Ferill 1189. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2165  —  1189. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um hlutfall erlendra ríkisborgara.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvert er hlutfall erlendra ríkisborgara á Íslandi samkvæmt nýjustu fyrirliggjandi tölum, flokkað eftir póstnúmerum?

    Nýjustu fyrirliggjandi tölur um erlenda ríkisborgara sem forsætisráðuneytið hefur aðgang að koma frá Hagstofu Íslands og eru frá 1. janúar 2024. Í töflunni hér að neðan kemur fram hlutfall íslenskra og erlendra ríkisborgara greint eftir sveitarfélögum.
Íslenskt ríkisfang Erlent ríkisfang
Alls 83,4% 16,6%
Reykjavíkurborg 80,1% 19,9%
Kópavogsbær 87,4% 12,6%
Seltjarnarnesbær 90,8% 9,2%
Garðabær 93,8% 6,2%
Hafnarfjarðarkaupstaður 85,5% 14,5%
Mosfellsbær 89,6% 10,4%
Kjósarhreppur 94,4% 5,6%
Reykjanesbær 70,3% 29,7%
Grindavíkurbær 81,3% 18,7%
Sveitarfélagið Vogar 80,2% 19,8%
Suðurnesjabær 79,4% 20,6%
Akraneskaupstaður 90,1% 9,9%
Skorradalshreppur 94,2% 5,8%
Hvalfjarðarsveit 91,1% 8,9%
Borgarbyggð 78,4% 21,6%
Grundarfjarðarbær 75,4% 24,6%
Eyja- og Miklaholtshreppur 75,6% 24,4%
Snæfellsbær 77,3% 22,7%
Sveitarfélagið Stykkishólmur 83,5% 16,5%
Dalabyggð 93,8% 6,2%
Bolungarvíkurkaupstaður 79,0% 21,0%
Ísafjarðarbær 80,6% 19,4%
Reykhólahreppur 94,9% 5,1%
Tálknafjarðarhreppur 75,2% 24,8%
Vesturbyggð 72,1% 27,9%
Súðavíkurhreppur 70,8% 29,2%
Árneshreppur 96,2% 3,8%
Kaldrananeshreppur 84,6% 15,4%
Strandabyggð 92,5% 7,5%
Húnaþing vestra 87,6% 12,4%
Sveitarfélagið Skagaströnd 95,6% 4,4%
Skagabyggð 96,5% 3,5%
Húnabyggð 85,9% 14,1%
Skagafjörður 91,6% 8,4%
Akureyrarbær 91,9% 8,1%
Norðurþing 80,7% 19,3%
Fjallabyggð 90,6% 9,4%
Dalvíkurbyggð 88,9% 11,1%
Eyjafjarðarsveit 95,5% 4,5%
Hörgársveit 95,5% 4,5%
Svalbarðsstrandarhreppur 87,4% 12,6%
Grýtubakkahreppur 81,8% 18,2%
Tjörneshreppur 94,2% 5,8%
Þingeyjarsveit 85,0% 15,0%
Langanesbyggð 81,9% 18,1%
Fjarðabyggð 80,5% 19,5%
Múlaþing 85,1% 14,9%
Vopnafjarðarhreppur 89,4% 10,6%
Fljótsdalshreppur 82,1% 17,9%
Vestmannaeyjabær 85,6% 14,4%
Sveitarfélagið Árborg 90,0% 10,0%
Sveitarfélagið Hornafjörður 73,3% 26,7%
Mýrdalshreppur 42,0% 58,0%
Skaftárhreppur 62,7% 37,3%
Ásahreppur 75,4% 24,6%
Rangárþing eystra 72,9% 27,1%
Rangárþing ytra 83,1% 16,9%
Hrunamannahreppur 69,7% 30,3%
Hveragerðisbær 91,5% 8,5%
Sveitarfélagið Ölfus 79,2% 20,8%
Grímsnes- og Grafningshreppur 85,9% 14,1%
Skeiða- og Gnúpverjahreppur 90,9% 9,1%
Bláskógabyggð 66,3% 33,7%
Flóahreppur 92,7% 7,3%
    Þjóðskrá heldur einnig utan um og birtir tölur um íbúafjölda, m.a. eftir ríkisfangi, út frá skráningu lögheimilis. Hagstofan metur íbúafjölda hins vegar út frá breiðari grunni opinberra skráa. Óski fyrirspyrjandi eftir upplýsingum um hlutfall erlendra ríkisborgara út frá tölum Þjóðskrár ber að beina fyrirspurn þar að lútandi til innviðaráðherra, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.