Ferill 991. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2163 — 991. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um stuðning við almenningssamgöngur.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hefur stuðningur ríkisins verið við almenningssamgöngur ár hvert árin 2017–2023? Svar óskast sundurgreint eftir samgöngumáta, því hvort um er að ræða samgöngur innan landshluta eða á milli landshluta og því hvort um er að ræða kostnað við uppbyggingu, stuðning við rekstur eða styrki til notenda. Jafnframt er þess óskað að fram komi heildarútgjöld og útgjöld reiknuð á hvern farþega. Svarið skal ná til farþegaflutninga á landi, á sjó og með flugi. Þess er óskað að stuðningur vegna áhrifa COVID-faraldursins verði tilgreindur sérstaklega og sundurgreindur með sama hætti.
Stuðning ríkisins við rekstur almenningssamgangna frá árinu 2017–2023 má sjá í töflu 1 í fylgiskjali. Farþegafjölda eftir samgöngumáta er að finna í töflu 2 í fylgiskjali og í töflu 3 er reiknaður stuðningur á farþega (notendur). Í töflu 4 má finna sérstaka styrki sem veittir voru til ríkisstyrktra almenningssamgangna vegna COVID-faraldursins. Í töflu 5 eru tilgreindar samningsgreiðslur til að tryggja flug til Egilsstaða, Ísafjarðar og Vestmannaeyja í COVID-faraldrinum á flugleiðum sem annars eru ekki ríkisstyrktar. Í töflu 6 er hönnunar- og ráðgjafakostnaður vegna Borgarlínu frá 2019 til loka mars 2024.
Ekki er unnt að greina í sundur styrki við landsamgöngur innan eða á milli landshluta þar sem þær upplýsingar hafa ekki verið skráðar sérstaklega. Það kerfi sem notað er í dag til að halda utan um ferðir miðast við gjaldsvæði en ekki mörk landshluta. Unnið er að því að bæta þær tölulegu upplýsingar sem safnað er.
Nær allur kostnaður vegna rekstrarstyrkja til flugs er beinn rekstrarstyrkur til flugrekenda á ríkisstyrktum flugleiðum. Annað sem fellur til er t.d. kostnaður vegna útboða og markaðsrannsókna.
Kostnaður vegna Loftbrúar er styrkur til farþega en ekki til flugfélaga. Styrkinn geta farþegar nýtt sér hvort sem umrædd flugleið er styrkt af ríkinu eða ekki. Því er hann aðgreindur.
Stofnkostnaður við Loftbrú árið 2020 var 30 m.kr. Hann mun nýtast til framtíðar. Til að meta kostnað á hvern farþega það ár er því rétt að miða við þær rétt um 45 m.kr sem fóru til að greiða niður flugfargjöld. Nánari útlistun á heildarkostnaði og kostnaði á hvern farþega sem notaði Loftbrú má finna í fylgiskjali. Farþegar í Loftbrú eru að hluta inni í tölum um fjölda farþega í ríkisstyrktu flugi.
Styrkir til reksturs almenningsvagna á landsbyggðinni eru að stærstum hluta beinir rekstrarstyrkir. Annar kostnaður sem fellur til er m.a. við þróunarverkefni með landshlutasamtökum sveitarfélaganna á árunum 2016 og 2017 og kostnaður vegna yfirtöku samninga frá landshlutasamtökunum árið 2019. Árið 2020 féll einnig til kostnaður við markaðsrannsóknir og útboð.
Í gegnum byggðaáætlun var á árunum 2020 og 2021 úthlutað samtals 68,5 m.kr. í styrki úr samkeppnissjóði til eflingar almenningssamgangna milli byggða. Hafa styrkirnir runnið til ýmissa verkefna um land allt sem eru flest unnin á vettvangi landshlutasamtaka sveitarfélaga. Vorið 2023 var auglýst að nýju og barst þá aðeins ein umsókn sem fékk tæplega 13 m.kr. styrk. Þessar tölur eru ekki reiknaðar niður á farþega þar sem þeim var ekki varið til tiltekins samgöngumáta. Framlög til almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu eru öll beinir rekstrarstyrkir til Strætó bs.
Hlutfall rekstrarstyrks vegna ferja er lægra en vegna flugs og samgangna á landi þar sem Vegagerðin (ríkið) á þrjár af ferjunum. Viðhald þeirra og tengdur kostnaður fellur því beint á eiganda.
Sérstakur styrkur til Isavia var veittur árin 2020 og 2021 vegna áhrifa COVID-faraldursins á innanlandsflug. Styrkurinn nam 323 m.kr. árið 2020 og 57 m.kr. árið 2021. Á árunum 2022 og 2023 var enginn skilgreindur styrkur til flugvalla en unnið var samkvæmt þjónustusamningi Isavia við innviðaráðuneytið.
Undirbúnings- og hönnunarkostnaður fyrir Borgarlínu á tímabilinu frá 2019 til loka mars 2024 er 3,7 milljarðar. Sundurliðun á kostnaði fyrir hverja lotu og stjórnunarkostnað má finna í fylgiskjali, töflu 6.
Fylgiskjal.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
| Tafla 4 (allar tölur í m.kr.). | ||||
| Sérstakur styrkur var veittur á árunum 2020 og 2021 vegna áhrifa COVID-faraldursins á samgöngur. Styrkurinn dreifðist eins og sjá má í töflu nni. | ||||
| Flug: | 2020 | 2021 | ||
| Stuðningur við einstakar flugleiðir | 96 | 0 | ||
| Rekstur flugvalla | 323 | 57 | ||
| Ferjur: | ||||
| Rekstur ferja | 253 | 50 | ||
| Samgöngur á landi: | ||||
| Rekstur almenningsvagna | 82 | 155 | ||
| Samtals | 754 | 262 | ||
| Tafla 5 (tölur í m.kr.). | ||||
| Samningsgreiðslur til að tryggja flug til Egilsstaða, Ísafjarðar og Vestmannaeyja í COVID-faraldrinum á flugleiðum sem annars eru ekki ríkisstyrktar. | ||||
| Flug: | ||||
| Stuðningur við einstakar flugleiðir | 1 | 4 | ||
| Tafla 6 | |||
| Hönnunar- og ráðgjafakostnaður vegna Borgarlínu frá 2019 til loka mars 2024 | |||
| Lota 1 | 3.505.213.480 | ||
| Lota 3 | 44.953.856 | ||
| Lota 4 | 57.674.966 | ||
| Lota 6 | 16.356.907 | ||
| Lota 7 | 5.658.647 | ||
| Stjórnun | 91.571.673 | ||
| Samtals | 3.721.429.529 | ||