Ferill 955. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2171  —  955. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Líneik Önnu Sævarsdóttur um þjónustu og úrræði Vinnumálastofnunar sem miðast að ungu fólki sem er ekki í vinnu, virkni eða námi.


     1.      Hversu margir einstaklingar á aldrinum 16–29 ára njóta þjónustu Vinnumálastofnunar vegna atvinnuleysis?
    Í byrjun maímánaðar 2024 fengu rúmlega 2.300 atvinnuleitendur á aldrinum 16–29 ára þjónustu hjá Vinnumálastofnun.

     2.      Hversu margir í þeim hópi falla undir NEET-skilgreiningu um að vera ekki í vinnu, virkni eða námi (e. Not in Education, Employment, or Training, NEET)?
    Almennt eru einstaklingar sem óska eftir þjónustu Vinnumálastofnunar ekki í vinnu, virkni eða námi þegar þeir leita til stofnunarinnar en stofnunin leggur áherslu á að virkja einstaklinga sem fyrst eftir að þeir óska eftir þjónustu stofnunarinnar.

     3.      Hvaða þjónustu býður Vinnumálastofnun ungmennum á aldrinum 16–18 ára?
    Einstaklingum á aldrinum 16–18 ára, sem óska eftir þjónustu hjá Vinnumálastofnun, býðst viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa hjá stofnuninni auk þess sem þeim stendur til boða vinnumiðlun með aðstoð ráðgjafa stofnunarinnar. Vinnumálastofnun hefur í kjölfar viljayfirlýsingar, sem undirrituð var 2. maí 2023 af ráðherra, Samtökum atvinnulífsins, Vinnumálastofnun og VIRK starfsendurhæfingarsjóði, ráðið til starfa sérstaka atvinnulífstengla sem veita ungu fólki í viðkvæmri stöðu einstaklingsmiðaðan stuðning við starfsleit en með undirritun viljayfirlýsingarinnar var aukið fjármagn jafnframt veitt til verkefnisins.

     4.      Hvaða úrræði býður Vinnumálastofnun sem miðast að ungu fólki sem fellur undir NEET-skilgreiningu?
    Ungu fólki, sem fær þjónustu hjá Vinnumálastofnun, stendur til boða ýmiss konar virkni sem er sérsniðin að ungu fólki en sem dæmi má nefna starfsleitarnámskeið, gerð ferilskrár, ýmis námskeið, svo sem íslenskunámskeið, sjálfstyrkingarnámskeið, tölvunámskeið sem og starfsþjálfun. Þar að auki geta ungir atvinnuleitendur fengið námsstyrk frá Vinnumálastofnun vegna þátttöku í starfstengdum námskeiðum að eigin vali, enda séu tiltekin skilyrði uppfyllt.

     5.      Hverjar eru skyldur Vinnumálastofnunar gagnvart ungu fólki sem hefur aldrei verið á vinnumarkaði og á því ekki rétt á atvinnuleysisbótum? Hvernig er þeim skyldum sinnt?
    Samkvæmt lögum nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, er atvinnuleitendum á aldrinum 16–70 ára heimilt að sækja um þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum en með vinnumarkaðsaðgerðum er átt við vinnumiðlun, mat á hæfni atvinnuleitanda og skipulag úrræða sem eru til þess fallin að auka vinnufærni atvinnuleitanda.
    Vinnumálastofnun sinnir á ýmsan hátt skyldum sínum gagnvart ungu fólki sem ekki hefur áunnið sér rétt innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Sem dæmi má nefna þjónustu stofnunarinnar við einstaklinga með mismikla starfsgetu. Jafnframt veitir stofnunin ungu flóttafólki stuðning við að finna störf eða aðra virkni, eftir því sem við á hverju sinni.
    Þá eru ráðgjafar Vinnumálastofnunar einnig í samstafi við VIRK Starfsendurhæfingarsjóð, geðsvið Landspítala og félagsþjónustu sveitarfélaga. Markmið samstarfsins er meðal annars að auka stuðning við ungt fólk í viðkvæmri stöðu sem fær þjónustu hjá mismunandi þjónustukerfum og að koma í veg fyrir að ungt fólk falli á milli þjónustukerfa. Megináherslan er að aðstoða ungt fólk við að finna störf.

     6.      Hvernig þjónustar Vinnumálastofnun ungt fólk sem á engan frekari rétt til bóta eftir að hafa þegið atvinnuleysisbætur í 30 mánuði en tekst ekki að ráða sig í nýja vinnu á þeim 24 mánuðum sem þurfa að líða til að einstaklingur vinni sér inn bótarétt að nýju?
    Líkt og aðrir sem ekki hafa áunnið sér rétt innan atvinnuleysistryggingakerfisins getur ungt fólk, sem hefur fullnýtt rétt sinn innan kerfisins, áfram fengið ýmsa þjónustu hjá Vinnumálastofnun, sbr. svör við 4. og 5. lið fyrirspurnar þessarar.