Ferill 840. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2185 — 840. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Evu Sjöfn Helgadóttur um skort á geðlæknum.
Hvernig hyggst ráðherra bregðast við miklum skorti á geðlæknum?
Ekki liggja fyrir skilgreind mönnunarviðmið hér á landi um fjölda geðlækna. Heilbrigðisráðherra skipaði starfshóp um framtíð læknisþjónustu á Íslandi í september 2023 sem er enn að störfum. Verkefni starfshópsins er m.a. að meta þörf og hlutverk læknisþjónustu til framtíðar og að skilgreina hvaða forsendna þurfi að taka tillit til við gerð mönnunarviðmiða lækna og þegar spáð er fyrir um mannaflaþörf. Þá tekur hópurinn sérstaklega til skoðunar þörf fyrir læknisþjónustu, mönnun og afköst einstakra sérgreina, og þá hvort og hvernig núverandi mönnun og afköst uppfylli núverandi þjónustuþörf.
Heilbrigðisráðuneytið hefur lagt mikla áherslu á fjölgun læknanema og eflingu sérnáms lækna undanfarin ár. Styrking sérnáms í læknisfræði hér á landi er mikilvægur liður í því að íslenskir læknanemar sem stunda grunnnám í læknisfræði erlendis kjósi að koma aftur til Íslands að grunnnámi loknu. Sérnámsstöðum lækna á heilbrigðisstofnunum hefur þannig fjölgað undanfarin ár og sömuleiðis sérnámslæknum sem stunda sérnám sitt hér á landi. Nýleg reglugerð nr. 856/2023, um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi, skapar betri og skýrari umgjörð um sérnám lækna.
Á Landspítala standa læknum til boða tvær sérnámsleiðir í geðlækningum sem veita rétt til að öðlast sérfræðileyfi, annars vegar sérnám í geðlækningum og hins vegar sérnám í barna- og unglingageðlækningum. Læknum sem fá stöður í þessum sérnámsgreinum, sem ráðið er í með hefðbundnu umsóknarferli býðst að stunda þær að kostnaðarlausu og þiggja jafnframt laun á meðan á sérnáminu stendur. Framboð á sérnámsplássum hefur verið umfram eftirspurn í þessum greinum. Stöðugildum sérnámslækna í geðlækningum fjölgaði milli áranna 2022–2023 bæði á Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Dæmi um vinnu við að styrkja mönnun í heilbrigðiskerfinu og þar með mönnun geðlækna má nefna að í maí 2021 var landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu stofnað. Hlutverk þess er að vera ráðgefandi fyrir undirbúning ákvarðana heilbrigðisráðherra á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu, auk þess að vera samráðsvettvangur á þessu sviði þvert á menntastofnanir, fagfélög, sjúklingasamtök og aðra hagsmunaaðila.
Unnið hefur verið að fjölgun læknanema við læknadeild Háskóla Íslands og uppbyggingu á færni- og hermisetrum fyrir nemendur í heilbrigðisgreinum til að efla klíníska kennslu innan sem utan heilbrigðisstofnana, sem er stór þáttur í því að efla grunn- og sérnám í læknisfræði hér á landi. Frá og með hausti 2024 er áætlað að læknanemum við læknadeild Háskóla Íslands sem teknir eru inn á fyrsta ári fjölgi úr 60 í 75 og fjölgunin mun halda áfram í áföngum til ársins 2028 þegar stefnt er að því að nemendur sem teknir eru inn á fyrsta ári verði orðnir 90.
Samhliða því að mennta fleiri heilbrigðisstarfsmenn hefur heilbrigðisráðuneytið lagt áherslu á að finna nýjar leiðir við að mæta þjónustuþörf sjúklinga, m.a. með öflugri teymisvinnu heilbrigðisfagstétta, nýtingu tæknilausna og skýrara verklagi eftir því sem unnt er.
Með frumvarpi heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, sem varð að lögum nr. 59/2023, 21. júní 2023, var hámarksaldur heilbrigðisstarfsmanna, þ.m.t. geðlækna, í störfum hjá opinberum heilbrigðisstofnunum við veitingu heilbrigðisþjónustu hækkaður tímabundið í 75 ár frá 1. janúar 2024. Þetta gerði læknum kleift að starfa lengur en til 70 ára, hafi þeir óskað þess. Markmiðið með lagabreytingunum var að mæta mönnunarvanda í opinberri heilbrigðisþjónustu vegna hækkandi meðalaldurs.
Í gildi er einnig stefna í geðheilbrigðismálum til 2030 og aðgerðaáætlun til 2027. Markmið þriggja aðgerða í áætluninni er að tryggja að mönnun í geðheilbrigðisþjónustu sé í samræmi við hlutverk og verkefni þjónustuveitenda á öllum stigum, að starfsfólk geðheilbrigðisþjónustu sé með viðeigandi menntun og hæfni til að veita gagnreynda geðheilbrigðisþjónustu og að sérnám heilbrigðisstétta í geðheilbrigðisfræðum sé fjármagnað. Þá er einni aðgerð ætlað að skýra hlutverk og verkefni geðheilbrigðisþjónustu og þróa skýra þjónustuferla við ólíkum geðrænum áskorunum þar sem mismunandi fagstéttir veita gagnreynda geðheilbrigðisþjónustu í þverfaglegri samvinnu.