Ferill 1190. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2166  —  1190. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um greiðslur fyrir brottför frá Íslandi.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu margir hælisleitendur hafa þegið greiðslur fyrir að fara brott af landinu frá árinu 2020 þar til nú? Hversu háar voru greiðslurnar og eru dæmi um að sami einstaklingur hafi þegið greiðslu oftar en einu sinni?

    Alls hafa 1.369 einstaklingar hlotið stuðning frá íslenskum stjórnvöldum við sjálfviljuga heimför á fyrrgreindu tímabili. Í þessum fjölda eru meðtaldir einstaklingar sem hlutu styrki í formi flugmiða, án greiðslu enduraðlögunarstyrks í heimaríki.
    Í eftirfarandi töflu má finna upplýsingar um heildarfjárhæð brottfararstyrkja sem veittir voru til umsækjenda um alþjóðlega vernd á árunum 2020 til 2023. Vakin er athygli á að áhrif kórónuveirufaraldursins á sjálfviljuga endurför á árunum 2020–2022 voru veruleg og þar með einnig á greiðslur enduraðlögunarstyrkja.

Ár Fjárhæð (ISK)
2020 223.059
2021 158.756
2022 756.097
2023 77.771.802

    Samkvæmt reglugerð nr. 607/2023, um fjárhagsaðstoð við sjálfviljuga heimför á grundvelli laga um útlendinga, hefur útlendingur einungis rétt til greiðslna á styrk einu sinni. Engin skráð dæmi eru um að einstaklingar hafi þegið aðstoð við sjálfviljuga heimför eða enduraðlögunarstyrk oftar en einu sinni, hvorki fyrir eða eftir setningu fyrrgreindrar reglugerðar.