Ferill 1155. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2142 — 1155. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um loftslagsáhrif lagafrumvarpa.
1. Hvenær lauk ráðuneytið vinnu við leiðbeinandi viðmið til að meta loftslagsáhrif lagafrumvarpa, sbr. aðgerð G.6 í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum frá árinu 2020?
Árið 2023 var settur á fót starfshópur á vegum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, sem í sátu fulltrúar fimm ráðuneyta ásamt fulltrúa frá Umhverfisstofnun. Starfshópurinn fékk það hlutverk að vinna að útfærslu mats á loftslagsáhrifum lagafrumvarpa. Meðan á vinnunni stóð var ákveðið að leiðbeiningarnar skyldu fjalla um mat á áhrifum lagasetningar á loftslag, umhverfi og náttúru.
Vorið 2024 lauk starfshópurinn vinnu við gerð leiðbeininga og sniðmáts fyrir mat á áhrifum lagasetningar á loftslag, umhverfi og náttúru sem þegar hafa verið kynnt fyrir ráðuneytisstjórum.
Næstu skref við innleiðingu áhrifamatsins eru að starfshópurinn velji nokkur frumvörp á þingmálaskrá sem fyrirséð er að hafi áhrif á loftslag, umhverfi og náttúru. Lagt er upp með að áhrifamatið verði unnið af viðkomandi sérfræðingum í samráði við Umhverfisstofnun. Gert er ráð fyrir að vorið 2025 verði leiðbeiningar um mat á áhrifum lagasetningar á loftslag, umhverfi og náttúru gefnar út og nýtt fyrirkomulag kynnt ráðuneytunum.
2. Hvaða lagafrumvörp hafa verið metin sérstaklega miðað við áhrif á loftslag í samræmi við aðgerð G.6 í aðgerðaáætluninni?
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (virkjunarkostir í vindorku). Frumvarpið hefur verið lagt fram á 154. löggjafarþingi (þskj. 1339, 900. mál).