Ferill 1163. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2162  —  1163. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um tímabundið bann við námuvinnslu á hafsbotni.


     1.      Hefur ráðuneytið tekið afstöðu til þess hvort það telji rétt að Ísland taki virkari þátt í starfsemi Alþjóðahafsbotnsstofnunarinnar frá því að ráðherra svaraði fyrirspurn á þskj. 679? Hyggst ráðuneytið senda fulltrúa á ársfund stofnunarinnar nú í sumar?
    Enn er í skoðun innan ráðuneytisins hvort rétt sé að Ísland taki virkari þátt í starfsemi Alþjóðahafsbotnsstofnunarinnar.
    Ísland mun ekki senda fulltrúa á ársfund stofnunarinnar nú í sumar.

     2.      Kemur til álita að Ísland taki afstöðu með hugmyndum um tímabundið bann við námuvinnslu á hafsbotni á vettvangi Alþjóðahafsbotnsstofnunarinnar, óháð því hvort fulltrúar Íslands mæti á fundi hennar, og skipi sér þar með í hóp með Norðurlöndum að Noregi undanskildum?
    Stefnumótunarvinna varðandi starf Alþjóðahafsbotnsstofnunarinnar hefur enn ekki farið fram. Ísland mun hvorki taka afstöðu með né gegn hugmyndum um tímabundið bann við námuvinnslu á hafsbotni þar til skýr stefna liggur fyrir. Vinna við mótun stefnu yrði í beinum tengslum við ákvörðun um mögulega þátttöku Íslands í starfsemi stofnunarinnar.

    Alls fór hálf klukkustund í að taka þetta svar saman.