Ferill 977. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2191 — 977. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Óla Birni Kárasyni um skattlagningu lífeyristekna.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða áhrif hefði það á tekjur ríkissjóðs annars vegar og sveitarfélaga hins vegar ef sá hluti lífeyristekna sem verður til vegna ávöxtunar yrði skattlagður sem fjármagnstekjur?
Samkvæmt lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, er öllum launamönnum og þeim sem stunda atvinnurekstur skylt að tryggja sér lífeyrisréttindi með aðild að lífeyrissjóði frá og með 16 ára aldri og til 70 ára aldurs. Í slíkri samtryggingarleið rennur skylduiðgjaldið allt í sameiginlegan sjóð og veitir einstaklingi lífeyrisréttindi í hlutfalli við greiðslur hans í sjóðinn. Fé sameiginlega sjóðsins, að meðtalinni þeirri fjárhæð sem greidd hefði verið í skatt ef ekki hefði komið til frádráttarheimildar samkvæmt lögum um tekjuskatt, er ávaxtað með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma með tilliti til ávöxtunar og áhættu og stafa tekjur lífeyrissjóða að mestu leyti af hagnaði vegna fjárfestinga. Lífeyrisréttindi ráðast af greiðslugetu sjóðanna á hverjum tíma og eru iðgjöld að jafnaði bundin í sjóðunum í mörg ár. Til ráðstöfunar er upphaflegur höfuðstóll og uppsafnaðir vextir. Skyldusparnaður samkvæmt framangreindu er greiddur út úr samtryggingarsjóði að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og ekki er fyrir að fara sérgreiningu á ávöxtun sjóðanna niður á kennitölur einstaklinga. Eðli samtryggingar er þannig að sumir fá meira úr henni en þeir hafa greitt inn og aðrir minna. Fyrir þá einstaklinga sem fá hærri lífeyri úr samtryggingarhluta lífeyrissparnaðar en þeir hafa greitt inn er næsta ómögulegt að áætla hve stór hluti þess eru iðgjöld annarra eða ávöxtun á iðgjöldum annarra.
Viðbótarlífeyrissparnaður hefur aðra eiginleika en skyldusparnaður sem gengur út á ævilangan lífeyri. Greiðslur í viðbótarlífeyrissparnað eru frjálsar og undir hverjum og einum komið hvort þessi valmöguleiki sé nýttur. Þá getur sjóðfélagi valið um misáhættusamar ávöxtunarleiðir fyrir viðbótarsparnað sinn og í því tilviki er um að ræða sérgreiningu ávöxtunar niður á kennitölur einstaklinga. Þá er jafnframt heimilt að nýta séreignarsparnað skattfrjálst vegna kaupa á íbúð til eigin nota og vegna kaupa eða byggingar á fyrstu íbúð.
Hvort sem um er að ræða skylduiðgjald eða viðbótariðgjald í lífeyrissjóð eiga lífeyriskerfin það sameiginlegt að meginhlutverk þeirra er að tryggja afkomu og framfærslu eftir að atvinnuþátttöku og reglulegum launatekjum sleppir, allt til dánardægurs. Samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, eru almennir lífeyrissjóðir undanþegnir skattskyldu og skattlagningu af fjármagnstekjum sínum. Einstaklingar greiða lífeyrisiðgjöld óskattlögð í lífeyrissjóð, þ.e. iðgjöldin eru frádráttarbær, en við útgreiðslu lífeyris er hann skattlagður hjá þeim sem tekjur við útgreiðslu og ber hann þá sömu skatthlutföll og aðrar tekjur. Lífeyrisþegar geta jafnframt nýtt sér persónuafslátt sinn til lækkunar á skattgreiðslum þessum sem í raun hefur verið frestað.
Með vísan til framangreindra atriða um hvernig lífeyriskerfið er byggt upp hefur ráðuneytið ekki yfir að ráða gögnum sem þarf til að meta heildstætt þau áhrif sem spurt er um, auk þess sem gera má ráð fyrir að slík gögn liggi ekki fyrir hjá þeim aðilum sem sjá um vörslu lífeyrisiðgjalda.
Í þessu sambandi má þó segja almennt um þetta fyrirkomulag að hagræðið sem felst í því að spara í gegnum lífeyrissjóði í stað þess að einstaklingar leggi sjálfir til hliðar hefur af mörgum verið talið felast í því að lífeyrissjóðir eru undanþegnir greiðslu fjármagnstekjuskatts. Þá hefur hagurinn sem lífeyrisþegar hafa af skattfrestuninni verið talinn mun meiri en óhagræðið af því að greiða tekjuskatt í stað fjármagnstekjuskatts af ávöxtun eigna sinna. Verður því að telja ákvæði skattalaga hagstæð fyrir félaga í lífeyrissjóðum. Til frekari skýringa má benda á grein Gylfa Magnússonar á Vísindavefnum „Hvers vegna er borgaður skattur af ellilífeyri?“ sem þrátt fyrir að vera frá árinu 2003 stendur enn fyrir sínu. 1 Þá má í þessu samhengi vísa til þess að íslenska lífeyriskerfið er talið vera fyrsta flokks og fær fullt hús stiga fyrir skattalegt fyrirkomulag samkvæmt niðurstöðu Mercer-vísitölunnar. 2
Að endingu þykir rétt að taka fram að ráðherra skipaði á árinu 2023 nefnd með fulltrúum frá öllum helstu bandalögum og samtökum á vinnumarkaði og nokkrum ráðuneytum um gerð grænbókar um heildarendurskoðun lífeyrissjóðakerfisins. Vonir standa til að nefndin skili af sér grænbók sem geti orðið grundvöllur að ítarlegri stefnumörkun og undirbúningi að breytingum á þeim lagaramma sem Alþingi setur um lífeyrismál og skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Verkefni starfshópsins er að greina stöðu og framtíð lífeyrissjóðakerfisins með heildstæðum hætti og þar skiptir skattlagning bæði lífeyrisiðgjalda, ávöxtunar lífeyrissparnaðar og greidds lífeyris vitanlega miklu máli. Í framhaldi af gerð grænbókar verður unnin stefnumörkun um breytingar á lífeyriskerfinu sem ætlað er að verða grundvöllur frumvarps sem lagt verði fyrir Alþingi.
1 www.visindavefur.is/svar.php?id=3266#
2 rpc.cfainstitute.org/-/media/documents/article/industry-research/mercer-cfa-insitute-global-pens ion-index-2023.pdf