Ferill 1140. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2202 — 1140. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um umfjöllun um vistmorð.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hver hefur framvinda og umfjöllun um vistmorð verið í umdæmisríkjum Íslands, sem fram kom í svari á þskj. 494 á yfirstandandi þingi að ráðuneytið hefði falið sendiskrifstofum að fylgjast með?
2. Hvernig hefur þeirri þróun verið miðlað til annarra ráðuneyta og stofnana?
3. Má vænta þess að lagðar verði til aðgerðir í anda tillögu til þingsályktunar um vistmorð sem vísað var til ríkisstjórnarinnar á 152. löggjafarþingi (483. mál)?
Hvað framvindu varðar er helst að nefna að Belgía hefur skilgreint vistmorð sem refsiverðan verknað í eigin refsilöggjöf. Ný löggjöf var samþykkt af belgíska sambandsþinginu í febrúar 2024 og byggist verknaðarlýsing að miklu leyti á tillögum sjálfstæðrar sérfræðinganefndar (e. Independent Expert Panel for the Legal Definition of Ecocide) sem skipaður var af félagasamtökunum Stop Ecocide International. Nær löggjöfin bæði yfir verknað sem brýtur gegn belgískum lögum sem og alþjóðlegum skuldbindingum Belgíu. Með því er Belgía orðið fyrsta ríki Evrópu til að lögfesta vistmorð sem alþjóðlega refsiverðan verknað. Var þessi lagasetning liður í stefnu belgísku ríkisstjórnarinnar um að vistmorð verði skilgreint sem alþjóðaglæpur í Rómarsamþykkt um Alþjóðlega sakamáladómstólinn.
Á vordögum 2024 tók gildi ný tilskipun Evrópusambandsins um vernd umhverfisins með refsilöggjöf. Í aðfaraorðum tilskipunarinnar er tekið fram að sá refsiverði verknaður sem hún nær til geti falið í sér háttsemi sem sé sambærileg vistmorði. Aðildarríkjum sambandsins voru veittir 24 mánuðir til að laga innanlandslöggjöf sína að tilskipuninni.
Í desember 2023 stóðu fastanefndir Úkraínu, Eistlands og Rúmeníu gagnvart Sameinuðu þjóðunum að fundi í New York um umhverfisglæpi rússneskra stjórnvalda í Úkraínu. Tilefni fundarins var m.a. yfirlýsing ríkissaksóknara Úkraínu í október 2023 um að Úkraína yrði fyrsta ríkið til þess að rannsaka vistmorð sem stríðsglæp. Eyðilegging Kakhovka-stíflunnar í júní 2023 var nefnt sem dæmi um stríðsglæp sem fæli í sér víðtækan, langvarandi og alvarlegan skaða á umhverfinu sem skilgreina mætti sem vistmorð. Erfitt væri að sakfella á grundvelli Rómarsamþykktarinnar óbreyttrar vegna hárra þröskulda í ákvæðinu um stríðsglæpi, sbr. b-lið (iv) 2. mgr. 8. gr.
Umræða um vistmorð hefur einnig farið fram á vettvangi sjöttu nefndar (lagamál) Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna vegna draga alþjóðalaganefndarinnar (ILC) að nýjum alþjóðasamningi um glæpi gegn mannúð. Þar hefur verið rætt hvort skilgreina ætti fleiri tegundir verknaða sem glæpi gegn mannúð en þá sem útlistaðir eru í 7. gr. Rómarsamþykktarinnar, m.a. vistmorð.
Hvað varðar mögulegar breytingar á innlendri löggjöf heyra þær ekki undir utanríkisráðuneytið.
Alls fóru þrjár vinnustundir í að taka svarið saman.