Ferill 1207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2181  —  1207. mál.




Svar


matvælaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um kaup auglýsinga og kynningarefnis.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu miklum peningum varði ráðuneytið og undirstofnanir þess til kaupa auglýsinga og annars kynningarefnis í fjölmiðlum og á internetinu árið 2023 flokkað eftir undirstofnunum og fjölmiðlum?

    Undir matvælaráðuneytið heyra fimm stofnanir, Hafrannsóknastofnun, Fiskistofa, Verðlagsstofa skiptaverðs, sem samrekin er með Fiskistofu, Matvælastofnun og Land og skógur. Land og skógur varð til með lögum þann 1. janúar 2024 með sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktar ríkisins. Í kjölfarið voru fjárlagaliðir stofnananna lagðir niður og nýr fjárlagaliður Lands og skógar tekinn í notkun. Í ljósi þessa var tekin ákvörðun um að undanskilja nýja stofnun frá svarinu.

Matvælaráðuneytið:
Fjölmiðill Upphæð
Morgunblaðið 283.215
Bændablaðið 539.952
Stjórnartíðindi 4.519.500
Lögbirtingablaðið 34.560
Fréttablaðið 245.567
Meta 359.796
Samtals 5.622.794
Matvælastofnun:
Fjölmiðill Upphæð
Alfreð.is 197.111
Morgunblaðið 777.845
Dagskráin 54.560
Dagskráin Akureyri 94.228
Samtals 5.622.794
Fiskistofa:
Fjölmiðill Upphæð
Stjórnartíðindi 53.727
Morgunblaðið 161.475
Ægir 31.000
Sóknarfæri 31.000
Samtals 309.058
Hafrannsóknastofnun:
Fjölmiðill Upphæð
Alfreð.is 1.272.226
Morgunblaðið 389.839
Víðsjá 20.000
ResearchGate 182.271
Inter-Research Science Center 359.501
VM blaðið 31.000
Fiskifréttir 62.000
Sjómannadagsblöð 101.130
Samtals 2.417.967