Ferill 1046. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2153 — 1046. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um kostnað vegna framfylgdar ákvæða útlendingalaga.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hafa útgjöld ríkissjóðs verið á árunum 2016–2023, sundurliðað eftir árum, vegna framfylgdar eftirtalinna ákvæða laga um útlendinga, nr. 80/2016:
a. 1. mgr. 13. gr.,
b. 2. mgr. 13. gr.,
c. 3. mgr. 13. gr.,
d. 4. mgr. 13. gr.,
e. 5. mgr. 13. gr.,
f. 5. mgr. 31. gr.?
Því miður er ekki hægt að svara fyrirspurninni þar sem bókhald ríkisins er ekki fært eftir lagagreinunum. En heildarkostnaður vegna réttaraðstoðar við útlendinga á fjárlagalið 06232 er eftirfarandi:
| 2016 | 1.747.333 |
| 2018 | 365.009 |
| 2019 | 641.211 |
| 2020 | 1.256.500 |
| 2021 | 1.510.363 |
| 2022 | 85.705.933 |
| 2023 | 18.461.098 |