Ferill 1002. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2194 — 1002. mál.
Svar
matvælaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um gervigreind.
1. Hefur ráðherra látið gera úttekt á því með hvaða hætti væri hægt að hagnýta gervigreind í lögbundnum verkefnum ráðherra og stofnana á hans ábyrgð?
Matvælaráðuneytið er frá síðustu áramótum með sérfræðing í fullu starfi við framkvæmd og innleiðingu aðgerðaáætlunar um stafræna þróun á málefnasviðum ráðuneytisins. Hann leiðir stafrænt teymi ráðuneytisins þvert á allar skrifstofur ráðuneytisins og stafrænt teymi lykilstofnana ráðuneytisins til að vera vettvangur innleiðingar stafrænnar stjórnsýslu og hagnýtingar gervigreindar. Í aðgerðaáætluninni er horft til stefnu stjórnvalda um stafræna þróun og lögð áhersla á þróun stafrænna innviða, möguleika til samþættingar, aukið gagnsæi, skilvirkni og nútímalegra starfsumhverfis, þ.m.t. að skoða með hvaða hætti megi best hagnýta gervigreind í lögbundnum verkefnum ráðuneytisins og stofnana þess.
2. Hvaða tækifæri eru í notkun gervigreindar á einstökum málefnasviðum og hjá stofnunum sem ráðherra ber ábyrgð á?
Á málefnasviði ráðuneytisins liggja margvísleg tækifæri, m.a. í tengslum við sjálfvirkara eftirlit, þar sem gervigreind getur hjálpað við að rýna og greina stórar gagnalindir í þeim tilgangi að bera kennsl á mynstur og frávik í gögnum. Það eykur gæði, hagkvæmni og skilvirkni í eftirliti. Með notkun gagnavísinda og gervigreindar geta opinberir aðilar bætt og aukið þjónustu við borgara m.a. með því að sníða sjálfvirkni að ólíkum þörfum borgaranna og auka sjálfvirkni opinberrar þjónustu. Þá liggja tækifæri gagnavísinda og gervigreindar í „að fanga fjölbreytileika raunheimsins“ m.a. til að prófa stefnur og inngrip stjórnvalda, sem á að leiða til upplýstari og betri ákvörðunartöku og jafnræði í málsmeðferð. Í Stjórnarráðinu er nú unnið að aðgerðaáætlun í málefnum gervigreindar sem byggist á stefnu stjórnvalda um gervigreind og telur áætlunin yfir 20 aðgerðir. Aðgerðaáætlunin er unnin þvert á ráðuneyti og er sérfræðingur í stafrænni þróun fulltrúi ráðuneytisins í hópnum.
3. Hvaða áskoranir fylgja notkun gervigreindar á einstökum málefnasviðum og hjá stofnunum sem ráðherra ber ábyrgð á?
Það er þýðingarmikið að beita meðvituðum og markvissum aðferðum við innleiðingu gervigreindar. Mikilvægt er að taka tillit til stjórnsýslulaga, gagnaöryggis og persónuverndar í þessu samhengi. Móta þarf umgjörð sem tryggir að notkun gervigreindar sé í samræmi við gildandi stefnur, staðla og almennar siðferðis- og lagareglur sem gilda um opinbera stjórnsýslu. Þá er nauðsynlegt að gera notkun gervigreindar gagnsæja, rökstudda og háða mannlegri íhlutun og eftirliti. Ráðuneytið og undirstofnanir þess þurfa að setja upp markvisst eftirlits- og árangursmatsskipulag fyrir gervigreindarkerfi og tryggja aðgengi hagaðila að árangursvísum og mælikvörðum.