöryggi leigjenda.
Markmið: Húsnæðisöryggi og réttarstaða leigjenda samkvæmt húsaleigulögum verði bætt.
Framkvæmd: Lagt verði fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með hliðsjón af tillögum starfshóps innviðaráðherra um endurskoðun húsaleigulaga og aðgerðum ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga í mars 2024.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið.
Dæmi um samstarfsaðila: Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Skatturinn, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, kærunefnd húsamála og heildarsamtök á vinnumarkaði.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.6. Endurskoðun beins húsnæðisstuðnings við leigjendur í formi húsnæðisbóta frá ríki og sérstaks húsnæðisstuðnings frá sveitarfélögum.
Markmið: Aukið verði jafnræði og stuðningskerfi við leigjendur einfölduð.
Framkvæmd: Lagðar verði til viðeigandi breytingar á lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, og ákvæðum laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, um sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga með hliðsjón af tillögum starfshóps innviðaráðherra um endurskoðun húsnæðisstuðnings við leigjendur. Horft verði til þess að einfalda stuðningskerfin til að gera þau notendavænni, auka jafnræði leigjenda, eftir atvikum með sameiningu stuðningskerfanna eða sameiginlegri umsóknargátt og samræmdari reglum milli sveitarfélaga, og beina stuðningnum betur til hinna tekju- og eignaminni.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og einstök sveitarfélög.
Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.7. Breytt fyrirkomulag hlutdeildarlána og stofnframlaga.
Markmið: Stuðlað verði að fjölgun íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði með því að húsnæðisstuðningur í formi stofnframlaga til almennra íbúða og hlutdeildarlána til íbúðarkaupa nái betur markmiðum sínum og stuðli að sjálfbærni með vistvænni mannvirkjagerð.
Framkvæmd: Lagt verði fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingar á fyrirkomulagi stofnframlaga samkvæmt lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016, og fyrirkomulagi hlutdeildarlána samkvæmt lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, til að einfalda ferla og auka skilvirkni við veitingu stofnframlaga og hlutdeildarlána og hvetja til uppbyggingar íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði í samræmi við markmið rammasamnings ríkis og sveitarfélaga. Meðal annars verði kveðið á um breytt stofnframlag ríkisins vegna sérstakra aðstæðna sveitarfélaga, svo sem í tengslum við markaðsvirði lóða, og kveðið á um viðbótarstuðning vegna vistvænnar mannvirkjagerðar og staðsetningar í nálægð við hágæðaalmenningssamgöngur.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög, húsnæðisfélög, byggingaraðilar og aðilar vinnumarkaðarins.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Samgönguáætlun.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.8. Fjármögnunarkostnaður byggingaraðila í almenna íbúðakerfinu verði lækkaður.
Markmið: Styrktur verði grundvöllur til uppbyggingar húsnæðis með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.
Framkvæmd: Greint verði hvernig lækka megi fjármögnunarkostnað byggingaraðila í almenna íbúðakerfinu til að styrkja grundvöll uppbyggingar húsnæðis með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði þannig að unnt verði að fullfjármagna verkefni á þannig kjörum að húsnæðiskostnaður leigjenda verði í samræmi við greiðslugetu þeirra eða að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna, í samræmi við markmið laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Dæmi um samstarfsaðila: Seðlabanki Íslands og húsnæðisfélög.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.9. Greind verði þörf fyrir félagslegt húsnæði sveitarfélaga.
Markmið: Náð verði yfirsýn yfir raunstöðu á þörf fyrir félagslegt húsnæði innan hvers sveitarfélags og tryggðar áætlanir til að mæta þeirri þörf.
Framkvæmd: Sveitarfélög sammælist um skilgreiningar á einstökum félagshópum og möguleg viðmið um hverjir eigi rétt á félagslegu húsnæði. Að því loknu verði húsnæðisþörfin greind innan hvers sveitarfélags og sett fram áætlun um hvernig henni skuli mætt. Hugtakanotkun verði samræmd í þessu skyni þannig að heildaryfirsýn náist. Samhliða verði litið til greiningar á biðlistum annarra húsnæðisfélaga eins og við getur átt.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, sveitarfélög og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Bjarg íbúðafélag hses., Brák íbúðafélag hses., Leigufélagið Bríet ehf., Félagsstofnun stúdenta, Brynja leigufélag, ÖBÍ – réttindasamtök, Landssamband eldri borgara, Þroskahjálp, Geðhjálp og fleiri félög og félagasamtök.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.10. Jöfn kostnaðardreifing milli sveitarfélaga vegna félagslegra húsnæðisúrræða.
Markmið: Kostnaðardreifing milli sveitarfélaga verði jöfn vegna lögbundinnar skyldu til að tryggja nauðsynlegt framboð félagslegra húsnæðisúrræða.
Framkvæmd: Greint verði með hvaða hætti unnt er að dreifa kostnaði vegna húsnæðisúrræða sveitarfélaga á milli sveitarfélaga með sanngjörnum hætti, svo sem með nýjum eða breyttum framlögum, til að mynda úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sem endurspegli sem best raunkostnað sveitarfélaga við rekstur félagslegra húsnæðisúrræða.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og einstök sveitarfélög.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.11. Fjölbreyttir búsetukostir fyrir eldra fólk.
Markmið: Aukið verði aðgengi að fjölbreyttum búsetukostum fyrir eldra fólk, bæði með tilliti til húsnæðiskostnaðar og aðgengismála til að auðvelda eldra fólki að búa sem lengst heima.
Framkvæmd: Greint verði í samvinnu við samstarfsvettvanginn Gott að eldast hvers konar húsnæði og hvaða framkvæmdir séu nauðsynlegar til að fjölga búsetukostum og stuðla að því að fólk geti búið sem lengst heima. Í því sambandi verði skoðaðar fyrirmyndir frá öðrum löndum, m.a. hvað varðar húsnæðisstuðning vegna breytinga á heimilum eldra fólks og fatlaðs fólks. Könnuð verði þörf og möguleikar á því að þjónustuíbúðum sem sveitarfélög eiga og skilgreindar eru sem félagslegt húsnæði megi úthluta til eldra fólks eingöngu vegna þjónustuþarfa. Niðurstöður greiningarvinnu liggi til grundvallar áframhaldandi stefnumótun og aðgerðum til að ná framangreindu markmiði. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun útbúi leiðbeiningar um húsnæði fyrir eldra fólk. Fyrir liggi í húsnæðisáætlunum sveitarfélaga hvar reistar verði íbúðir fyrir eldra fólk og hversu margar.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Landssamband eldri borgara og einstök sveitarfélög.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Gott að eldast – aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk, landsskipulagsstefna.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.12. Aukinn húsnæðisstuðningur úr fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til uppbyggingar á sértæku húsnæði á vegum sveitarfélaga fyrir fatlað fólk.
Markmið: Stuðlað verði að nauðsynlegri uppbyggingu sértækra húsnæðisúrræða fyrir fatlað fólk til að stytta biðtíma og tryggja að öllum þeim sem búa á herbergjasambýlum fyrir fatlað fólk bjóðist aðrir búsetukostir.
Framkvæmd: Fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga leggi til aukna fjármuni til uppbyggingar á sértæku húsnæði fyrir fatlað fólk á vegum sveitarfélaga. Gerðar verði viðeigandi breytingar á löggjöf til að auka viðbótarframlög sjóðsins í gegnum almenna íbúðakerfið til uppbyggingar á sértæku húsnæði fyrir fatlað fólk. Viðbótarframlög frá ríki verði hækkuð vegna umrædds húsnæðis og fasteignasjóður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga standi straum af þeirri hækkun. Útbúin verði tímasett áætlun um uppbyggingu í samstarfi ríkis og sveitarfélaga og hún innleidd og henni fylgt eftir í húsnæðisáætlunum sveitarfélaga.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og einstök sveitarfélög.
Dæmi um samstarfsaðila: Félagasamtök.
Tímabil: 2024 –2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Stefna um málefni fatlaðs fólks.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.13. Húsnæði fyrir heimilislaust fólk.
Markmið: Dregið verði úr heimilisleysi.
Framkvæmd: Greindur verði fjöldi heimilislausra og húsnæðisþörf þeirra, m.a. með hliðsjón af ólíkum flokkum heimilisleysis samkvæmt skilgreiningu ETHOS. Aðgerðaáætlun verði mótuð í samstarfi við sveitarfélög um að leysa úr húsnæðisþörfinni, ekki síst heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, á grundvelli hugmyndafræðinnar um húsnæði fyrst. Stutt verði við uppbyggingu þessara húsnæðisúrræða með opinberum húsnæðisstuðningi.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið, félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Dæmi um samstarfsaðila: Heilbrigðisráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og sveitarfélög um land allt.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.14. Bætt upplýsingagjöf og þjónusta vegna beins húsnæðisstuðnings til einstaklinga í gegnum Ísland.is.
Markmið: Bætt verði aðgengi að upplýsingum og þjónustu vegna beins húsnæðisstuðnings til einstaklinga.
Framkvæmd: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun innleiði kjarnavörur Ísland.is við þjónustu við einstaklinga, m.a. vegna beins húsnæðisstuðnings til einstaklinga, líkt og húsnæðisbóta og lánveitinga. Það felist til að mynda í innleiðingu veflausnar, þjónustuborðs, stafræns pósthólfs og umsóknarferla í gegnum Ísland.is. Með því verði aðgengilegar á einum stað upplýsingar um húsnæðisstuðning ríkisins fyrir einstaklinga. Tryggt verði að þjónustan sé veitt með mismunandi aðgengisþarfir í huga og á mismunandi tungumálum til að bæta upplýsingagjöf til þeirra sem hafa ekki íslensku að móðurmáli.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Stafrænt Ísland.
Dæmi um samstarfsaðila: Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélög um land allt og félagasamtök.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Stefna um stafræna þjónustu hins opinbera.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
3.15. Stuðlað verði að hækkun hlutfalls þeirra sem búa í eigin húsnæði.
Markmið: Að áhersla sé lögð á að fólk geti eignast eigið húsnæði með eða án stuðnings hins opinbera.
Framkvæmd: Kortlagt verði hve margir komist af leigumarkaði í eigið húsnæði og hve stór hluti ungs fólks komist inn á húsnæðismarkað á ársgrundvelli í samanburði við fyrri ár með það fyrir augum að greina aðstæður á húsnæðismarkaði og hindranir. Stuðlað verði að uppbyggingu á minni og hagkvæmari húsakosti fyrir hóp fyrstu kaupenda.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Dæmi um samstarfsaðila: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 9, 10, 11, 13, 16 og 17.
4. Framboð íbúða stuðli að virkum vinnumarkaði og styðji við öflug vinnusóknarsvæði um allt land.
4.1. Tryggð byggð – samstarfsvettvangur um húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni.
Markmið: Stuðlað verði að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis um land allt, einkum á köldum markaðssvæðum þar sem misvægi er milli byggingarkostnaðar og markaðsverðs húsnæðis, til að rjúfa stöðnun uppbyggingar á landsbyggðinni.
Framkvæmd: Átak verði gert til að fjölga sveitarfélögum sem eiga aðild að Tryggðri byggð til að bæta aðgengi að upplýsingum um verkfæri og samstarf til að stuðla að húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og sveitarfélög um land allt.
Dæmi um samstarfsaðila: Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Tímabil: 2024–2028.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Byggðaáætlun.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
4.2. Uppbygging leigufélaga með aðkomu stofnanafjárfesta.
Markmið: Aukin verði fjölbreytni á leigumarkaði með því að gera stofnanafjárfestum betur kleift að fjárfesta í leiguhúsnæði.
Framkvæmd: Kannaður verði áhugi stofnanafjárfesta, þ.m.t. lífeyrissjóða, til að fjárfesta í leigufélögum og greindar verði lagalegar hindranir fyrir aðkomu þeirra að slíkum fjárfestingarkostum. Lögum verði eftir atvikum breytt til að styðja við slíka fjárfestingu og uppbyggingu leigufélaga. Komið verði á samvinnu við sveitarfélög til að útvega lóðir sem henta starfseminni. Kannaðir verði kostir þess að setja löggjöf hér á landi um fasteignafjárfestingarsjóði.
Ábyrgðarráðuneyti: Fjármála- og efnahagsráðuneytið og innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Fjármála- og efnahagsráðuneytið og innviðaráðuneytið.
Dæmi um samstarfsaðila: Stofnanafjárfestar, sveitarfélög og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Tímabil: 2024–2025.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Nýsköpunarlandið Ísland og stefna í lífeyrismálum.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
4.3. Leiguíbúðum á landsbyggðinni verði fjölgað.
Markmið: Aukin verði samkeppnishæfni vinnusóknarsvæða á landsbyggðinni með greiðara og stöðugra aðgengi að leiguhúsnæði þar sem á því er þörf.
Framkvæmd: Greint verði hvar skortur á leiguhúsnæði standi atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni fyrir þrifum. Jafnframt verði viðkomandi sveitarfélögum boðið að leggja íbúðir inn í Leigufélagið Bríeti gegn eignarhlut í félaginu. Með þessu fáist aukinn slagkraftur í uppbyggingu leiguíbúða á landsbyggðinni auk rekstrarhagkvæmni.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Byggðastofnun, Leigufélagið Bríet ehf. og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Dæmi um samstarfsaðila: Sveitarfélög á landsbyggðinni.
Tímabil: 2024–2028.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Byggðaáætlun.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
4.4. Húsnæðissamvinnufélög á landsbyggðinni.
Markmið: Aukin verði fjölbreytni búsetukosta fyrir þá sem vilja öruggt og gott húsnæði vegna atvinnusóknar á Íslandi.
Framkvæmd: Kannaðar verði leiðir til að auðvelda þeim sem hafa tímabundna búsetu á tilteknu atvinnusvæði að eignast búseturétt í búsetuíbúð í húsnæðissamvinnufélagi sem auðvelt er að selja. Skoðuð verði lagaumgjörð húsnæðissamvinnufélaga og hugsanleg aðkoma Húsnæðissjóðs að fjármögnun búseturéttar á landsbyggðinni.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Dæmi um samstarfsaðila: Húsnæðissamvinnufélög, svo sem Búseti hsf., Búfesti hsf. og Búmenn hsf.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Nýsköpunarlandið Ísland.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
4.5. Sveitarfélög hafi heimild til að takmarka umfang leigu íbúðarhúsnæðis undir rekstrarleyfisskylda gististarfsemi til að auka framboð íbúða til fastrar búsetu.
Markmið: Sveitarfélög hafi skýra heimild til að takmarka rekstrarleyfisskylda gististarfsemi í íbúðum í því skyni að auka framboð íbúðarhúsnæðis til fastrar búsetu.
Framkvæmd: Gerðar verði breytingar á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, til að veita sveitarfélögum skýra heimild til að takmarka umfang rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi í íbúðarhúsnæði í því skyni að auka framboð á íbúðum til fastrar búsetu. Samhliða verði kannað hvaða hagrænir hvatar geti stutt við að húsnæði sem er nýtt til rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi verði frekar nýtt til fastrar búsetu.
Ábyrgðarráðuneyti: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Einstök sveitarfélög og sýslumenn.
Dæmi um samstarfsaðila: Innviðaráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið, Skipulagsstofnun og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Tímabil: 2024–2026
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Á ekki við.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
4.6. Lagaumgjörð verði sett um lóðarleigusamninga.
Markmið: Skilmálar sem gilda um lóðamál verði samræmdir svo tryggja megi jafnræði íbúa óháð búsetu.
Framkvæmd: Frumvarp til laga um lóðarleigusamninga verði lagt fram á Alþingi. Með því verði sett fram heildstæð löggjöf um lóðarleigusamninga til að stuðla að auknu samræmi skilmála í slíkum samningum og tryggja þar með jafnræði íbúa óháð búsetu.
Ábyrgðarráðuneyti: Innviðaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Innviðaráðuneytið.
Dæmi um samstarfsaðila: Samband íslenskra sveitarfélaga, einstök sveitarfélög, Skipulagsstofnun og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Tímabil: 2024–2026.
Tenging við aðrar stefnur/áætlanir ríkisins: Nýsköpunarlandið Ísland.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: 11, 9, 16, 17 og 13.
Samþykkt á Alþingi 22. júní 2024.