Ferill 1154. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2160  —  1154. mál.




Svar


háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um fyrirkomulag inntökuprófa.


     1.      Í hvaða inntökuprófum til háskólanáms er gerð krafa um viðveru allra próftaka á einum ákveðnum próftökustað?
    Inntökupróf fyrir grunnnám í læknisfræði, sjúkraþálfunarfræði og tannlæknisfræði er haldið í Reykjavík.
    Inntökupróf fyrir íslensku sem annað mál er haldið í Reykjavík, en einnig er boðið upp á fjarprófsstaði. Vert er að hafa í huga að inntökupróf fyrir íslensku sem annað mál er ekki með fjöldatakmarkanir eins og inntökupróf í læknisfræði, sjúkraþjálfunarfræði og tannlæknisfræði.

     2.      Hyggst ráðherra leggja til breytingar á fyrirkomulagi inntökuprófa til háskólanáms á þann veg að próftakar sem búa í talsverðri fjarlægð frá hefðbundnum próftökustað geti þreytt inntökupróf í annarri aðstöðu með því að nýta tæknilausnir og aðrar ráðstafanir til að tryggja sömu próftökuskilyrði?
     3.      Ef svo er ekki, hyggst ráðherra leggja til annars konar breytingar til að tryggja jöfn tækifæri til að þreyta inntökupróf til háskólanáms óháð búsetu, t.d. að fjölga próftökustöðum?

    Af hálfu Háskóla Íslands er gerlegt að bjóða próftöku á fleiri en einum stað og nýta til þess tæknilausnir og bent er á að nú þegar eru inntökuprófin rafræn þar sem prófakerfið Inspera er notað. Mikilvægt er þá að umgjörð og aðstaða á prófstöðum tryggi sömu próftökuskilyrði. Æskilegt er að prófstaðir séu ekki of margir og gjarnan mætti miða við þrjá eða fjóra staði (t.d. Ísafjörð, Akureyri, Egilsstaði og Höfn) þar sem reynsla er af góðu samstarfi varðandi almenn próf. Reynsla er fyrir hendi af að bjóða upp á inntökupróf (A-prófið meðan það var notað) á þessum stöðum.
    Ef boðið verður upp á próftöku á fleiri en einum stað þarf að undirbúa hana tímanlega og huga að ýmsum atriðum:
     –      Gera þarf samkomulag við aðila á hverjum stað um aukna viðveru þá tvo daga sem prófið stendur yfir, en ætla má að viðvera þessa tvo daga þurfi að vera frá kl. 7:30 til 18:00.
     –      Þjálfa þarf þessa aðila til að geta sinnt tækniaðstoð við rafræna prófakerfið Inspera, sem notað er við inntökuprófin.
     –      Senda þarf reiknivélar og lánstölvur á prófstaðina, en þær eru notaðar fyrir Inspera-kerfið.
     –      Gera þarf ráð fyrir hugsanlegu flækjustigi vegna sérúrræða sem kann að þurfa að veita á prófstöðunum.
    Próftaka á fleiri stöðum mun auka kostnað og fyrir þarf að liggja hver ber hann, svo sem vegna:
     –      Aukinnar vinnu hjá læknadeild og prófaskrifstofu.
     –      Vinnu starfsmanna fjarprófsstaða við undirbúning.
     –      Kostnaðar við prófgæslu.