Ferill 1186. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2156  —  1186. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um fríverslunarsamning við Ísrael.


     1.      Hver er ástæða þess að ekki er að finna tilvísun í mannréttindi í inngangsorðum fríverslunarsamnings við Ísrael, sem ásamt fríverslunarsamningi við Mexíkó er eini fríverslunarsamningur EFTA sem ekki er með slíkt ákvæði í inngangsorðum sínum, sbr. svar á 153. löggjafarþingi (251. mál)?
    Fríverslunarsamningurinn við Ísrael er með þeim elstu sem Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) hafa gert. Árið 1992, þegar samningurinn var gerður, hafði EFTA ekki tekið upp þá venju að vísa til tengsla viðskipta við virðingu fyrir mannréttindum. Slíkar tilvísanir var þannig ekki að finna í samningum við Tyrkland (1991), Ísrael (1992) og Pólland (1992). Í kjölfarið voru slíkar tilvísanir hins vegar teknar upp í inngangsorð fríverslunarsamninga EFTA og er þær að finna í nánast öllum samningum EFTA til dagsins í dag. Í nýlegri fríverslunarsamningum EFTA hafa slík ákvæði verið styrkt með því að bæta við tilvísunum til skuldbindinga samningsaðila samkvæmt alþjóðlegum samningum á sviði mannréttindaverndar, svo sem sáttmála Sameinuðu þjóðanna og mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Tilvísanir til mannréttinda hafa jafnframt verið teknar upp í eldri samningum eða eftir atvikum styrktar í tengslum við heildstæða uppfærslu slíkra eldri fríverslunarsamninga EFTA. Slíkar tilvísanir er því að finna í inngangsorðum allra gildandi fríverslunarsamninga EFTA að frátöldum samningunum við Ísrael og Mexíkó.

     2.      Kemur til álita að endurskoða fríverslunarsamning við Ísrael í ljósi þess að til rannsóknar er hvort framferði ísraelskra stjórnvalda á Gaza geti talist þjóðarmorð?
    Ekki hefur verið ráðist í heildaruppfærslu á fríverslunarsamningi EFTA og Ísrael og eru engar fyrirætlanir uppi um það að svo stöddu innan EFTA.

    Alls fóru 4 vinnustundir í að taka þetta svar saman.