Ferill 1141. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2143  —  1141. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um skýrslur um loftslagsmál.


     1.      Hvenær skilaði verkefnisstjórn síðast skýrslu um framgang aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum, sem skal skilað árlega skv. 4. mgr. 5. gr. laga um loftslagsmál, nr. 70/2012?
    Gert er ráð fyrir að næsta stöðuskýrsla verði gefin út á vormánuðum 2025 og gefi stöðu vegna áranna 2023 og 2024. Síðasta stöðuskýrsla vegna aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum var gefin út í júlí 2022.
    Ákveðið var að bíða með gerð stöðuskýrslu aðgerðaáætlunar árið 2023 þangað til uppfærslu áætlunar væri lokið sem síðan dróst til júní 2024.

     2.      Hver er ástæða þess að ráðherra hefur ekki flutt Alþingi skýrslu um stöðu loftslagsmála, sbr. 2. mgr. 5. gr. d sömu laga?
    Á yfirstandandi og síðustu tveimur löggjafarþingum hafa þingmenn kallað eftir sérstakri umræðu á Alþingi um loftslagsmál þar sem ráðherra hefur farið yfir stöðu loftslagsmála. Þann 30. apríl sl. tók ráðherra þátt í slíkri umræðu á Alþingi og fór ráðherra þá yfir stöðu loftslagsmála í framsögu sinni. Þann 24. janúar 2023 fór ráðherra einnig yfir stöðu loftslagsmála í framsögu vegna sérstakrar umræðu um niðurstöður COP 27 og þann 1. febrúar 2022 flutti ráðherra framsögu um stöðu loftslagsmála í sérstakri umræðu á Alþingi um loftslagsmál. Auk þessa hyggst ráðherra gefa Alþingi árlega skýrslu um stöðu loftslagsmála á vormánuðum 2025.