Ferill 1137. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2180 — 1137. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um ástandið í Súdan.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hafa íslensk stjórnvöld vakið máls á ástandinu í Súdan á alþjóðlegum vettvangi? Ef svo er, með hvaða hætti?
Staða mála í Súdan er skelfileg. Borgarastyrjöldin sem braust út vorið 2023 hefur stigmagnast með ógnvænlegum afleiðingum fyrir íbúa landsins. Um þessar mundir er Sahel-svæðið eitt óstöðugasta svæði heims en það teygir sig yfir nokkur ríki frá Senegal við Atlantshafið í vestri til Súdans við Rauðahafið í austri.
Valdarán og borgarastríð hafa plagað Súdan í gegnum tíðina, allt frá því að landið öðlaðist sjálfstæði fyrir um 70 árum. Frá því að átökin brutust út fyrir rúmu ári síðan hafa yfir sjö milljónir íbúa Súdan þurft að flýja heimkynni sín, að stórum hluta konur og börn. Í kringum 17 þúsund manns hafa látið lífið og átján milljónir eru á barmi hungursneyðar. Að mati Sameinuðu þjóðanna þarf ríflega helmingur súdönsku þjóðarinnar, yfir 25 milljónir manns, á mannúðaraðstoð að halda, tæplega helmingurinn börn. Þetta er því ein alvarlegasta mannúðarkrísa heims.
Þá er ljóst að alþjóðleg mannúðar- og mannréttindalög eru virt að vettugi í Súdan og hafa Sameinuðu þjóðirnar varað við því að ofbeldið á svæðinu minni um margt á þjóðernishreinsanirnar í Darfúr fyrir tveim áratugum síðan. Eins er mannúðaraðgengi miklum takmörkunum háð og miklar skemmdir hafa orðið á lykilinnviðum.
Mannréttindabrot, þ.m.t. kynferðisbrot, hafa aukist um allt landið og hætta er á kólerufaraldri. Kallað hefur verið eftir því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og alþjóðasamfélagið í heild beiti sér í ríkari mæli til þess að sporna gegn brotum á alþjóðlegum mannúðarrétti. Þrátt fyrir umleitanir af hálfu Sameinuðu þjóðanna, Afríkusambandsins og fleiri aðila er pólitísk lausn ekki í sjónmáli.
Frá því að átökin brutust út hafa íslensk stjórnvöld vakið máls á ástandinu í Súdan á alþjóðlegum vettvangi. Ísland hefur í tvígang tekið þátt í alþjóðlegum framlagaráðstefnum vegna bágrar stöðu mannúðarmála í Súdan. Annars vegar framlagaráðstefnu um Súdan á vegum Sameinuðu þjóðanna í Genf, í júní 2023, þar sem tilkynnt var um 50 m.kr. viðbótarframlag til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu sem þá var upp komin. Á ráðstefnunni flutti utanríkisráðherra ávarp og lýsti áhyggjum af fregnum af kynferðisofbeldi gegn vegalausum einstaklingum, lagði áherslu á mannúðaraðgengi og mikilvægi þess að koma á friði.
Á framlagaráðstefnu vegna Súdan í París 16. apríl sl. á vegum Frakklands, Þýskalands og ESB var síðan tilkynnt um samtals 140 m.kr. framlag til mannúðarstarfs í Súdan á tímabilinu 2024–2025 sem skiptist milli Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA). Í ávarpi Íslands var áhersla lögð á mannúðaraðgengi, að alþjóðasamfélagið leggi meira af mörkum og þörfina á vopnahléi og varanlegri lausn deilunnar.
Íslensk stjórnvöld hafa einnig vakið máls á ástandinu í Súdan á vettvangi mannréttindaráðsins. Þann 18. júní sl. var Ísland aðili að sameiginlegri yfirlýsingu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna þar sem deiluaðilar eru hvattir til þess að koma á vopnahléi, fara að alþjóðlegum mannúðarlögum, vernda óbreytta borgara og tryggja mannúðaraðgengi. Ísland var einnig aðili að sameiginlegri yfirlýsingu á vettvangi mannréttindaráðsins þann 19. mars sl. um mannúðaraðgengi í Súdan þar sem lögð var áhersla á að aðilar deilunnar fari að mannúðarlögum og veiti óhindrað mannúðaraðgengi til að verja súdönsku þjóðina fyrir frekari hörmungum. Þá flutti Ísland ávarp 13. september 2023 um málefni Súdan fyrir hönd Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á fundi í Genf með mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna. Þar var vakin athygli á alvarleika mannréttindabrota og kynferðisofbeldis og þörfinni á óhindruðu mannúðaraðgengi, ásamt því að kallað var eftir vopnahléi milli stríðandi fylkinga.
Ísland hefur innleitt þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins (ESB) varðandi Súdan í samræmi við lög um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, og tekið undir yfirlýsingar Evrópusambandsins um málefni Súdan.
Alls fóru fimm vinnustundir í gerð þessa svars.