Ferill 1187. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2174 — 1187. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um réttmæt stjórnvöld í Palestínu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver eru að mati íslenskra stjórnvalda réttmæt stjórnvöld í Palestínu, sbr. þingsályktun nr. 1/140?
Ísland á í stjórnmálasambandi við viðurkennd stjórnvöld í Palestínu (e. Palestinian Authority), sem Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur leitt frá 2005. Nánar er greint frá stjórnmálasambandi Íslands og Palestínu í skýrslu utanríkisráðherra um sjálfstæði og fullveldi Palestínu, sbr. þingskjal 1371, 510. mál.
Vinnsla svarsins tók fimmtán mínútur.