Ferill 869. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2148  —  869. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um kostnað vegna umsókna um alþjóðlega vernd.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefur verið árlegur heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess frá árinu 2015 vegna umsókna um alþjóðlega vernd? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum, verkefnum, úrræðum og öðru sem við á, þ.m.t. vegna endurgreiðslna skv. 15. gr. barnaverndarlaga.

    Með forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022, sem tók gildi 1. febrúar 2022, voru málefni barna og ungmenna, þar á meðal barnavernd og málefni barna og ungmenna skv. VIII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, falin mennta- og barnamálaráðuneyti. Upplýsingarnar eru því takmarkaðar við þann kostnað sem kom til eftir þann tíma.
    Mennta- og barnamálaráðuneytið endurgreiðir sveitarfélögum útlagðan kostnað vegna barna sem sækja um alþjóðlega vernd og eru án forsjáraðila, þ.e. fylgdarlausra barna, sbr. 7. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002.
    Heildarkostnaður ráðuneytisins vegna barnaverndarþjónustu sem ríkissjóður endurgreiðir skv. 15. gr. barnaverndarlaga fyrir árin 2022 og 2023 er 674.044.260 kr. og skiptist hann með þeim hætti að árið 2022 var kostnaðurinn 172.199.328 kr. og árið 2023 var kostnaðurinn 501.844.932 kr.
    Skipting kostnaðar sveitarfélaga vegna barnaverndarþjónustu sem ríkissjóður endurgreiðir skv. 15. gr. barnaverndarlaga er eftirfarandi:

Sveitarfélag (upphæðir í kr.) 2022 2023
Akureyrarbær 2.408.773 467.230
Hafnarfjarðarbær – 75.536.332
Kópavogsbær 12.948.433 15.385.092
Mosfellsbær 841.756 –
Reykjavík 94.443.851 197.355.754
Seltjarnarnesbær – 7.134.967
Suðurnesjabær 61.556.515 197.279.214
Sveitarfélagið Árborg – 8.686.343
Samtals 172.199.328 501.844.932

    Ekki liggur fyrir ítarleg sundurgreining kostnaðar vegna barnaverndarþjónustu en stærsti kostnaðarliðurinn snýr einkum að vistunarúrræðum og framfærslu fylgdarlausra barna. Aðrir kostnaðarliðir eru til að mynda aðkeypt sérfræðiþjónusta, svo sem lögfræðiþjónusta og túlkaþjónusta, heilbrigðisþjónusta, svo sem lækna-, tannlækna- og sálfræðiþjónusta, og ferðakostnaður.
    Þá sinnir Barna- og fjölskyldustofa fjölbreyttum verkefnum í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd. Þar á meðal eru verkefni sem tengjast hagsmunagæslu fylgdarlausra barna og leiðbeiningar og ráðgjöf vegna vinnslu mála barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd, bæði fylgdarlausra barna og barna sem eru í fylgd. Ekki liggur fyrir sundurgreining eða verkbókhald um umfang þessara verkefna að undanskilinni sundurliðun eftirfarandi kostnaðarliða stofnunarinnar vegna verkefna sem snúa að móttöku barna á flótta og fjölskyldna þeirra, og heildarframlag ráðuneytisins til Barna- og fjölskyldustofu vegna sömu verkefna fyrir árið 2023 og það sem af er af árinu 2024. Heildarframlag ráðuneytisins var 18.000.000 kr. og skiptist með þeim hætti að árið 2023 var framlagið 13.500.000 kr. en það sem af er árinu 2024 hefur framlagið verið 4.500.000 kr. Sundurliðaður kostnaður Barna- og fjölskyldustofu ásamt heildarframlagi ráðuneytisins til stofnunarinnar vegna verkefna sem snúa að móttöku barna á flótta er eftirfarandi:

Barna- og fjölskyldustofa –
börn á flótta (upphæðir í kr.)
2023 2024 Samtals
Starfsmaður 1 9.647.583 4.527.008 14.174.591
Starfsmaður 2 4.195.051 3.595.619 7.790.670
Stofnkostnaður 1.100.000 – 1.100.000
Annar kostnaður* 2.170.000 1.240.000 3.410.000
Heildarframlag MRN –13.500.000 – 4.500.000 –18.000.000
Samtals kostnaður Barna- og fjölskyldustofu 3.612.634 4.862.627 8.475.261
*Annar kostnaður felst m.a. í hlutfalli af húsaleigu, styrkjum og tækni- og mötuneytiskostnaði.