Ferill 1049. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2187 — 1049. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um sálfræðiþjónustu fyrir Grindvíkinga.
1. Að hve miklu leyti fjármagnar ríkið sálfræðiþjónustu fyrir Grindvíkinga, hvort sem er beint eða í gegnum hjálparstofnanir?
Viðkomandi heilbrigðisstofnanir halda utan um kostnað við geðheilbrigðisþjónustu við Grindvíkinga sem sótt verður um í aukafjárveitingu í fjárlögum ársins 2024.
Heilbrigðisráðherra stofnaði í janúar síðastliðnum samráðsvettvang Stjórnarráðsins um sálfélagslegan stuðning við íbúa Grindavíkur í ljósi náttúruhamfaranna. Í samráðsvettvanginum sátu fulltrúar Grindavíkurbæjar, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Rauða krossins á Íslandi, almannavarna, mennta- og barnamálaráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis auk fulltrúa heilbrigðisráðuneytis sem stýrði samráðsvettvanginum og verkefnastjóra sem ráðinn var sérstaklega til stuðnings fyrir samráðsvettvanginn.
Tillögur samráðsvettvangsins byggðust á því að styðja bæði börn og þá aðila sem eru í nærumhverfi barnanna, það á þá bæði við þeirra nánustu aðstandendur sem og það starfsfólk sem vann með börnunum. Lögð var áhersla á stigskiptan stuðning með fjölbreyttum úrræðum sem hefst með fræðslu og námskeiði um líðan á óvissutímum í náttúruvá og aðgengi að sálfræðiþjónustu fyrir þau sem þurfa. Grindavíkurbær gerði samning við einkastofur og hefur verið í góðu samstarfi við heilsugæslu. Sérstaklega var hugað að túlkaþjónustu fyrir þau sem þurftu. Fjölbreytt úrræði voru boðin af opinberri heilbrigðisþjónustu og sjálfstætt starfandi stofum. Þessar aðgerðir voru fjármagnaðar af heilbrigðisráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti og komu til framkvæmda í febrúar.
Á vegum almannavarna starfar nú samráðshópur um sálfélagslegan stuðning á landsvísu sem leiddur er af Rauða krossinum á Íslandi. Hópurinn fellur undir almannavarnaviðbragð og vinnur að sálrænni fyrstu hjálp og stuðningi í neyðarástandi. Í hópnum sitja meðal annars fulltrúar frá embætti landlæknis og Landspítala. Hópurinn stóð fyrir því að skipuleggja sálrænan stuðning í þjónustumiðstöð í Tollhúsinu m.a. frá fulltrúum Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Reykjavíkurborg sem gengu vaktir. Sálfræðingur frá Rauða krossinum á Íslandi hafði lengi vel viðveru í Tollhúsinu og sinnti sálfélagslegum stuðningi en þjónustumiðstöðinni var lokað 1. júní sl.
Landspítali, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru með sérstakt viðbragð vegna stöðunnar í Grindavík. Landspítali tók að sér að handleiða og styðja starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja til að veita stuðning og meðferð við áföllum. Landspítali studdi einnig starfsemi í Tollhúsinu í upphafi með svipaðri nálgun.
2. Hefur farið fram greining á aðgengi viðkvæmra hópa, t.d. barna, aldraðra eða fatlaðra, úr Grindavík að sálfræðiþjónustu til lengri tíma?
Meðal hlutverka samráðsvettvangs Stjórnarráðsins var að kortleggja þörf Grindvíkinga fyrir sálfélagslega þjónustu, þ.m.t. þarfir viðkvæmra hópa. Einnig var vettvanginum falið að kortleggja og rýna þau úrræði sem þegar voru í boði og leggja til sértækar aðgengilegar sálfélagslegar aðgerðir fyrir Grindvíkinga. Fjölmörg úrræði voru þegar til staðar þegar samráðsvettvangurinn fór að stað og rík áhersla var lögð á að veita Grindvíkingum þjónustu í þeirra nærumhverfi. Í upphafi var ráðist í að einfalda leiðir til að nálgast þjónustu og hafa mikilvægar upplýsingar aðgengilegar á einum stað á Island.is. Einnig var ákveðið í upphafi að forgangsraða aðgerðum til að styðja við börn og ungmenni enda brýnt að draga úr neikvæðum afleiðingum og koma í veg fyrir að börn þrói með sér langvarandi vanlíðan, hegðunar- eða námsvanda. Samráðsvettvangurinn vann einnig tillögur að sálrænum stuðningi fyrir Grindvíkinga 18 ára og eldri, þar á meðal fyrir viðkvæma hópa.
Á fundi ríkisstjórnar þann 23. apríl 2024 var samþykkt nýtt fyrirkomulag stjórnskipulags og samhæfingar stjórnkerfisins vegna Grindavíkur. Settur var á fót stýrihópur og undirhópar og fjallar einn þeirra um félagsleg mál. Í félagslega hópnum sitja mennta- og barnamálaráðuneyti, sem fer með forystu í hópnum, ásamt heilbrigðisráðuneyti, félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og innviðaráðuneyti. Hópurinn mun vinna í nánum tengslum við og vera bakland fyrir sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur sem tók til starfa 1. júní sl. Meðal verkefna framkvæmdanefndarinnar er að starfrækja þjónustuteymi sem sinna ýmsum félagslegum þáttum. Þjónustuteymi eru í beinum samskiptum við Grindvíkinga, veita þeim ráðgjöf og leiðbeiningar og eiga samskipti við önnur sveitarfélög þar sem Grindvíkingar dvelja. Í gegnum þessa vinnu verða til upplýsingar um þarfir Grindvíkinga sem verður veitt til félagslega hópsins sem bregst við eftir þörfum og tilefni.