Ferill 866. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2169 — 866. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um kostnað vegna umsókna um alþjóðlega vernd.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hefur verið árlegur heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess frá árinu 2015 vegna umsókna um alþjóðlega vernd? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum, verkefnum, úrræðum og öðru sem við á, þ.m.t. vegna endurgreiðslna skv. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, vegna innflytjendaráðs, móttöku flóttamanna og þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd færðist til félags- og vinnumarkaðsráðuneytis frá dómsmálaráðuneyti í upphafi árs 2022 við breytingu á skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Að öðru leyti eru tiltæk gögn úr fjárhagskerfi ríkisins vegna annarra liða frá og með árinu 2017. Sjá sundurliðaða töflu hér að aftan. Kostnaður við afgreiðslu umsókna (málsmeðferð) um alþjóðlega vernd er á forræði dómsmálaráðuneytis.
Fjárlagaliðir sem standa straum af kostnaði vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd, bæði málsmeðferð sem er á forræði dómsmálaráðuneytis og þjónusta við umsækjendur, sem er á forræði félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, falla undir málaflokk 10.5 Útlendingamál. Það eru því skil í málaflokkum hvort sem einstaklingur er umsækjandi um alþjóðlega vernd eða hefur fengið umsókn um alþjóðlega vernd samþykkta. Þeir síðarnefndu falla undir málaflokk 29.70 Málefni innflytjenda og flóttafólks og eru skörp skil í ríkisfjármálum eftir því um hvorn hóp einstaklinga er að ræða.
Þeir fjárlagaliðir sem falla undir málaflokk 29.7 Innflytjendaráð og móttaka flóttafólks eru:
a. 07-999-110 Endurgreiðslur vegna 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga
b. 07-999-149 Innflytjendaráð og móttaka flóttafólks
c. 07-329-101 Fjölmenningarsetur
Nánar um a-lið.
Í kjölfar veitingar alþjóðlegrar verndar fær umsækjandi íslenska kennitölu og getur í kjölfarið skráð lögheimili sitt í sveitarfélagi. Það er lykilatriði fyrir því að uppfylla skilyrði laga og reglna til að eiga rétt á fjárhags- og félagsaðstoð hjá sveitarfélagi. Réttur til að fá félagsaðstoð sveitarfélags er alfarið bundinn við einstaklinga sem eru með íslenska kennitölu burtséð frá því hvort þeir einstaklingar eru íslenskir eða erlendir. Rétt er að geta þess að umsækjendur um alþjóðlega vernd fá ekki greidda félags- og fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum.
Endurgreiðslur ríkissjóðs á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga miða við tvö fyrstu árin sem einstaklingur býr í sveitarfélagi og taka mið af reglum nr. 520/2021. Endurgreiðslur taka einnig mið af leiðbeinandi reglum fyrir sveitarfélög um móttökuþjónustu og aðstoð við félagslega þátttöku flóttafólks frá maí 2014. 1
Rétt er að benda einnig á XI. kafla laga um útlendinga, nr. 80/2016, sérstaklega ákvæði 83. og 84. gr. laganna, þegar kemur að rétti erlendra ríkisborgara til fjárhagsaðstoðar.
Fram að fyrrgreindri uppskiptingu stjórnarmálefna samkvæmt forsetaúrskurði var einnig á hendi félagsmálaráðuneytis að umsýsla endurgreiðslur til sveitarfélaga samkvæmt ákvæðum 15. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Voru þær endurgreiðslur vegna fylgdarlausra barna á flótta. Þessar endurgreiðslur vegna barnaverndarlaga og fjárheimild vegna þeirra fluttust til mennta- og barnamálaráðuneytis við uppskiptingu Stjórnarráðsins 2022.
Nánar um b-lið.
Fjárlagaliðurinn sem er safnliður er í umsjón ráðuneytisins. Á liðinn bókast gjöld sem tilheyra stjórnsýslu innflytjenda og móttöku flóttafólks. Öll gjöld liðarins varða einungis kostnað vegna innflytjenda og vegna flóttafólks sem hefur fengið samþykkta umsókn um alþjóðlega vernd og í kjölfarið fengið íslenska kennitölu. Einnig falla útgjöld vegna kvótaflóttafólks á liðinn. Á liðinn gjaldfærast einnig samningar við sveitarfélög um samræmda móttöku flóttafólks, framkvæmdaáætlun í málefnum flóttamanna og innflytjenda, Þróunarsjóður innflytjenda, samningur við Rauða krossinn um félagslegan stuðning við flóttafólk sem hefur fengið vernd, samningur íslenskra stjórnvalda við Alþjóðlegu fólksflutningastofnunina (e. International Organization for Migration) sem er undirstofnun Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, starfsemi neyðarskýlis í Borgartúni 7 sem er úrræði fyrir þá sem hafa verið sviptir þjónustu eftir synjun um alþjóðlega vernd. Starfsemin er samkvæmt samningi við Rauða krossinn auk fleiri verkefna.
Nánar um c-lið.
Starfsemi Fjölmenningarseturs var sameinuð Vinnumálastofnun 1. apríl 2023, sbr. lög nr. 13/2023. Einnig er rétt að gera grein fyrir því að Ráðgjafarstofa innflytjenda var sett á stofn árið 2021 og var svo starfsemi ráðgjafarstofunnar sameinuð Fjölmenningarsetri í upphafi árs 2022.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
1 www.stjornarradid.is/media/velferdarraduneyti-media/media/rit-og-skyrslur-2014/leidb.reglur.LOK.pdf