Ferill 879. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2197 — 879. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um húsnæði fangelsisins á Litla-Hrauni.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða áætlanir hafa verið gerðar, teikningar útbúnar og skoðanir framkvæmdar vegna húsnæðis fangelsisins á Litla-Hrauni undanfarin 15 ár?
2. Hver var lýsing á hverju verki og hver var kostnaður vegna hvers verks?
Við vinnslu svarsins óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá Fangelsismálastofnun og Framkvæmdasýslu ríkisins og byggist svarið á þeim upplýsingum.
Á árunum 2006–2008 voru unnar tillögur um stækkun fangelsisins á Litla-Hrauni. Eftir samanburð valkosta við skoðun á stækkun fangelsisins á Litla-Hrauni á árunum 2006–2008 var ákveðið að reisa frekar nýtt fangelsi á Hólmsheiði. Þá voru unnin drög að lóðarhönnun Litla-Hrauns árið 2011 en uppbygging á grundvelli umræddrar lóðarhönnunar var ekki kostnaðarmetin.
Árin 2012–2014 var unnið að tilteknum öryggisúrbótum á Litla-Hrauni en í þeim fólst bygging nýs móttökuhúss, gerðar úrbætur á ytri umgjörð fangelsisins, girðingum, hliðum og þess háttar ásamt því að bæta aðgangsstýringu inn á svæðið. Heildarkostnaður vegna umræddra framkvæmda var um 150 millj. kr.
Á árunum 2021–2023 var unnin frumathugun og áætlanir um aðstöðubreytingar á fangelsinu sem og ástandsskoðun á byggingum fangelsisins. Eftir ástandsskoðun á húsum fangelsisins var ákveðið að hætta við heildstæðar endurbætur á fangelsinu og þess í stað tekin sú ákvörðun að reisa nýtt öryggisfangelsi. Frumathugun kostaði 5,5 millj. kr. og ástandsskoðun kostaði 12,8 millj. kr.
Meðan á byggingartíma nýs öryggisfangelsis stendur verður húsnæði fangelsisins að Litla-Hrauni endurbætt og eru þær framkvæmdir þegar hafnar. Komið hefur verið á fót bráðabirgðaaðstöðu fyrir heimsóknir, heilsugæslu og alla aðra stoðþjónustu á Litla-Hrauni. Umrædd aðstaða hefur verið tekin í notkun í nýjum bráðabirgðahúseiningum í formi gámaeininga og var undirbúningur og framkvæmd þeirrar uppbyggingar unnin í samstarfi við FSRE. Útbúnar voru teikningar af heimsóknaríbúðum af VA arkitektum og bráðabirgðahúseiningar fyrir heilsugæslu og stoðþjónustu voru útfærðar af FSRE í samvinnu við birgja. Áætlaður heildarkostnaður fyrir endurbætur og bráðabirgðaaðstöðu er 250 millj. kr. og þar af er áætlað að 120 millj. kr. fari í endurbætur á núverandi húsum á Litla-Hrauni.