Ferill 1199. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2183  —  1199. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um slysatíðni tengda rafhlaupahjólum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvað var tilkynnt um mörg slys tengd notkun rafhlaupahjóla (rafskúta) á árunum 2018 til 2023 flokkað eftir árum?

    Umbeðnar upplýsingar liggja ekki fyrir hjá heilbrigðisráðuneytinu. Í slysaskrá, sem varðveitt er hjá embætti landlæknis með stoð í lögum um landlækni og lýðheilsu, er að finna lágmarksupplýsingar um slys en þar eru ekki skráðar upplýsingar um það hvort skráð slys hafi orðið af völdum rafhlaupahjóla. Tegund slysa er flokkuð eftir því hvort um er að ræða umferðarslys, vinnuslys, heima- og frístundaslys, íþróttaslys, skólaslys eða önnur slys en nánari flokkun er ekki tilgreind.
    Heilbrigðisráðuneytið bendir á að málefni er varða samgöngumál og umferðaröryggi eru á borði innviðaráðherra, og er því bent á að beina fyrirspurninni þangað.