Ferill 1124. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2182  —  1124. mál.




Svar


matvælaráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um námuvinnslu á hafsbotni.


     1.      Telur ráðherra ástæðu til að Ísland styðji alþjóðlegt bann við námuvinnslu á hafsbotni, sem kallað er eftir innan Alþjóðahafsbotnsstofnunarinnar, í ljósi þess hversu mikil óvissa er um umhverfisáhrif og afleiðingar af slíkri starfsemi fyrir nytjastofna og annað lífríki sjávar?
    Námavinnsla á hafsbotni og á landi er ekki á málefnasviði matvælaráðuneytisins heldur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið fer með stefnu Íslands á alþjóðavettvangi og því er viðkemur athöfnum á borð við námuvinnslu á hafsbotni, utan lögsögu Íslands. Að því sögðu þá er líklegt að námavinnsla á hafsbotni geti valdið skaða á lífríkinu. Það er því mikilvægt að námavinnsla fari ekki fram þar sem vitað er af viðkvæmu lífríki eða á svæðum sem eru mikilvæg vistkerfi eða búsvæði á borð við hrygningarsvæði, uppeldissvæði eða fæðusvæði nytjastofna. Þar er mikilvægt að varúðarnálgun sé beitt líkt og alþjóðasamningar gera ráð fyrir og náttúran njóti vafans. Þar liggja hagsmunir Íslands, ekki bara í náttúruvernd heldur líka efnahagslegir hagsmunir þar sem nytjastofnar okkar, t.d. þorskur og loðna, eru hluti af margþættu vistkerfi og reiða sig á ákveðin svæði sem ekki má raska.

     2.      Í ljósi framkominna hugmynda Norðmanna um námuvinnslu á hafsbotni, hvað hefur ráðuneytið aðhafst frá því að ráðherra svaraði fyrirspurn um málið á yfirstandandi löggjafarþingi (430. mál)?
    Líkt og áður sagði þá er námavinnsla á hafsbotni ekki á málefnasviði matvælaráðuneytisins. Að öðru leyti er vísað í fyrra svar (skáletrað), sbr.:
     Ólíklegt verður að teljast að möguleg vinnsla Norðmanna á jarðefnum af hafsbotni geti haft mikil áhrif á vistkerfi sjávar innan efnahagslögsögu Íslands. Fyrir það fyrsta er fjarlægðin töluverð og alþjóðlegt hafsvæði (síldarsmugan) skilur að efnahagslögsögu Íslands og Noregs sem og efnahagslögsaga Færeyja. Íslenskum stjórnvöldum er ekki kunnugt um nein áform Norðmanna til vinnslu á jarðefnum innan lögsögu Jan Mayen. Auk þess liggja hafstraumar þannig að ekki eru miklar líkur á því að möguleg skaðleg efni berist yfir í íslenska efnahagslögsögu. Þar má nefna að grein Golfstraumsins liggur milli Íslands og Noregs úr suðvestri til norðausturs. Kaldsjávarstraumar liggja síðan úr norðri milli Jan Mayen og Grænlands. Ljóst er að gífurlegt magn efna þyrfti að losna út í umhverfi sjávar við Noreg til þess að það myndi valda áhyggjum við Ísland. Áður en það yrði væru áhrifin við Noreg þess eðlis að ólíklegt er að Norðmenn myndu halda áfram slíkri vinnslu.
    Ekki hefur verið haft samband við norsk yfirvöld vegna þessa.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.