Ferill 762. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2154 — 762. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Líneik Önnu Sævarsdóttur um fæðingarstyrki og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.
1. Hversu margir foreldrar alls fengu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og fæðingarstyrki á árunum 2018–2023, skipt eftir aldurshópunum yngri en 20 ára, 20–29 ára, 30–39 ára og 40 ára og eldri? Hvernig er kynjaskiptingin í hverjum hópi fyrir sig?
Í töflu 1 má sjá heildarfjölda foreldra sem fengu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og fæðingarstyrk greiðsluárin 2018–2023, skipt eftir kyni og þeim aldurshópum sem unnt er að sundurgreina í tölvukerfi Vinnumálastofnunar eða 18 ára og yngri, 19–20 ára, 21–25 ára, 26–30 ára, 31–35 ára, 36–40 ára og eldri en 40 ára.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hversu margir þessara foreldra fengu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, skipt á sama hátt eftir aldurshópum og kyni?
Í töflu 2 má sjá heildarfjölda foreldra sem fengu greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði greiðsluárin 2018–2023, skipt eftir kyni og þeim aldurshópum sem unnt er að sundurgreina í tölvukerfi Vinnumálastofnunar eða 18 ára og yngri, 19–20 ára, 21–25 ára, 26–30 ára, 31–35 ára, 36–40 ára og eldri en 40 ára.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
3. Hversu margir foreldranna fengu annars vegar fæðingarstyrk utan vinnumarkaðar og hins vegar fæðingarstyrk námsmanna, skipt eftir aldurshópum og kyni?
Í töflu 3 má sjá heildarfjölda foreldra sem fengu fæðingarstyrk utan vinnumarkaðar greiðsluárin 2018–2023, skipt eftir kyni og þeim aldurshópum sem unnt er að sundurgreina í tölvukerfi Vinnumálastofnunar eða 18 ára og yngri, 19–20 ára, 21–25 ára, 26–30 ára, 31–35 ára, 36–40 ára og eldri en 40 ára.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Í töflu 4 má sjá heildarfjölda foreldra sem fengu fæðingarstyrk námsmanna greiðsluárin 2018–2023, skipt eftir kyni og þeim aldurshópum sem unnt er að sundurgreina í tölvukerfi Vinnumálastofnunar eða 18 ára og yngri, 19–20 ára, 21–25 ára, 26–30 ára, 31–35 ára, 36–40 ára og eldri en 40 ára.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
4. Hversu mörgum umsóknum foreldra um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og fæðingarstyrki var hafnað, skipt eftir aldurshópum og kyni?
Upplýsingar um hve mörgum umsóknum foreldra um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og fæðingarstyrk er hafnað eru ekki teknar sérstaklega saman en afar sjaldgæft er að foreldri eigi engan rétt innan fæðingarorlofskerfisins. Til þess að eiga rétt á fæðingarstyrk þarf foreldri að eiga lögheimili á Íslandi við fæðingu, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur sem og að hafa átt lögheimili hér á landi í tólf mánuði þar á undan, sbr. 29. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020. Í fyrrnefndu ákvæði er jafnframt kveðið á um undanþágu frá tólf mánaða lögheimilisskilyrðinu í sérstökum tilvikum.