Ferill 1139. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2203  —  1139. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um kaup á hergögnum.


     1.      Hversu stór hluti af varnartengdum útgjöldum Íslands voru framlög í fjölþjóðlega sjóði sem kaupa hergögn eða á annan hátt framlög til kaupa á hergögnum? Óskað er upplýsinga um útgjöld síðustu 10 ár þar sem fram komi upphæðir, móttökuríki og hvaða búnaður var keyptur.
    Árin 2014–2021 greiddi Ísland engin framlög til kaupa á hergögnum, hvorki með framlögum í fjölþjóðlega sjóði sem kaupa hergögn né með öðrum hætti. Frá upphafi innrásar Rússlands í Úkraínu 24. febrúar 2022 hefur Ísland hins vegar stutt við Úkraínu með fjölbreyttum varnartengdum stuðningi, þ.m.t. með framlögum í fjölþjóðlega sjóði sem kaupa hergögn. Yfirlit yfir varnartengdan stuðning við Úkraínu frá árinu 2022 til júlímánaðar 2024 má sjá í meðfylgjandi töflu:

Verkefni Fjárhæð í kr.

Ár

Skýringar

Sérstakur sjóður NATO vegna Úkraínu – Comprehensive Assistance Package for Ukraine (CAP).
521.900.000
2022–2023 CAP-sjóðurinn styður þjálfun og kaup á búnaði fyrir úkraínska herinn.
Alþjóðlegur sjóður sem Bretland stýrir vegna Úkraínu (IFU). 527.900.000 2022–2023 IFU-sjóðurinn sinnir útboðum og innkaupum á hergögnum fyrir Úkraínu.
Færanlegt neyðarsjúkrahús í samstarfi við Eistland. 1.087.000.000 2023
Fraktflug með hergögn. 170.000.000 2022
Þjálfunarverkefni í sprengjuleit og -eyðingu í samstarfi við Norðurlöndin og Litáen. 116.000.000 2023–2024 Bæði þjálfun og kaup á búnaði.
Þjálfunarverkefni í bráðameðferð í samstarfi við Bretland. 40.000.000 2023–2024 Þjálfun.
Eldsneytisflutningar (olíubifreiðar og eldsneyti). 71.000.000 2023
Kaup á vetrarbúnaði. 50.000.000 2022
IT-Coaltion í samstarfi við 11 ríki. 75.000.000 2024 Styður öryggi og rekstur innviða á sviði netvarna- og upplýsingatækni fyrir varnarmálaráðuneyti Úkraínu og herinn.
Samtals: 2.658.800.000
Fyrirhuguð verkefni:
Kaup á hergögnum að frumkvæði Tékka í samstarfi við 15 ríki. 300.000.000 2024
Kaup á búnaði fyrir konur í úkraínska hernum. 75.000.000 2024
Samtals: 375.000.000
    
    Frá innrás Rússlands í Úkraínu hefur Ísland því veitt Úkraínu varnartengdan stuðning samtals að fjárhæð 2.658.800.000 kr. Jafnframt er fyrirhugað að leggja fram 375.000.000 kr. í frekari verkefni á þessu ári.
    Fjárframlög til varnarmála árið 2022 námu 3.654 millj. kr. Samþykktar fjárheimildir til varnarmála árið 2023 voru 4.461 millj. kr., þar af var 750 millj. kr. tímabundin fjárveiting til stuðnings varnartengdra verkefna í Úkraínu. Jafnframt var í fjáraukalögum veitt heimild til kaupa á neyðarsjúkrahúsi að fjárhæð kr. 1.087 millj. kr., heildarframlög ársins 2023 voru því 5.548 millj. kr. Samþykktar fjárheimildir til varnarmála árið 2024 nema 4.836 millj. kr.
    Varnartengdur stuðningur við Úkraínu árin 2022–2024 er því um 21,6% af heildarfjárheimild til varnarmála.

     2.      Hvar var ákvörðun tekin um framlög í hverju tilviki og með hvaða hætti var hún rædd á vettvangi Alþingis?
    Í samræmi við k-lið 12. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022, fer utanríkisráðuneytið með mál er varða varnarmál, þ.m.t. samskipti og samstarf við erlend ríki, hermálayfirvöld og alþjóðastofnanir á sviði öryggis- og varnarmála. Varnartengdur stuðningur fellur því undir verksvið utanríkisráðuneytisins.
    Þá fjallaði Alþingi um stefnu um stuðning Íslands við Úkraínu 2024–2028 með þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi 29. apríl 2024. Í þingsályktuninni er kveðið á um áframhaldandi stuðning Íslands við Úkraínu m.a. með framlögum og stuðningi við varnartengd verkefni.
    Endanleg ákvörðun um framlög í formi varnartengds stuðnings er tekin af utanríkisráðherra í samræmi við hefðbundna ferla í utanríkisráðuneytinu og með ráðgjöf og tillögum sérfræðinga ráðuneytisins í samræmi við fjárveitingar sem Alþingi ákvarðar. Þá hafa íslensk stjórnvöld átt í samskiptum við úkraínsk stjórnvöld varðandi hvar stuðningur frá Íslandi kemur best að notum í varnarbaráttu Úkraínu. Einnig er náið samstarf við Norðurlöndin, helstu samstarfsríki og Atlantshafsbandalagið um slíkan stuðning.
    Utanríkisráðherra hefur einnig kynnt varnartengdan stuðning í ríkisstjórn og þá hefur utanríkismálanefnd fengið kynningar og minnisblöð um varnartengdan stuðning með reglulegum hætti frá ráðuneytinu.

    Alls fóru tvær vinnustundir í að taka svarið saman.