Ferill 942. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2116 — 942. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Orkusjóð, nr. 76/2020 (Loftslags- og orkusjóður).
(Eftir 2. umræðu, 22. júní.)
1. gr.
b. Í stað orðsins „Orkusjóðs“ í 1. mgr. 2. gr., 1., 2. og 3. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr., 1. og 2. mgr. 5. gr., 6. gr., 7. gr., 2. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. 8. gr. laganna kemur: Loftslags- og orkusjóðs.
c. Í stað orðsins „Orkusjóði“ í 1. og 2. mgr. 4. gr., 1. mgr. 5. gr. og 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. laganna kemur: Loftslags- og orkusjóði.
2. gr.
3. gr.
Loftslags- og orkusjóður skal enn fremur styðja við nýsköpunar- og innviðaverkefni á sviði loftslagsmála, verkefni sem stuðla að innleiðingu hringrásarhagkerfisins og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga.
Jafnframt er hlutverk Loftslags- og orkusjóðs að sjá um beinar stuðningsaðgerðir, svo sem styrki til kaupa á rafbílum og styrki til jarðhitaleitar, eftir atvikum hverju sinni.
4. gr.
a. 1. mgr. orðast svo:
Ráðherra skipar fimm einstaklinga í stjórn Loftslags- og orkusjóðs til fjögurra ára. Formaður skal skipaður án tilnefningar og honum til viðbótar skipar ráðherra einn fulltrúa án tilnefningar, einn fulltrúa, sem hefur þekkingu á loftslagsmálum, samkvæmt tilnefningu háskólasamfélagsins, einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins og einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu umhverfisverndarsamtaka.
b. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Stjórninni er þó heimilt að framselja óháðum aðila faglega umsýslu sjóðsins samkvæmt samningi.
c. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ákvarðanir sem teknar eru um að veita styrki úr Loftslags- og orkusjóði eru endanlegar á stjórnsýslustigi.
5. gr.
6. gr.
7. gr.
8. gr.
1. Lög um loftslagsmál, nr. 70/2012:
a. 4. mgr. 4. gr. laganna fellur brott.
b. IX. kafli laganna ásamt fyrirsögn fellur brott.
2. Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003: Í stað heitisins „Orkusjóði“ í ákvæði til bráðabirgða LXXVII í lögunum kemur: Loftslags- og orkusjóði.