Ferill 1120. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2173  —  1120. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um aðstoð við erlenda ríkisborgara.


     1.      Hversu margir erlendir ríkisborgarar hafa óskað eftir aðstoð sveitarfélaga, sbr. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, á sl. fimm árum? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum og því hvort umsókn hafi verið samþykkt eða henni synjað.
    Upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem hafa óskað eftir aðstoð sveitarfélaga, sbr. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, liggja hvorki fyrir í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu né hjá stofnunum ráðuneytisins. Það sama á við um upplýsingar um hvort hlutaðeigandi sveitarfélög hafa samþykkt eða synjað beiðni erlendra ríkisborgara um aðstoð.
    Í ráðuneytinu liggur þó fyrir að á árinu 2023 bárust ráðuneytinu umsóknir frá sveitarfélögum um endurgreiðslur á grundvelli 2. mgr. 15. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, vegna veittrar aðstoðar til rúmlega 4.500 einstaklinga, þar af var um að ræða umsóknir um endurgreiðslur skv. a-lið 2. mgr. 15. gr. laganna vegna tæplega 130 einstaklinga og skv. b-lið 2. mgr. 15. gr. laganna vegna rúmlega 4.400 einstaklinga. Sambærilegar upplýsingar hafa ekki verið teknar saman fyrir önnur ár.

     2.      Hvaða þjónusta eða aðstoð hefur verið veitt á grundvelli ákvæðisins á sl. fimm árum? Svar óskast sundurliðað eftir mánuðum og fjölda einstaklinga sem þegið hafa viðkomandi þjónustu eða aðstoð.
    Upplýsingar um hvaða aðstoð hefur verið veitt á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, liggja hvorki fyrir í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu né hjá stofnunum ráðuneytisins. Í núverandi tölvukerfi Vinnumálastofnunar er ekki sérstaklega haldið utan um slíkar upplýsingar. Unnið er að þarfagreiningu á tölvukerfum Vinnumálastofnunar í tengslum við smíði á nýju/endurbættu tölvukerfi um endurgreiðslur til sveitarfélaga úr ríkissjóði vegna aðstoðar sem veitt er á grundvelli fyrrnefnds ákvæðis.
    Í III. kafla reglna nr. 520/2021, um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, í sérstökum tilvikum, við erlenda ríkisborgara og endurgreiðslur fjárhagsaðstoðar úr ríkissjóði, sem settar eru með stoð í 1. mgr. 15. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga, er kveðið á um þá aðstoð sem veitt er og endurgreidd sveitarfélagi úr ríkissjóði á grundvelli umsókna skv. a-lið 2. mgr. 15. gr. laga nr. 40/1991. Með aðstoð til brottfarar úr landi er sem dæmi átt við fjárhagsaðstoð til framfærslu, greiðslu fyrir húsnæði fram að brottför og greiðslu ferðakostnaðar frá landinu, sbr. 1. mgr. 7. gr. reglnanna. Með aðstoð vegna dvalar í landinu er sem dæmi átt við fjárhagsaðstoð vegna framfærslu og greiðslu fyrir húsnæði samkvæmt viðmiðum ráðuneytisins sem birt eru sem fylgiskjal með reglunum, sbr. 2. mgr. 7. gr. reglnanna. Með aðstoð vegna einstaklinga sem fengið hafa endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd hér á landi og eiga ekki rétt á þjónustu á grundvelli 33. gr. laga um útlendinga er sem dæmi átt við gistingu og fæði í samræmi við það sem almennt tíðkast í úrræðum fyrir heimilislausa, sbr. 7. gr. a reglnanna.
    Ríkissjóður endurgreiðir sveitarfélagi veitta aðstoð vegna erlendra ríkisborgara sem átt hafa lögheimili í landinu skemur en tvö ár, sbr. b-lið 2. mgr. 15. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga. Um aðstoð samkvæmt framangreindu ákvæði er fjallað í leiðbeinandi reglum fyrir sveitarfélög um móttökuþjónustu og aðstoð við félagslega þátttöku flóttafólks, útgefnum af ráðuneytinu í maí 2014. Samkvæmt lið 1.3 í inngangskafla leiðbeininganna kemur fram að þær eru settar fram sem leiðbeiningar til sveitarfélaga og að ekki er unnt að byggja rétt til þjónustu á þeim. Aðstoð samkvæmt leiðbeiningunum er veitt af því sveitarfélagi sem viðkomandi einstaklingur hefur skráð lögheimili í og er ætlað að vera til hliðsjónar við stuðning sveitarfélaga við flóttafólk fyrstu tvö árin eftir lögheimilisskráningu. Í 6. gr. leiðbeininganna er sem dæmi kveðið á um inntak félagslegrar aðstoðar við flóttafólk og mælst til þess að veita viðkomandi tiltekna styrki, svo sem styrk sem samsvarar barnabótagreiðslum ríkisskattstjóra, húsbúnaðarstyrk, grunnfjárhagsaðstoð, sérstaka aðstoð vegna barna, námsstyrk, styrk vegna læknisaðstoðar og tannlækninga, styrk vegna sérfræðiaðstoðar ráðgjafa og íslenskukennslu.