Ferill 1172. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2199  —  1172. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um vopnuð útköll lögreglu og haldlagningu vopna.


    Við vinnslu svarsins óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá embætti ríkislögreglustjóra og byggist svarið á upplýsingum frá embættinu.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mörg útköll lögreglu, þar á meðal sérsveitar ríkislögreglustjóra, hafa verið vopnuð á ári hverju frá 2007?
     2.      Í hversu mörgum tilfellum af vopnuðum útköllum lögreglu á ári hverju frá 2007 hefur verið lagt hald á vopn, flokkað eftir tegund vopna?


     Tafla 1. Fjöldi verkefna þar sem sérsveit vopnast annars vegar og hins vegar fjöldi þar sem sérsveit vopnast vegna tilkynningar um vopnaðan einstakling.

Ár Vopnaburður sérsveitar (VS) Þar af tilkynningar um vopnaða einstaklinga
2007 53
2008 48
2009 68
2010 63
2011 63
2012 72
2013 82 50
2014 79 38
2015 104 54
2016 108 63
2017 298 161
2018 230 171
2019 250 183
2020 315 261
2021 438 311
2022 594 388
2023 644 461

    Þegar um er að ræða að sérsveit vopnast vegna útkalls þar sem ekki er grunur um vopn á vettvangi, getur t.d. verið um að ræða sérstaklega hættulega brotamenn eða alvarlegar hótanir. Fram til ársins 2021 voru ákvarðanir um vopnaburð sérsveitar lögreglu byggðar á atviksbundnu mati en frá árinu 2021 hafa sérsveitarmenn ávallt verið vopnaðir við störf.

     Mynd 1. Fjöldi verkefna þar sem sérsveit vopnast og þar af fjöldi tilkynninga um vopnaðan einstakling.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


              
     Tafla 2. Fjöldi verkefna þar sem almenn lögregla vopnast árin 2016–2024.

2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023
Fjöldi útkalla þar sem almenn lögregla vopnast 90 64 53 62 64 57 86 180

     Mynd 2. Fjöldi verkefna þar sem almenn lögregla vopnast árin 2016–2024.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Því miður liggja upplýsingar ekki fyrir um í hversu mörgum tilfellum af vopnuðum útköllum lögreglu frá árinu 2007 hefur verið lagt hald á vopn, flokkað eftir tegund vopna, en í töflu 3 og 4 má sjá fjölda verkefna sérsveitar vegna tilkynninga um vopnaða einstaklinga, greint eftir tegund vopns.

     Tafla 3. Fjöldi vopnatilkynninga til sérsveitar eftir tegund vopns.

2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023
Egg/Stunguvopn 107 137 119 221 219 274 361
Skotvopn 51 56 66 63 87 91 87
Önnur vopn 34 18 33 51 134 75 79

     Tafla 4. Fjöldi vopnatilkynninga til sérsveitar eftir tegund vopns, hlutfall af heild.

2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023
Egg/Stunguvopn 56% 65% 55% 66% 62% 64% 69%
Skotvopn 27% 27% 31% 19% 25% 21% 17%
Önnur vopn 11% 4% 3% 6% 3% 5% 5%
Barefli 5% 2% 7% 7% 9% 6% 7%
Rafmagnsvopn 1% 1% 1% 1% 0% 2% 0%
Eldvopn/Hlutir sem geta framkallað eld 1% 1% 1% 1% 0% 1% 1%
Líf-/Efnavopn/CBRN 0% 0% 0% 0% 0% 1% 0%
Bogar 0% 0% 0% 0% 1% 0% 0%
Úðavopn 0% 0% 0% 0% 1% 0% 1%
Samtals 100% 100% 100% 100% 100% 100% 100%