Ferill 695. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2144  —  695. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Eyjólfi Ármannssyni um eftirlit með framkvæmd ákæruvalds.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvernig hefur eftirliti ráðherra með framkvæmd ákæruvaldsins skv. 1. mgr. 19. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, verið háttað síðan lögin tóku gildi? Hversu oft og í hvernig málum hefur ráðherra óskað eftir gögnum og greinargerð um meðferð einstakra mála í skjóli eftirlitsheimilda sinna?
     2.      Hafa einhver viðmið verið sett hjá ráðherra varðandi framkvæmd eftirlitsheimildar 1. mgr. 19. gr. í ljósi þess að í fyrri svörum ráðherra hefur komið fram að ákvæðinu hafi ávallt verið beitt af mikilli varfærni og aðeins í undantekningartilvikum? Ef svo er, hver eru þau viðmið?
     3.      Á hvaða grundvelli byggist sú túlkun ráðherra að fyrrnefnt ákvæði feli ekki í sér almenna heimild til að ,,óska eftir upplýsingum um stöðu einstakra mála eða hvernig rannsókn þeirra miðar“ miðað við skýrt orðalag ákvæðisins?
     4.      Hvaða skýringum óskar ráðuneytið eftir í greinargerð um einstakt mál ef ekki er verið að „óska eftir upplýsingum um stöðu einstakra mála eða hvernig rannsókn þeirra miðar“ líkt og ráðherra telur að felist ekki í eftirlitsheimild hans?


    Sá ráðherra sem fer með málefni lögreglu og ákæruvalds ber stjórnarfarslega ábyrgð á framkvæmd málaflokksins, meðal annars gagnvart Alþingi.
    Ákvæði 1. mgr. 19. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, felur í sér almenna eftirlitsheimild ráðherra með framkvæmd ákæruvalds og hefur ákvæðið verið túlkað á þann veg að beita þurfi heimildinni af varfærni og með hliðsjón af sjálfstæði ákæruvaldsins. Sjálfstæði ákæruvaldsins er tryggt í lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, sbr. meðal annars 2. og 3. mgr. 18. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008.
    Sérstöðu ákæruvaldsins í þessu sambandi má meðal annars leiða af því að um það gilda sérstök lög, lög um meðferð sakamála, og að ákvarðanir ríkissaksóknara verða ekki kærðar til ráðherra. Þrátt fyrir að ráðherra geti óskað upplýsinga í formi gagna eða greinargerðar frá ríkissaksóknara samkvæmt eftirlitsheimild sakamálalaga þá haggar sú heimild ekki sjálfstæði ákæruvaldsins og inntaki þeirrar meginreglu.
    Í þessu sambandi er einnig rétt að nefna að ákvæði 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, um réttláta málsmeðferð er talið fela í sér mikilvægi þess að sjálfstæði ákæruvaldsins sé tryggt. Í þessu sambandi vísast einnig til 6. gr. laga um mannréttindasáttmála Evrópu, nr. 62/1994, um réttinn til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi.
    Hvað varðar umfjöllun um inntak eftirlitsheimildar ráðherra með lögreglu og ákæruvaldinu vísast meðal annars til álits umboðsmanns Alþingis í málum nr. 11750/2022 og 8122/2014. Inntak ákvæðisins hefur einkum verið talið fela í sér heimild ráðherra til að hafa almennt eftirlit með því að ekki verði út af brugðið í almennri starfsemi ríkissaksóknara eða ákæruvaldsins en síður í einstökum málum.
    Beiðni ráðherra um upplýsingar um meðferð einstakra mála innan ákæruvaldsins, svo sem með beiðni um gögn eða greinargerð, er því ekki talin heimil nema í undantekningartilvikum og að virtu ítarlegu heildstæðu mati. Ákvæðið hefur ekki verið talið fela í sér almenna heimild fyrir ráðherra til að hafa afskipti af málum sem eru til meðferðar innan ákæruvaldsins eða gefa fyrirmæli um rannsókn máls.
    Viðmiðin um túlkun á tilvitnaðri lagagrein laga um meðferð sakamála þarf því ávallt að skoða með hliðsjón af sjálfstæði ákæruvaldsins og öðrum grundvallarreglum, skráðum sem óskráðum, sem gilda innan stjórnsýslunnar og um meðferð ákæruvalds.
    Einungis hefur örsjaldan komið til þess, eða komið til skoðunar, að ráðherra hafi óskað eftir gögnum og greinargerð um meðferð einstakra mála á grundvelli ákvæðis 1. mgr. 19. gr. laga nr. 88/2008 sem undirstrikar hversu varlega er farið í að beita þessari heimild. Fer það eftir eðli máls hverju sinni hvaða skýringum óskað er eftir.